Vísir - 27.06.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 27.06.1968, Blaðsíða 1
VÍSIR 58. árg. — Fimmtudagur 27. juní 1968. — 139. tbl. ísland aldrei meira í sviðsljósinu Vilja almennings framfylgt: Urslit forsetakosninga kunn fyrir hádegi á mánudag Þessi snjómynd er ekki frá því í kuldunum í vetur, heldur frá Jónsmessunni á Siglufirði fyrir örfáum dögum. Þá var ökkladjúp- ur snjór í bænum og létu börnin ekki á sér standa að nota þetta einstæða tækifæri til að búa til snjókerlingar, eins og viö sjáum á myndinni. (Ljósm. Hafliði Guðmundsson). Talningu viðast lokið á mánudagsmorgun, nema eitthvað óvænt komi fyrir Eftir þeim upplýsingum, sem VÍSIR hefur aflað sér f morgun um talningu atkvæöa í forsetakosningunum á & sunnudag eru miklar líkur til þess, að úrslit kosninganna verði kunn um eða upp úr há- degi á mánudag. Að vísu hef- ur tilhögun talningarinnar ekki verið ákveðin í Norður- landskjördæmi vestra, en það mun verða ákveðið mjög bráð lega. Formenn yfirkjörstjórna úti á Iandi hafa allir ákveðið, að talningu atkvæða í kosn- ingunum verði hraðað eftir mætti, sérstaklega eftir að kjörstjórnir í Reykjavík í Reykjanesskjördæmi kváðu á fundinum í gær, talning þar hæfist strax kjörfundi loknum. Gera ráð fvrir, að úrslit í flestum eða öllum kjördæmum lands- ins, utan Austurlands og Vcst urlandskjördæmis, verði kunn að morgni mánudags- ins, en vegna samgönguerfið- leika í þessum fyrrgreindu kjördæmum verður að öllum líkindum ekki unnt að hefja þar talningu fyrr en með morgninum á mánudag. 10. síða og á að að má Deilur Hagtryggingar og Póststofunnar: „Biðjumst ekki af- sökunar opinberlega segir póstmeistari Deila hefur aö undanförnu staðiö' milli HaRtryggingar hf. og Póst- stofunnar i Reykjavík vegna drelfi bréfa sem hið fyrmefnda sendi viðskiptavinum sínum. Var ætlun Hagtryggingar hf. að senda öllum viðskiptavinum sínum bréf, sem m. a. hafði að geyma álímingarmiða fyrir H-dag og sitthvað fleira. Þeir afhentu síðai. Póststofunni bréfin dagana 21. og 22. maí og voru þá öll bréfin stimpluö. Þann 28. maí höfðu þeir svo sam M->- 10. síöa 9 Island mun sennilega aldrei hafa verið eins í sviðsljósinu og undanfarna daga, enda mun fjöldi erlendra fréttamanna, sem hefur heimsótt landið aldrei liafa veriö eins mikill. Á annað hundrað fréttamanna frá 14 þjóð löndum komu til landsins vegna ráðherrafundarins og voru þar fréttamenn margra þekktustu fréttastofnana og blaða heims. Frá Þýzkalandi komu 20 frétta- mcnn frá blöðum, útvarpi, sjón- varpi og fréttastofnunum. Þau voru: Þýzka sjónvarpið (bæði 1. og 2. prógram), norður- suður og vest urþýzka útvarpið og Deutsche Welie, dagblöðin Frankfurter Rund- schau og Das Berliner Wort og fréttastofnanirnar Deutsche Presse Agentur og Springer Auslands- dienst. Frá Bandaríkjunum: fréttastofnan irnar Associated Press, United Press Intemational og U.S. Imform ation Agency. Blöðin Time, Life, Newsweek, Los Angeles Times og American Aviation Publication og þrjár útvarps og sjónvárpsstöövar. Frá Bretlandi Reuter, blööin Daily Mail, Daily Mirror, The Daily Tele- graph og The Times og BBC. Danmörk sendi Ritzau, danska sjónvarpið og blöðin Berlingske Tidende, Jyllands Posten og Poli- tiken. Frá Belgíu komu fréttamenn frá sjónvarpi, útvarpi, fréttastofnun- inni Beiga og blöðunum La Libre Beigique og Le Soir. Frakkland: Blöðin Le Monde, France Soir, Le Figaro, Paris Match og Le Nouvel Observateur, franska sjónvaroið og útvarpið og fréttastofan AFP. Ítalía: II Corriere della Sera og La Stampa g fréttastofnun. Japan: Sjónvarp og útvarp. Noregur: Biöðin Aftenposten og Bergens Tidende, siónvarp og út- varp og fréttastofnunin NTB (ís- lenzku blöði-i nota NTB mikiö). m->~ 10. síða Frá ráðstefnu lyflækna í morgun. Fjölmennasta læknaráðstefn an hófst í morgun — Lyflæknar frá 'óllum Norðurl'óndunum þinga i Reykjavik ■ Stærsta læknaráðstefna, Háskólanum í morgun. Um sem íslenzkir Iæknar hafa 150 lyflæknar frá öllum Norð staðið að hér á Iandi hófst í urlöndunum sitja ráðstefn- una, sem mun Ijúka á laugar- daginn. Þetta er í fyrsta skipt ið, sem norrænt lyflæknaþing er haldið hér á landi, að því er dr. Óskar Þórðarson, yfir- læknir og forseti þingsins, sagði Vísi í morgun. Gjörgæzludeildir (Intensive- care deildir) verða meðal aðal- umræðuefnanna á ráðstefnunni. Norrænir læknar hafa náð góð- 10. síða HANS SIF náðist út / gærkvöldi Danska flutningaskípið Hans Sif, sem strandaði við Rifstanga, er komið á flot. Björgun skipsins tókst í gærkvöldi um kl. 11.30, eftir margar og erfiðar tilraunir. Er nú verið að draga skipið til Raufarhafnar og er það póstbáturinn Drangur sem það gerir. Drangur hefur gegnt mjög mikil- vægu starfi við björgun- ina og verið á staðnum að undanförnu. Ekki var alveg ákveðið hvort sigla ætti skipinu inn í höfnina eða það ætti að liggja fyrir utan. 8 Reykvíkingar og 2 Húsviking ar hafa unniö að björguninni undir stjórn þeirra Bergs Lárus- sonar og Péturs Kristjánssonar. Eins og áður hefur komið fram tóku þeir félagar þetta að sér og var farið eftir alþjóðaskilmál unum „ nö cure, no pay“ eða ef björgun hefði ekki tekizt hefðu þeir ekkert haft upp úr krafs- inu. Sennilega verður farið með skipið í togi til Reykjavíkur, en þar verður það metið. Síðan fá bifirr,unarmenn 55% í sinn hlut. sem skiptist nokkuð á milli mannanna. Eigandi mjöl- farmsins sem‘ er í skipinu, er Einar M. ’óhannesson á Húsa-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.