Vísir - 29.06.1968, Side 1

Vísir - 29.06.1968, Side 1
 ••••••• • 9 © •••••••••••••••• morgun kýs þjóðin sér nýjan þjóðhöfðingja Kj'órstaðir opna kl. 9 i fyrramálið — 4600 hafa greitt atkvæði utan kj'órstaðar i Reykjavik — Alls um 115 þús. á kjórskrá á óllu landinu, Jbcrr af rúm 48 Jbús. i Reykjavik KOSNINGAR til embættis forseta íslands fara föngum. Formaður yfirkjör- stjórnar í Norðurlandskjördæmi vestra, Elías Elíasson, sagði Vísi í viðtali í gær, að vonazt væri til að talning atkvæöa hæfist um nóttina, og myndu þeir gera allt það, sem í þeirra valdi stæði til að flýta talningunni. Veðurhorfur á sunnudaginn eru þannig samkvæmt upplýs- ingum Veðurstofunnar í gær: Austlæg átt, bjartviðri og hlýrra norðanlands og vestan, sums staðar rigning sunnan lands. Á bls. 2 í blaðinu í dag er fjallað nánar um kosningarnar • m.a. er þar „Kosningahandbók J VÍSIS", þar sem mjög handhægt • eyðublað er, sem unnt er að £ fylla út í atkvæðatölur, er þær J berast. Á bls. þrjú eru síðan ævi • ágrip forsetaefnanna beggja á- £ samt myndum. I i fram á morgun. KI. 9 í fyrramálið verða kjörstaðir opnaðir um allt land, en þeim verður lokað kl. 23.00 um kvöldið. Á kjörskrá við þessar kosningar eru tæplega 115 þús. manns, eða tæpum 8 þús. fleiri en við síðustu Alþingiskosningar. Fjölmennasta kjördæmið er Reykjavík, en þar eru á kjörskrá 48.577, í Reykjaneskjördæmi eru 18475 á kjörskrá, en í Norðurlandskjördæmi eystra, sem er þriðja fjölmennasta kjördæmið, eru 12449 á kjörskrá. SíSustu setningarnar féllu niðar / útvarpi Gunnars Thoroddsens á öldum ljósvakans f gærkvöldi f hljóð- varpinu. — mist'ók tæknimanna ollu þessu í Suöurlandskjördæmi er 9991 á kjörskrá, 7352 í Vesturlands- kjördæmi, 6453 í Austurlands- kjördæmi 5900 í Norðurlands kjördæmi vestra og 5760 f Vest fjarðakjördæmi. Tölur þessar eru allar áætlaðar, þar sem ekki er enn lokið að fjaila um kærur. Utankjörstaðakosning er fyr- ir nokkru hafin, og kl. 18 f gær höfðu um 4600 greitt atkvæði í Reykjavík. Utankjörstaðakosn- ing fer fram í dag í Melaskól- anum, á tfmabilunum kl. 10-12. fyrir hádegi, kl. 14—18 e.h. og síðan kl. 20—22 um kvöldið. Eins og áður hefur verið bent á, eru líkur á því, að úrslit kosn- inganna verði kunn fyrir hádegi á mánudag, því að formönnum yfirkjörstjórna bér saman um að hraða talningu atkvæða eftir • Það vakti athygli þeirra, sem Jhlustuðu á ræður forsetaefnanna • f gærkvöldi, að nokkrar síðustu Jsetningar Gunnars Thoroddsens •vantaði inn í útvarpssendinguna. • Ástæðan fyrir þessu voru mis- Jtök tæknimanns eða manna hjá • sjónvarpi og hljóðvarpi. Ávörp- Jin voru tekin upp hjá sjónvarp- • •------------------------------- inu í gærdag og var hljóðvarpað frá sjónvarpsdeildinni við Lauga veg, en tæknimaður sjónvarps átti að gefa til kynna með hljóð- merki hvenær þætti Gunnars Iauk. Þetta merki gaf sjónvarpsmað urinn of snemma. Þess vegna vantaði aftan á Iokaorð dr. •••••••••••••••••••••••••••• Landsliðsmenn kusu utan kjörstaðar ■ Nývaldir landsliðsmenn í knattspyrnu ætla ekki að eyða helginni í höfuðborginni, en verða við æfingar að Laugar- vatni. Tíu leikmannanna hafa kosningarétt, en þann ellefta vantaði 4 daga upp á að hann væri kjörgengur, en það er Eim- ar Geirsson, hinn ungi fram- herji í liðinu. Fjórtán úr hópnum tóku sig sam an í gærdag og mættu til utankjör- staöakosningar í Melaskólanum þar sem atkvæði þeirra voru inn- sigluð eftir þeim reglum sem um þessi atkvæði gilda. Á eindálka myndinni er hinn ungi markvörður Porbergur Atla- , son að setja atkvæði sitt í kassann | en á hinni myndinni eru lands- liðsmennirnir, sem eru Þorbergur 1 Atlason, Ársæll Kjartansson, Reyn ir Jónsson og Hermann Gunnars- son. Efni um forsetakjör í blaðinu í dag: Bls. 2 Bjartsýni í herbúðum forsetaefna. Kosningatafla Vísis fyrir þá, sem fylgjast með talningunni. Bls. 3 Æviatriði forsetaefna ásamt myndum af þeim og konum þeirra. Bls. 7 Bessastaðir.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.