Vísir


Vísir - 09.07.1968, Qupperneq 1

Vísir - 09.07.1968, Qupperneq 1
 58. árg. — Þriðjudagur 9^ júlí Sterk íslenzk skáksveit á al- þjóðamót stúdenta Aðra nótt heldur íslenzk sveit utan til keppni á alþjóðaskákmót stúd-; enta, sem fram fer í bænum Ybs við Rín í Þýzkalandi. Alþjóðasam- band stúdenta sér um þetta mót undir verndarvæng Alþjóða skák- sambandsins og það er Félag há- skólastúdenta ásamt Skáksambandi íslands, sem sendir þessa sveit ut- an en skákmennimir hafa aö und- anfömu æft sig fyrir þetta mót i húsakynnum Skáksambandsins. Sveitin sem heldur utan aðra nótt stúdentaskákmótið er skip- uð okkar sterkustu skákmönnum úr hópi hinna yngri en þeir eru: Guðmundur Sigurjónsson, sem tefl- ir á 1. borði, Bragi Kristjánsson á 2. borði, Haukur Angantýsson á 3. borði, Björgvin Víglundsson á 4. borði og varamenn eru Jón Hálfdánarson og Björn Theódórs- son. Þessir ungu. skákmenn hafa staðið sig mjög vel í mótum að undanförnu. — Guðmundur er sem kunnugt er skákmeistari íslands í ár og á góöa von í alþjóðlegum skákmeistaratitli. Bragði er skák- meistari Reykjavíkur frá í vetur og Haukur varö annar á Skákþingi íslands í vetur á eftir Guðmundi Sigurjónssyni. Binda menn talsverðar vonir við þessa sveit, en samkeppnin veröur erfið þar sem saman koma sveitir frá 24 þjóðum, og er það meiri þátttaka en á síðasta skákmöti. Víða í borginni má fær að nýta heyið? sjáum við einn þeirra, en spurningin er nú, hver Samvinnu ýmissa aðila þarf til að verka og safna heyinu saman. segir búnaðarmálastióri — Reykviskir fjár- og hrossaeigendur telja borgarlandið þegar fullnýtt fyrir bústofn þeirra □ Ef samkomulag næðist milli hinna ýmsu aðila, sem hagsmuna eiga að gæta, um nýtingu þurrheys af graslendi innan borgarmarka Reykja- víkur, yrði það afar auðvelt að koma því í framkvæmd, sagði Halldór Pálsson, búnað- armáiastjóri í viðtali við VÍSI í morgun, er blaðið sneri sér til hans vegna þeirra blaða- skrifa og umræðna, sem um þetta mál hafa orðið. Hann sagði, að búast mætti við, að ekki yrði nema kostnaðurinn einn, ef Búnaðarfélagið færi af stað á eigin spýtur, bví að öll tæki og hlöðupláss vant- aði. Hins vegar væri annað uppi á teningnum, ef þeir sem hafa yfir tækjum að ráða, kæmu sér sam- an um að vinna þetta verk. Ef þeir, sem gætu safnaö heyinu saman af blettum hjá fólki, sem áhuga hefði, vildu taka þetta að sér í kvöldvinnu, og næðu samvinnu við þá, sem gætu verk að og geymt heyið, þá yrðu mik- ið not af þessu heyi. Þá hefur blaðiö fengið hring- ingar frá hrossa- og fjáreigend- um í borginni, sem telja það af og frá að fara að nýta heyið á þennan máta. Segja þeir, að graslendi innan borgartakmarka Reykjavíkur sé þegar fullnýtt af borgurum, sem stundi búskap i hjáverkum, og þeir hefðu sið- feröilegan rétt tii að nýta og verka heyiö fyrir sínar skepnur. Kváðu ýmsir aðilar þetta ein- róma álit þeirra, sem hér ættu hlut að máli. Orlofsheimilin eru mjög vistleg og skemmtilega innréttuð, Dr. Kristján Eldjárn og frú viðstödd brúðkaup Haralds krónprins — Fékkst ekki staðfest á skrifstofu forseta Islands i morgun ■ í norska blaðinu Handels- og | sjöfartstidende 6. júlí er skýrt frá | því að næsti forseti íslands, dr. ! Kristján Eldjárn og frú hans muni j verða viðstödd brúðkaup Haralds j krónprins Noregs og Soniu Har- | aldsen, en brúðkaupið fer fram i i Osló 29. ágúst n.k. Frétt þessi ! fékkst þvi miður ekki staðfest i ' morgun, þar sem skrifstofa forseta i íslands svarar ekki fyrir dr. Kristj- án Eldjárn, sem tekur vlð embætti 1. ágúst, að því er skrifstofan upp- j »-> 10 siðu ! Siglfirðingur með 70 tonn Á Siglufirði var landað í gær tæpum 70 tonnum úr togaranum Siglfirðing, sem kom á laugardag- inn, en um helgina hefur ekkert verið unnið í ishúsinu vegna af- mælishátiðarinnar, Togbáturinn fór út á miðin í gær. „Við náðum að klára það, sem fyrir var, áður en við gerðum hlé yfir helgina. Tókum bara af Hring þarna átta tonn, sem við byrjuðum á til vinnslu í gær,“ sagði Björn Friðbjarnarson, verkstjóri, í sam- tali við VÍSI í morgun. „Hafið þið haft undan?“ > 10 cf*a Orlofsheimili Alþýðusambands Norðurlands tekin í notkun — Þrjú hús þegar — 15 reist i □ Á laugardag voru tekin í notkun fyrstu þrjú orlofshús Alþýðusambands Norður- lands að Illugastöðum í Fnjóskadal, af 15 húsum alls, sem reist verða í bessum á- fanga framkvæmdanna að IHugastöðum. Gert er ráð fyr- ir, að hvert hús, sem er 58 tekin i notkun, 1. áfanga fermetrar að stærð, byggt úr timbri með verönd, stóra stofu og 3 svefnherbergi, eld- húsi, snyrtiherbergi og baði, kosti náiægt V2 milljón króna fullgert með innbúi, en hiisin eru í eigu verkalýðsfélaganna á Norðurlandi. Framkvæmdir við bvggingu húsanna hófust fvrir um 13 mán uðum, og eins og fyrr greinir voru 3 hús tekin í notk- un á laugardag, og grunnar eru tilbúnir fyrir tvö hús til viöbót- ar. Það var Alþýðusamband Norð urlands, sem festi kaup á jörð- inni Illugastöðum með þaö fyrir augum að reisa þar orlofsheim- ili. Jörðin er 12-15 km sunrfan við Fnjóskárbrú við Vaglaskóg, m-> 10. siða s

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.