Vísir - 27.06.1968, Blaðsíða 2

Vísir - 27.06.1968, Blaðsíða 2
iwpflfiasaa V í SIR . Fimmtudagur 27. júní 1968. Þrettán reynist Haukrnn ekki óhappatala! ÞRETTÁN er engin óhappatala, — a. m. k. er það álit Haukanna í Hafnarfirði. Þeir léku sinn 13. Námskeici þjálfara • Tækninefnd K.S.I. hefur á- kveðið að gangast fyrir nám- skeiöi fyrir þjálfara 7.—14. júlí n. k. í Reykjavík. Kennt verður 1. og 2. stig. Próf verða tekin í lok nám- skeiðsins. Kennari verður Karl Guömundsson og mun kennslan standa allan daginn. Þátttökutilkynningar skulu send- ar skrifstofu K.S.Í., íþróttamið- srtöðinni Laugardal. Sími 84444. Keppnin í 2. deild (a-riðli) heldur áfram í kvöld. Þá leika á Melavelli Þróttur og Víking- ur. Leikurinn hefst kl. 20.30. — meistaraflokksleik á árinu í gær kvöldi og sigruðu þar FH í 2. deild í knattspyrnu með 3:2 og var sá sigur fyllilega verðskuld- aður, því að þeir léku mun betri knattspyrnu en FH. Þegar talað er um þessa 13 leiki Hauka er einnig átt við handknatt- leikinn, en í litlu félagi eins og Haukar eru, vilja þessar tvær grein- ar, handbolti og knattspyrna renna svolítið saman, sömu menn keppa gjaman í báðum greinunum. í handboltanum unnu Haukarnir 7 Staðan í 2. deild í knattspyrnu A-rlöIll. • Haukar—FH 3:2 (2:0). Haukar I Víkingur I FH 1 Þróttur leiki í röð eftir áramótin og úti hafa þeir leikið 2 leiki án taps, en í knattspyrnunni eru leikirnir orðnir fjórir, allir taplausir, einn leikur varð jafntefli, það var fyrri leikurinn gegn FH. Jóhann Larsen skoraði fyrsta mark Haukanna í gær og fyrir lok hálfleiksins bætti Steingrímur öðru við. Þetta jöfnuðu FH-ingar í seinni hálfleik, en sigurmarkið kom frá Jóhanni Larsen, hinum fljóta og markheppna miðherja Hauka 10 mín. fyrir leikslok. Áhorfendur voru talsvert margir að þessu „uppgjöri" knattspyrnu- félaganna tveggja í Firðinum. LANDSLEIK FRESTAÐ Landsleik Islands og V-Þýzkalands er frestað til þriðjudagskvölds — vegna sjónvarpsins frá forsetakjörinu. Á morgun verður nánar sagt frá la 'dsliðsvalinu og spjallað um íslenzka liðið í heild, en í dag er aðeins rætt um markvarðarstöðuna hér á síðunni. Mynd- in er af þrem þýzkum leikmönnum, sem hingað koma. BARÞJÓNN LEIÐIR í COCA COLA KEPPNI ■Barizt er af hörku um hlna fallegu Coca-Cola bikara í keppni Golfklúbbs Reykjavíkur í Grafarholti þessi kvöldin. Keppnin er nú hálfnuð og heldur áfram í kvöld og lýkur annað kvöid. Eru leh.nar alls 72 holur, 18 holur á kvöldi. Keppt er með og án forgjafar. Staðan í flokkn- um án forgjafar liggur fyrir og er þessi eftir 36 holur: 1. Gunnlaugur Ragnarsson 162 högg, 2.—3. Hans Isebam 163, Þor- björn Kjærbo 163, 4.-5. Amkell Guðmundsson 166, Pétur Björns- son 166, 6. Einar Guðnason 168, 7.—9. Eiríkur Helgason 171, Hólm- geir Guðmundsson og Jóhann Benediktsson 171, 10.—11. Markús Jóhannsson og Hörður Guðmunds- son, báðir með 172 högg. í gærkvöldi lék Jóhann Bene- diktsson hringinn á 78 höggum, sem er mjög góður árangur, ekki sízt þar eð völlurinn er heldur erfiður um þetta leyti. Þaö vekur talsverða athygli hve vel Gunn- laugi Ragnarssyni gengur í keppn- inni, en hann er nýtt nafn meðal þeirra efstu í íþróttinni. Hann á- samt starfsfélaga sfnum, Jóni Þór Ólafssyni, en þeir starfa sem þjón- ar á Röðli, unnu á dögunum tví- liðakeppni G.R. Keppnin er geysi umfangsmikil og tekur 71 þátt í henni. MARKVARÐALEYSI? ■ Það er ekki að furða þótt markvarðarstaða landsliðs okkar í knattspyrnu verði e. t. v. umdeild. Það er vitað mál að Sigurður Dagsson, sem var valinn sem mark- maður landsliðsins hefur síð ur en svo átt góða leiki i vor. Enn minnast menn leikja hans síðan í fyrra? Sigurður sýndi þá og í Iiitteðfyrra hvað í honum býr og þá blandað- ist engum hugur um ágæti hans. Það má ekki dæma Sig- urð fyrirfram, - sjálfur gæti ég bezt trúað að eftir leikinn gegn Þjóðverjum verði menn sammála um að hann hafi staðið sig með mestu prýði, a. m. k. hef ég sáralitla trú á að hann geri sig sekan um að missa boltann frá sér eins og hann hefur gert í sumar, Sig- urður kann vel að grípa bolta, enda handknattleiksmaður upprunalega. Hér er eitthvað lítilsháttar að sem Sigurður lagfærir sjálfur. En markvarðaleysi okkar er annars ekki eins uggvænlegt og margir vilja álíta. Auk Sigurðar eru að koma fram ágætir mark- verðir. T. d. er Fram með prýöis markvörð, Þorberg Atlason, sem að vísu hefur aðeins sýnt mjög góða leiki fáa leiki í röð og 6n^ítl V3r3r^öfT m rl n f nn rri v\ til aö réttlætanlegt væri að setja hann sem aöalmarkvörð í landslið. Kjartan Sigtryggsson hefur átt iða leiki í vor og sumar, en er meiddur og ekki landsliöstækur af þeim sökum. Þá eiga Vestmannaeyingar góð- an markvörð þar sem Páll Pálmason er. Hann hefur lands- liðsnefnd e.t.v. ekki séð enn? Hann hefur fengið góða dóma fyrir leiki sína. Ekki má gleyma 2. deild, því að uppi á Akranesi er ágætur markvörður, sem ver mark þeirra Skagamanna með ágæt- um fyrir öllum skakkaföllum, Einar Guöleifsson. Ekki er kunnugt um aö landsliösnefnd Unglingameistara- mót Reykjavíkur Unglingameistaramót Reykjavík- ur fer fram 2. og 3. júlí á Laugar- dalsvellinum. Keppnisgreinar fyrri daginn, 2. júlf: 110 m grindahlaup, 100 m hlaup, 400 m hlaup, 1500 m hlaup, 1000 m boðhlaup, kúluvarp, spjótkast, langstökk, hástökk. Keppnisgreinar seinni daginn, 3. júlf: 200 m hlaup, 800 m hlaup, 3000 m hlaup 400 m grindahlaup, 400x100 m boðhlaup, kringlukast, sleggjukast, þrístökk, stangarstökk. Þátttökutilkynningar berist fyrir 30. júní til frjálsíþróttadeildar Ár- SIG. DAGSSON — sú var tíðin að hann var borinn á gullstól. — KJARTAN SIGTRYGGSSON meiddur. góða leiki.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.