Vísir - 26.06.1968, Síða 9

Vísir - 26.06.1968, Síða 9
/ VÍSIR . Miðvikudagur 26. júní 1968. 9 er vilji þjóðarinnar? — Yfirlit yfir tíu fyrstu skoðanakannanir Vísis íjað er ekki hlaupiö aö því að segja nákvæmlega fyrir um afstöðu almennings til ákveð- inna mála, því aö almennings- álitiö er oft óútreiknanlegt eins og veðrið. Og á skömmum tíma skipast veöur í lofti rétt eins og afstaða fólks getur breytzt í einni sjónhending. Mörgum stjórnmálamannin um hefur leiðzt þessi óútreikn anleiki fólks, og einhver kallaöi almenning því virðulega nafni „ófreskjan með mörgu hausana' Það skal tekið fram að það var ekki íslenzkur stjórnmálamaö- ur. Alltaf hafa menn engu að síður reynt að sjá fyrir hið óorðna. Fyrr á tíð settu menn traust sitt á afstöðu himin- tungla, innyflaspár og svo fram vegis, en nú er einkum reynt að styðjast við vísindalegri að- ferðir eins og skoðanakannan- ir, þótt atvinnuleysi sé ekki beinlínis ríkjandi hjá spákonum og loddurum. Ýmsar stofnanir, sem fram- kvæma skoðanakannanir, eru nú orðnar viðurkenndar stofn- anir víöa um heim, og menn byggja mjög á niðurstöðum þeirra, þótt stundum hafi borið við að þær væru fjarri sanni. Reglan er samt sú, að skoðana- kannanir, þegar þær eru vand- lega unnar, eru oftast nokkuö nærri lagi. Vtiö framkvæmd skoöanakann- * ana er margt, sem hafa verður hugfast til þess aö nið- urstaða náist, sem eitthvað er á að byggja. Við almenna skoð- anakönnun er grundvallarhug- myndin sú, að geröur sé nokk- urs konar þverskurður af þjóö- félaginu, þannig að rétt hlut- fall haldist meðal hinna ýmsu, stétta, aldursskeiða og eðlilegt hlutfall sé milli karla og kvenna. til þess arna er gert visst úrtak, sem síðan er leitað til með spurningarnar. Þetta úrtak á eiginlega aö vera eins og „þjóðfélagið í hnotskurn", og skoðanir þess eiga að endur- spegla skoðanir heillar ^jóðar. Vísir hefur nú framkvæmt 10 skoðanakannanir um ýmis mál og birt niðurstöðurnar. Þessar niðurstöður hafa vakið mikla athygli, og þess vegna er æskilegt að rifja þær upp. Fyrsta skoðanakönnunin var birt 12. janúar síðastliðinn, en það var áður en menn vissu. hverjir yrðu í forsetaframboöi. Spurningin, sem þá var lögð fyrir menn hljóöaði svo: „Hver viljið bír að taki við embætti forseta Islands í sumar?“ Það kom á daginn, aö meirihluti fólks, eða 57%, hafði ekkert um málið hugsað og vildi ekki taka afstöðu til þess, en þeir sem höfðu velt málinu fyrir sér. tilnefndu níu þjóökunna menn sem æskilega frambjóðendur þar á meðal bæði dr. Gunnar Thoroddsen og dr. Kristján Eldjárn. Cíðan fyrsta skoöanakönnun in var birt hafa orðið mikl- ar ' reytingar á framkvæmd Skoðanakönnunar Vísis. Áöur náði hún aðeins ti' íbúa Reykja- víkursvæðisins, siðan var Akur- eyri bætt við. og nú er svo komið, að hún endurspeglar skoðanir allrar þjóðarinnar. hún nær til allra sýslna og landshluta. Fyrir hægri-breytinguna geró Vísir tvívegis könnun meðal fólks á fylgi hennar. t fyrra skiptið var það um svipað leyti og rætt var á þingi um hvort rétt væri að fresta breytingunni en í síðara skintið var spurt skömmu fvrii H-dag. þegar fyrirsiáanlegt var. að ekki vrð' hvikað frá fyrir hugaðri breytingu Á þessum tíma höfðu skoö- anir fólks breytzt allmikið. os hægri-umferðin virtist eiga minna fylgi aö fagna eftir þvi sem H-dagur nálgaðist. "’.r fer á eftir listi yfir niu skoðanakannanir. sem Vísir het ur t, og eiga töflurnar að skýra sig sjálfar. Vert er aö vekja athygli á þvf. að siðasta könnunin um afstöðu manna til Atlantshafsbandalagsins nær til allrar þjóðarinnar í heild. 29. janúar Teljið þér rétt, að minkaeldi verði leyft hér á landi? Svör alls. 181, 91 kona og 90 karlar Meö ........... 48 eða 27% Móti.......... 105 eða 58% Veit ekki .... 28 eða 15% Með prósentutölu þeirra, er afstöðu tóku í málinu, lítur taflan svona út: Með ................. 31% Móti................. 69% 5. febrúar Teljið þér rétt, að taka upp hægri umferð í vor? Svör alls 181, 91 kona og 90 karlar Með ........: 81 eða 45% Móti........ 92 eða 51% Veit ekki ... 8 eða 4% Með prósentutölu þeirra, er afstöðu tóku í málinu, lítur taflan svona út: Með ...............47% Móti................. 53% 13. maí Eruð þér hlynnt(ur) hægri. breytingunni? Svör alls 163, 81 karl og 82 konur Með ......... 50 eða 31% Móti ........ 89 eða 54% Veii ekki .... 24 eða 15% Með prósentutölu þeirra, er afstöðu tóku í málinu, lítur taflan svona út: Með ................. 35% Móti................. 65% 12. febrúar Teljið þér rétt, að leyfa sölu á áfengu öii hérlendis? Svör alls 181, 91 kona og 90 karlar Með ......... 84 eða 46>/2% Móti ........ 84 eða 46*Á% Veit ekki .. 13 eða 7% Með prósentutölu þeirra, er afstöðu tóku í málinu, lítur taflan svona út: Með .................. 50% Móti................. 50% 26. febrúar Teljið þér rétt, að leyfðai séu sjón- varpssendingar frá Keflav.flugv. jafn- hliða sendingum ísl. sjónvarpsins? Svör alls 180, 82 karlar og 98 konur Móti takmörkun 107 eða 59*72% Með takmörkun 47 eða 26% Óákveðnir 26 eða 14*/6% Með prósentutölu þeirra, er afstöðu tóku í málinu, lítur taflan svona út: Með takmörkun ........... 31% Móti takmörkur .......... 69% 21. maí t Viljið þér láta leggja landsprófið niður, breyta því eða halda því? Svör alls 163, 81 karl og 82 konur Halda óbreyttu .. 29 eða 18% Breyta........ 77 eða 47% Leggja niður .... 9 eða 6% Óákveðnir .........48 eða 29% Með prósentutölu þeirra, er afstöðu tóku í málinu, lítur taflan svona út: Halda óbreyttu............ 25% Breyta ................... 67% Leggja niður............... 8% 10. júní Viljið þér, að íslendingar gerist aðilar að Fríverzlunarbanda- laginu, EFTA? Svör alls 163, 81 karl og 82 konur .Með aðild .. 53 eða 32% Móti aðild .. 13 eða 8% Óákveðnir .. 97 eða 60% Með prósentutölu þeirra, er afstöðu tóku í málinu, lítur taflan svona út: Með aðild .............. 80% Móti aðild.............. 20% 18. júní Eruð þér hlynnt(ur) því, að tekin verði upp þegnskylduvinna hér á landi? Svör alls 163, 81 karl og 82 konur Með ........... 77 eða 47% Móti........... 47 eða 29% Óákveðnir .. 39 eða 24% Með prósentutölu þeirra, er afstöðu tóku í málinu, lítur taflan svona út: Með .............:.. 62% Móti................. 38% 24. júní Eruð þér fylgjandi því, að islend- ingar segi sig úr Atlantshafsbanda- laginu á næsta ári? Með aðild . 51% Móti aðild . 19% Óákveðnir . 30% Með prósentutölu þeirra, er afstöðu tóku í málinu, lítur taflan svona út: Með aðiíd . 73% Móti aðild . 27%

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.