Vísir - 01.07.1968, Side 1

Vísir - 01.07.1968, Side 1
58. árg. — Mánud'agur 1. júlf 1968. - 142. tbl. // Ég óska dr. Kristjáni til hamingju /✓ sogð/ dr. Gunnar Thoroddsen i morgun „Þjóðin hefur kveðið upp sinn dóm og honum verða að sjálf- sögðu allir að una, hvort sem þeim er það ljúft eða leitt“, sagði dr. Gunnar Thoroddsen, sendi- herra, þegar Vísir hafði samband við hann um kl. 10.30 í morgun, en ; á voru úrslitin kunn í Reykja- vík, Reykjaneskjördæmi, Suður- landskjördæmi og fyrstu tölur komnar í Norðurlandskjördæmi vestra. „Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka öilu því ágæta fólki um land allt, sem hefur veitt mér stuðning, lagt fram fórnfúst starf og sýnt okkur hjónum traust og vináttu. Ég óska dr. Kristjáni Eldjárn til hamingju", sagði dr. Gunnar Thoroddsen að lokum. mmm ■9:-. ■■■■:'■■■■■■■'’■:■■:■■:.■:■■ - 'K V- í " ' ■ Heildartölur kl. 12:20 Dr. Kristján Eldjárn 57.286 atkv. (64°jo) Dr. Gunnar Thoroddsen 32.101 atkv. (36°}o) ■ // Dr. Kristján Eldjárn og frú Halldóra að heimili sinu í Þjóðminjasafninu viö Suðurgötu í morgun. Við hjónin erum hrærð og þakklát sagbi dr. Krisfján Eldjárn i viðtali v/ð Visi i morgun Dr. Kristján Eldjárn verður næsti forseti ís- lenzka lýðveldisins. Það var Ijóst eftir þeim töl- um, sem borizt höfðu, er VÍSIR fór í prentun rétt fyrir hádegi. Hafa yfirburöir hans í kosn- ingunum í gær verið meiri en almennt var búizt við. Fylgi hans hefur verið mjög jafnt, alls staðar yfir 60% greiddra at- kvæða, í þeim kjördæmum, sem lokið var við að telja í, eða þar sem talning stóð yfir. Dr. Kristján hlaut 61% atkvæða i Reykjavík, og þar reyndist fylgi hans minnst í þeim kjördæmum. sem unnt var að átta sig á fylgi frambjóðendanna í morgun. Strax og líða tók á tainingu atkvæða í Reykjavík'seint í gær- kveldi var ljóst, að hverju stefndi. Ljóst var þá, að mikil breyting þyrfti að verða á at- kvæðatölum síðar um nóttina til aö dr. Kristján yröi ekki næsti forseti íslands. ■ Úrslitin í forsetakosningun- um í Reykjavík komu flestum mjög á óvart. Fyrstu tölur úr Reykjavík voru 11400 fyrir Gunnar Thoroddsen, en Kristján hlaut þá 13100. Tölur þessar komu kl. 23.15, en það var fyrst viö næstu tölur, aö yfirburöir dr. Kristjáns komu verulega i ljós, en þær sýndu: dr. Gunnar 12700, dr. Kristján 18.600. Loka- tölur urðu sem hér segir: Dr. Gunnar Thoroddsen: 16900 atkvæði eða 39%. Dr. Kristján Eldjárn. 26460 atkvæði eða 61%. Á kjörskrá í Reykjavík voru 48469, 43834 greiddu atkvæði eða 90,4%. Auðir seölar voru 369, ógild atkvæði 105. Við forsetakosningarnar 1952 greiddu 29952 atkvæði f Reykjavík. Ásgeir Ásgeirsson, hlaut þá 14970 atkvæöi eða ná- lega 50% þeirra. Séra Bjarni Jónsson hlaut 11784 atkvæði. eða 39,1%, og Gísli Sveinsson 2053 atkvæði eða 6,9%. Fyrstu tölur úr Reykjanes- kjördæmi bentu til, aö hið sama yrði uppi á teningnum þar. Þær voru: Dr. Gunnar 300 atkv. Dr. Kristján 500 atkv. Síðar dró enn meir sundur með frambjóðend- unum, og áður en yfir lauk var sýnt, að sigur dr. Kristjáns yrði jafnvel enn meiri þar en i Reykjavík, enda varð sú og raunin. Lokatölur urðu þessar: Dr. Gunnar Thoroddsen: 5908 atkv. eða 35,2%. Dr. Kristján Eidjárn: 10876 atkv. eða 64,8%. í kosningunum ’52 hlaut Ás- geir Ásg. 55,5% atkv. þar, séra Bjarni Jónsson 39,6% og Gísli Sveinsson 4,9%. Næsta kjördæmi, sem tölur fóru að berast úr var Suður- landskjördæmi, en talning þar fór fram á Hvolsvelli. Fyrstu tölur voru: Dr. Gunnar 394 atkv. en dr Kristján 599 atkvæði. Er eftir var að telja utankjörstaða- atkvæði hafði dr. Gunnar fengið 2872 atkv., en dr. Kristján 5151 atkv. Utankjörstaðaatkvæði voru 964, og lokatölu í Suður- landskjördæmi voru: Dr. Gunnar Thoroddsen: 3161 atkv. eöa 35,2%. Dr. Kristján Eldjárn: 5820 atkv. eða 64,8%. ío. siðu ÍMORGUN er sýntþótíi að hverju dró í kosninga úrslitunum héldu blaða- maður Vísis og Ijós- myndari til fundar við hin verðandi forsetahjón á heimili þeirra í Þjóð- minjasafninu. Dr. Kristján Eldjárn og frú tóku þessum snemmbúnu gest- um með kostum og kynjum og buðu þeim til stofu. Dr. Kristján féllst á að svara fáeinum spurningum, sem blaöa maðurinn fór fram á að leggja fyrir hann. „Hvað er yður efst í huga, nú þegar sýnt er, að þér verðið kjörinn forseti?" „Mér er að sjálfsögðu efst i huga þetta gífurlega mikla fylgi sem fram hefur komið í þeim kjördæmum, sem þegar er búið að telja í sem er meira heldur en ég hafði búizt við. — Þetta er mér efst í huga.“ „Hvernig verður nú næstu dögum varið?“ „í fyrsta lagi verð ég vita- skuld heima í dag. Maður þarf að átta sig á hlutunum, hlusta á kosningatölur og fá heildar- niðurstööuna, og þar fram eftir götunum. Síðan hefði ég getaö hugsað mér að hvíla mig, þótt ekki væri nema fáeina daga.“ „Kvíðið þér fyrir einhverju, þegar þér takið við þessu nýja og ábyrgðarmikla starfi?" „Nei, ég kvíði því ekki. Ég veit, að baö er ýmislegt, sem að höndum ber og fyrir liggur. En ég kvíði þvf ekki.“ „Búizt bér viö, að þið hjónin munið ferðast um landiö á næstunni, svo að þjóöinni gef- ist kostur á að sjá ykkur?“ „Ég hef alls ekki nein áform um þetta af þeirri einföldu á- stæðu, að ég hef ekki vitað fyrr heidur en núna í morgun, að úrslitin mundu veröa þessi. Ég hef ekki vilja fara að gera skó að því, sem ég ekki vissi hvort koma mundi fram.‘‘ „Gerið þér ráð fyrir þvi 1 framtíðinni að geta starfað eitt- hvað að fræðigrein yðar?“ „Ég hef alltaf sagt, að ég gerði mér vonir um að geta haldið sambandi við mína fræði- grein, sem tómstundaiðju, en það er engu hægt að lofa um það, því að eftir á að koma ) ljós, hvort veröur nokkurt tóm til þess. En ég geri ráð fyrir. að hafi ég einhverjar tómstund- ir eins og aðrir menn, þá muni þær altént fara í bað.“ „Hvernig finnst yður nú að kveðja Þjóðminjasafnið, sem »->- 10. síða

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.