Vísir


Vísir - 08.07.1968, Qupperneq 7

Vísir - 08.07.1968, Qupperneq 7
7 VÍSIR . Mánudagur 8. júlí 1968. morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í niorgun útlönd Ummælin um hreytt viðhorf Egypta gagnvart ísrael nú sögð rangtúlkuð D í fréttastofufrétt frá Kairo seg- ir, að talsmaður egypzku stjóm arinnar hafi sagt, að ummæli ut- anríkisráðherra Iandsins fyrir skemmstu þess efnis, að Egypta- land horfðist nú í augu við veru- ieikann og viðurkenndi tiiverurétt ísraels, hefðu verið rangtúlkuð, og væri stefnan óbreytt. Abba Eban utanríkisráðherra ísra els hefur farið háðulegum orðum um tilboð, sem greint hefur verið frá f fréttastofufregnum, og er þess efnis, að egypzka stjórnin geti fall- izt á, að Sameinuðu þjóðirnar sendi aftur gæzlulið til landsins. Eban sagöi þetta tilboö fram komiö til þess aö varpa ryki í augu manna, en dró í efa sannleiksgildi frétt- anna. Eban sagði, aö brottflutningur liðs Sameinuöu þjóðanna frá Gaza- svæðinu og Tiransundi, hefðu verið meðal meginorsaka, sem leiddu til McCarthy kveðst ekki stofna nýjan flokk þótt Humphrey verði valinn forsetaefni D Eugene McCarthy lýsti yfir í gær, að hann myndi ekki stofna Blaiberg nú 6 batavegi D Fréttir frá Höfðaborg seint í gærkvöldi hermdu, að Blaiberg væri á batavegi og væru Iæknar — í bili að minnsta kosti — hætt- ir við áform sin að græða í hann nýtt hjarta. nýjan stjórnmálaflokk, ef hann yrði ekki kjörinn forsetaefni demo- krata, en hann neitaði enn að segja, hvort hann myndi styðja Humphrey varaforseta, ef hann yrði valinn for setaefni. „Ég tel, að það verði undir af- stöðu okkar til mála komið.í' sögði hann og benti til skoðanamunar þeirra’ várðándi Víetnamsíýrjðid- ina. Humphrey var spurður nokkurra spurninga varðandi þessi ummæli og sagðist þá búast við að verða sjálfur fyrir valinu og að keppnin um forsetaembættið myndi verða milli hans og Nixons, — en „ef ég yrði að velja milli Nixons og Mc- Carthys mundi ég án vafa velja McCarthy". Humphrey sagði, að vegna stööu sinnar sem varaforseta gæti hann ekki skýrt afstöðu sína til Víet- hammálsins, meðan það Væri til umræðú á friöarráöstéfnunni i Par- ís, að öðru leyti en því, að hann óskaði heiðarlegrar, stjórnmálalegr- ar lausnar, Og hann kvaðst þeirrar trúar, að samkomulag mundi nást við samningaborðið. júnístyrjaldarinnar. Eban kvað þess engin merki hafa sézt áöur, að Nasser forseti vildi fallast á, að gæzlulið frá Samein- uöu þjóðunum yrði sent til landsins. Seinasta stúdenta- virkið ffallið Franska lögreglan hóf í morgun aðgerðir til þess að hrekja Parísar- stúdenta úr seinasta virki þeirra í Sorbonneháskóia, — læknadeild- inni. Lokað var öllum götum i grennd við háskólann. Seinni fregn hermir, að aðgerð- irnar hafi tekiö 55 mínútur. Seytján stúdentar voru handteknjr, þar af 4 stúlkur. Lögreglan dró niður rauða fána. Sambandsstjórn Nígeriu leyfir lyfja- og matvæla■ flutninga til Biafra — Birtir um jbað 15.000 dollara auglýsinu i New York Times D Sambandsstjórn Nígeríu i Lag- os hefur tilkynnt, að hún muni leyfa Alþjóða Rauöa krossinum og öðrum óháöum mannúðarstofnun- um, að flytja Iyf, hjúkrunarvörur, matvæli og aðrar brýnustu nauð- synjar yfir landamæri og víglínur sambandsríkisins til fólksins, sem býr við skort í Biafra. Fregnin um þetta er frá New York, þar sem tilkynningin var birt. Samtímis ásakaöi sambands- stjórnin eða stjórn Gowons ofursta, leiðtoga Biafra fyrir aö slá á strengi mannúöar til þess aö ota sínum tota. (Þar áður hafði Ojukwu leið- togi Biafra sakað Gowon um að beita hótunum um að skjóta niður leiguflugvélar mannúðarstofnana.) Tilkjmningin var birt í auglýsing- arformi, samtals 8000 orða, og er fyrirsögnin „Borgarastyrjöldin í Nígeríu — leiðin út úr henni“. í auglýsingu segir, að sambands- stjórnin birti hana bandarísku þjóð- inni til glöggvunar, svo að hún geti betur gert sér grein fyrir málun- um. Það var aðalræðismaður Nígeríu í New York, sem setti auglýsinguna í blaðið. Birting hennar kostaöi 15.000 dollara. í auglýsingunni segir, að ekki sé hægt aö stööva efnahagslegar að- gerðir gegn Biafra, fyrr en uppreist- inni sé lokið, og væru slíkar að- gerðir því miður nauðsynlegur þátt- ur til stuönings hernaðarlegum að- gerðum i hvaða styrjöld sem væri. Loks hvetur sambandsstjómin alla vini Nígeríu til þess aö tala um fyrir leiðtogum Biafra og fá þá til að sameinast aftur Nígeríu — eng- in önnur leið sé til úr vandanum. Harðnandi deilur um framtíB WH- sons vegna lausnarbeiíni Gunters Um þessar mundir er mikið rætt um framtíð Harolds Wil- sons forsætisráðherra Bretlands sem stjómmálamanns, enn meira en áður, eftir að Gunter kvaðst ekki lengur vilja eiga sæti í stjórn hans og baðst lausnar. Er framkoma Gunters mjög umdeild, einkum vegna þess hve berorður hann var um ákvörðun sína, en bréf hans til Wilsons varð ekki misskilið. Hann vildi ekki lengur eiga sæti i stjórninni — var „búinn að fá nóg“. En framtíð Wilsons hefir raunar verið rædd allmikiö viö og vi* um margra mánaða skeið eða síðan flokkurinn fór að tapa hverju kjördæminu af öðru í aukakosningum. Lausnarbeiðni Gunters hafði að sjálfsögöu þau áhrif, að staða Wilsons veiktist enn að mun, en einnig gætir áhrif- anna af því, að sýnilegra áhrifa af öllum viðreisnar- og efna- hagsaðgerðum stjórnarinnar gætir lítið. Þetta kom m. a. fram í skýrslu þeirri, sem- Eng- landsbanki birti í lok fyrra mánaöar um gull- og dollara- inneign. En skýrslan sýndi, að í þriðja sinn á þessu ári minnk- aði gjaldeyrisforðinn. I júni minnkuðu gullbirgðirnar um 200 millj. punda og allur gjald- eyrisvarasjóðurinn var talinn vera 1118 milljónir punda. Það er alkunna, að Englands- banki gerir ekki neina grein fyrir sumum liðum, svo sem hvernig notuð eru skilyröi þau er Bretland hefir til þess að taka lán til stutts tíma gjald- miðlinum til styrktar, og er þvi hætt við, þegar gjaldeyrisforð- inn fer minnkandi, að þau auki á bölsýni manna um bata á síðasta fjórðungi ársins. Meiri umhugsun vekur og viöræður það, sem menn hafa fyrir augunum daglega — Vítur vofa yfir Gunter Nefnd þingflokks brezkra jafnaðarmanna, sem er tengiliður ríkisstjórnarinnar og þingflokksins og hefur vald til þess að víta þingmenn flokksins fyrir óflokkslega framkomu, héfur boðað Ray Gunter fyrrverandi ráðherra á sinn fund, vegna gagnrýni hans á Wilson og stjórnina í tveimur útvarps- og sjónvarpsþáttum. Undir myndinni, sem hér birtist, var þessi tilvitnun úr lausnarbeiðni Gunters: „Ég vil ekki lengur eiga sæti í stjórn yðar“. - og þá fyrst og fremst út í hvaöa ófæru Wilson er kominn vegna stöðugs oröróms um klofning í ríkisstjórninni og hina alkunnu andspyrnu gegn honum í Verklýðsflokknum. Ray Gunter gerði ekkert til þess að draga úr óróa manna. í útvarpsviðtali gerði hann grein fyrir hverjar væru megin- orsakirnar fyrir lausnarbeiðni hans: „Þaö er enginn raunverulegur samhugur uppi „á tindinum" á vettvangi ríkisstjórnarinnar og vindar skiptra skoöana næða þar. Allt þetta hefir valdið ó- ánægju minni vegna þeirrar hættu, sem í því felst fyrir verkalýðshreyfinguna". Viðtalið sýndi augljóslega, og það er mikilvægast, að Gunter ætlar sér ekki aö þegja, þótt hann fari úr ríkisstjórninni, um það sem hann telur miöur gott, að því er varðar stjórn Wilsons. Og ekki vantar „vel meint“ ráð einstakra stjðrnmálamanna og blaða um hvaö gera skuli. í ritstjórnargrein í Times segir, að vitnnlega sé ekki hægt að þvinga Wilson til þess að segja af sér, vilji hann það ekki sjálfur, en hann ætti, segir blað- ið að láta af formennsku Verka- lýðsflpl{ksins, en þaö er þing- flokkúrinn sem kýs formann. Wilson. Takist Wilson að hafa undir- tökin í deilum í þingflokknum er engin leiö önnúr en láta hann halda áfram. Vert er að hafa í huga, aö mikilvægast virðist, þegar um líkurnar fyrir, að þettg mál leysist, aö Wilson vill sitja sem fastast, og — að eining er ekki um eftirmann hans. En ljóst er, aö eitthvaö hlýt- ur að gerast — og mun gerast — áður en landsfundur flokks- ins kemur saman í september. Bíði hann ósigur þar í átök- um viö Samband verkalýðsfé- laganna þar eru litlar líkur á, að hann beri sitt barr eftir það stjórnmálalega. Óvissan er mikil, en eitt er víst: Ágreiningur er mikill og átök innan flokksins (Or Lund- ( únapistlum til Norðurlanda- 1 blaða). J

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.