Vísir - 10.07.1968, Page 5

Vísir - 10.07.1968, Page 5
VlSIR . Mlðvikudagur 10. júlí 1968. 5 ^KVEHKISft FILMUR QC VELAR S.F. Ovinsælar vörur—óvin- sælir framleiðendur 9S-ÍIFRAMKÖLIUN- „KOPIERIN ST SVART HVITT & LITFIIMUR — að hvaða leyti stendur islenzk vara að baki erlendri? Tjaö lítur ekki út fyrir það, aö ísienzkir matvælaframleið- endur hafi nokkru sinni spurt sjálfa sig að því hvers vegna Is lenzkar húsmæður vilja oft á tíð um erlendan framleiðsluvarning fremur en hinn íslenzka. Pessa ályktun dregur Kvennasíðan af einni verzlunarferð fyrir skömmu. Sýndi hún þaö betur en nokkur orð að hvaða leyti ;ís lenzkur varningur getur staðið langt að baki erlendum. Þjón- usta við neytendur virðist nefni lega vera hulin ráðgáta þeim mönmmi, sem þó mest berjast fyrir framgangi og sölu sinnar vöru. Troðfull hilla með girnileg- ustu vörum blasir við kaupand- anum. Hann tekur upp dósir, krukkur, sem geyma þessa eöa hina vöruna og ætlar að bera saman þyngd og verðlag. Hvað er eðlilegra en það að kaupand inn vilji gera sem bezt kaup. En hann rekur í rogastanz, á ís- lenzkan varning vantar undan- tekningalítið alla þyngdarmerk ingu, hvað þá að getið sé um þvngd vökvainnihalds á móti þyngd fastainnihalds, sykur- magn, samsetningu o. fl. Þetta er nógu alvarlegur galli á vöru tfl þess að húsmóðirin hugsi sig vel um áður en hún ræðst til kaupa á henni. Ekki sízt, þegar hún hefur aðgang aö sams kon- ar vöru þar sem gefnar eru upp nákvæmar upplýsingar um innihald íláts, sem varan er geymd I. Hvort varan sé ekta I gegn eða notuð séu gerviefni vökvaþyngdin gefin upp þannig að hún sér hversu mikið magn ílátið geymir af vörunni, sem hún sækist eftir. Þessu sleifarlagi og sveita- mennsku íslenzks iðnaðar verð ur að kippa sem fyrst f lag. Ef framleiðendurnir sjálfir sjá sér ekki hag £ því að setja þyngdar merkingu á framleiðslu sína þar sem hennar er þörf, verður að gríp- til annarra ráða, neyt andanum til vamar og öll erum við neytendur — en það er laga setning, sem skyldar framleið- andann til þyngdarmerkingar- innar. En tökum nú nokkur dæmi úr verzlunarferðinni. Hið fyrsta er Kvennasíðan rak augun I var krukka með jarðarberjasultu. Utan á stóð Jarðarberjasulta og nafn fyrirtækisins, ekkert meir. Hvergi var getið um innihald krukkunnar að öðru leyti. Við gengum á röðina og sömu sögu var að segja, íslenzku umbúðirn ar gátu ekki um þyngd né inni- hald. Öðru máli skipti um þær erlendu. Þar var undantekninga- laust getið um þyngd — í grömmum og ýmsar fleiri upp- lýsingar var þar að finna. Við athuguðum fleiri vörur, sama sagan endurtók sig aö mestu. Það eina sem gefið var upp, voru leiðbeiningar um Um margt er að velja í matvörubúðunum. matreiðslu viðkomandi rétta. Einu framleiðendurnir, sem við rákum augun I að höfðu merkt vöru sína þyngdarmerkingu voru Mjólkursamlag K. Þ. á Húsavík, en pappaöskjurnar þaö an voru merktar — Mysuostur 250 gr. — S. R. Siglufirði, sem merkti Sigló-síldina með fom- legri enskri þyngdarmerkingu 7 oz, (áður en langt um líður taka Bretar upp sama þyngdar- kerfi og aðrar þjóðir — mefra- og kílómælieininguna), og fyrir tæki Kristján Jónssonar & Co. á Akureyri. Dagsetningarstimpilinn vant- aöi alveg. Því ætlazt er til að húsmóðirin geti átt það á hættu að kaupa vöru sem Iiggur undir skemmdum ef ekki þegar skemmd af aldri í búðinni. Fram leiðendur Camemberts-ostsins láta leiðbeiningar um gerjun hans fylgja sinni vöru en hvem ig f ósköpunum á húsmóðirin eða neytandinn aö finna það út á hvaða stigi osturinn er þegar hann kaupir hann f búðinni? Á öðrum ostum, áleggi, salötum o. s. frv. var hvergi um það get- ið hvort varan væri ný, myndi endast til þessa tiltekna dags eða hort hún væri komin fram yfir það aldursskeið að hún væri hæf sem mannamatur. Erindi Kvennasíðunnar tók sem sé allt aðra stefnu en upp haflega var hugsað, að bera saman þyngd og verö, en þó gerði hún smákönnun á hun- angi. Kaupið vel inn og með um hugsun, ef þið ætlið að spara. I þessari verzlun var mikið úr- val hunangs frá ýmsum löndum. Yfirleitt var þyngdin gefin upp sem 450 gr. verðlagið var hins vegar mjög misjafnt. Lægsta verð var 39.40 en það hæsta 54.00. Það kom í ljós að ílát með helmingi minna innihaldi voru dýrari og gildir það um allar aðrar vörur, að því smærra sem ílátið er og minna innihald, er varan að sama skapi dýrari. Þar er um að kenna umbúðakostn- aði f flestum tilfellum og eflaust gróöasjónarmiöi framleiðandans einnig. Önnur ráðlegging til neytand- ans er þessi: Látið ekki lögun umbúða t.d. utan um þvottaefni leika á ykkur. Athugið vel áður en keypt er hvaða umbúðir inni halda í raun og sannleika mest innihald. Þegar um erlenda vöru er að ræða athugið hvort ekki ;sé gefið upp innihald f grömm- um. FILMKJR OG VELAR S.F SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 SÍMI 20235 - BOX 995 K.S.Í. Í.S.Í. Laugardabvöllur Norðurlondamót unglinga í knattspyrnu heldur áfram í kvöld miðviku- daginn 10. júlí og hefst kl. 7 síðdegis þá leika DANMÖRK - PÓLLAND Dómari Rafn Hjaltalín. Strax að leik loknum hefst leikur milli íslendinga og Norðntanna Dómari Guðjón Finnbogason. Verð aðgöngumiða: barnamiðar kr. 25.— stúkusæti kr. 100.— og gilda miðarnir á báða leikina.. Komið og sjáið spennandi keppni. Knattspymusamband fslands. Iðnskólinn í Reykjavík óskar að kaupa tæki til verklegrar kennslu fyrir málmiðnaðar-nema, svo sem hér segir: rennibekki, (litla) rafsuðuvélar, hefil, borvél, fræsivél og vélsög. Nánari upplýsingar fást í skrifstofu skólans næstu daga. Tilboð óskast send skólanum fjnrir næstu mánaðamót. Skólastjóri. ÝMISLEGT ÝMISLEGT Tökum að okkur hvers konai múrbroi og sprengivinnu i húsgrunnum og ræs um. Leigjum út ioftpressur og víbre sleða Vélaleiga Steindórs Sighvats sonaj Alfabrekki. við Suðurlands braut, slmf 30435

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.