Vísir - 10.07.1968, Blaðsíða 7

Vísir - 10.07.1968, Blaðsíða 7
Vi si R . MToviKuaagur ro. jun í9bs, 7 morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í raorgun útlönd Couvé de Murville forsætisráðherra Frakklands, en Pompidou í ónáð hjá de Gaulle forseta? í NTB-frétt frá París í gær er það faáfft eftir áreiðanlegum heim ildum, að Couvé de Murville veröi fyrir vali de Gaulle sem forsætis ráðherra, en ekki Pompidou, sem til skamms tíma var örugglega talinn forsetaefni og jafnvel arf- taki de Gáulle sem þjóðarleiðtogi. Couvé de Murville, sem var utan ríkisráðherra, og efnahags- og fjár málaráöherra fyrir skemmstu, er nokkrar breytingar voru gerðar á skipan stjórnarinnar, og tók Debray við utanríkisráðherraembættinu sem kunnugt er. Breytingin var af- leiöing stjómarkreppu sem kom til út af stúdentaóeirðunum og verk föllunum. Haase dæmdur í 5 missera fangelsi Héraðsrétturinn í Lyngby felldi í gær dóm yfir þýzka verkfræðingn um Holm Gustav Haase. Hann var sekur fundinn um ,,ó- leyfilega upplýsingastarfsemi" seg ir í NTB-frétt og hlaut tveggja ára og misseris fangelsisvist. Haase kvaðst hlíta dómsúrskurð inum. Rétturinn tók tillit til þess að starfsemi hans hafði ekki orðið til tjóns „dönskum hagsmunum“. James Earl Ray fyrir rétti í gær Fangelsisvistin framlengd um vikutima Biafm hafnar brezkri oðs/oð James Earl Ray, sem er sakaður um morðið á dr. Martin Luther Iiing, bandaríska blökkumannaleið toganum og Nobelsverðlaunahafan um, var leiddur fyrir yfirheyrslu- réttinn í Bow Street í London f Leiðtogar Biafra segjast ekki vilja þiggja brezka aðstoð, nema brezka stjórnin banni alla vopna- sölu til Nígeríu. Miklir erfiðleikar eru á úthlutun matvæla. Þannig' er sagt, að í Bi- afra hafi flestir eftirlifandi af um 100.000 flóttamönnum flúið inn í frumskógana, og sé erfitt að leita fólkið þar uppi til þess að hjálpa bví. Af fyrrnefndum 100.000 eða þar um bil er ekki vitað nánara um nema' 3000 nú. gær. Réttarhaldið stóð aðeins eina mínútu. Lesinn var úrskuröur um að fangelsisvist hans skyldi fram lengd um eina viku. Áfrýjunarbeiðni James Earl Ray gegn úrskurðinum um, aö hann skyldi framseidur tii Bandaríkjanna hefur ekki enn verið tekin fyrir. Þá er ákæra á hendur honum fyrir aö hafa komið til landsins á fölsku vegabréfi og verður það mál afgreitt fyrir rétti í London. Blökkúkona forsetaefni bandarískra kommúnista Kommúnistaflokkur Bandaríkj- anna hefur valið blökkukonu for- sitt. Hún er frú Carlene Mitchell, Harlem, New York, og varaforseta- efni Michael Zagarelli, en hann neitaði að svara kalli til herþjón- ustu og verður mál hans brátt tek- ið fyrir í rétti. Frú Mitchell flutt- ist til Harlem frá Los Angeles fyr- ir 3 mánuðum. Couvé de Murville varð utanrík isráðherra 1958 og gegndi því em bætti þar til í maí s.l. Hánn er 61 árs. L/o virðist sem Pompidou hafi falliö í ónáð hjá de Gaulle forseta en nánari fregnir eru ekki enn fyrir hendi um það, nema að de Gaulle hafi ráölagt honum aö segja af sér er mest .á gekk á meöan á óeirð- um og verkföllum stóð. Pompidou er 57 ára. Heimildamenn þeir sem NTB styðst við, vísa á bug öllum tilgát- um um, að Pompidou eigi að fá mikilvægt embætti, til þess að tryggja aöstööu hans til þess að taka við af de Gaulle. Þá er Pompi dou sagður hafa verið ósammála de Gaulle um mikilvæg mái, svo sem auknum réttindum verkamanna til hiutdeildar í rekstri og arði iðn- fyrirtækja Pompidou varð forsætis ráðherra fyrst 14. apríl 1962: Á 6 árum hefir hann verið forsætisráð herra fimm ríkisstjórna. París í morgun: 1 dag er búizt við opinberri tilkynningu um aö Couvé de Murville f jármálaráðherra verði falin myndun nýrrar rfkis- stjórnar í stað stjórnar Pompidous, sem starfað hefur sem bráðabirgða- stjórn frá því kosningum iauk. Pompidou staðfesti í gær í viö- tali viö þingmenn, sem eru meðal nánustu samstarfsmanna hans, að Couyé de Murviiie ætti aö taka við forsætisráöherraembættinu. Stuön- ingsmenn Pompidou ýmsir eru sár- gramir yfir, aö honum var ekki fal- in stjómarmyndun, þar sem þeir telja hann eiga mestan þátt í hin- um mikla kosningasigri á dögun- Couvé de Murville. Jafnframt minnti fréttaritarinn á, að hins nýja forsætisráðherra biðu mál erfið úrlausnar, einkum efna- hagsiegs eðlis, og tengd Efnahags- bandalaginu, en Couvé de Murville væri manna hæfastur til þess aö glíma viö slík mái. Æfingalið Varsjárbanda- lags enn í Tékkóslóvakíu 11 d'ógum eftir oð heræfingum lauk ■ Landvarnaráöherra Tékkó- slóvakíu sagöi í gær, aö % her- afla Varsjárbandalagsins, sein þangaö kom til æfinga, væri þar enn, þrátt fyrir, að æfingunum lauk opinberlega fyrir rúmlega 10 dögum. Hann kvaöst hafa beöið sov- ézka yfirhershöföingjann um að flytja liöið burt, og myndi það veröa gert. í Tékkóslóvakíu hefur gaett nokkurs ótta við, að einhver hluti liðsins verði haföur áfram í landinu til þess að hafa áhrif ''sem hemill á þeirri stefnu, sem tekin hefur verið í átt til aukins frjálsræðis. ■ Á fundi miðstjórnar kommún- istaflokksins var samþykkt að taka ekki boöi um þátttöku í toppfundi kommúnistaríkjanha í Varsjá um þróunina í landinu. Allmiklar deilur voru um málið á fundinum. Urð þar sem Khe Sahn varnarsföðin var Khe Sahn varnarstöðin fræga í Suður-Víetnam skammt sunnan afvopnuðu spildunnar svo nefndu hefur nú verið jöfnuð við jörðu og er þar nú urð ein. Myndin er af hermönnum, sem eru að ryðja þar burt sandpokavirkjum og öðrum skotbyrgjum. - Bandaríkjamenn vörðust þar í 77 daga. Liðið er nú á leið til annarra stöðva, þar sem meiri þörf er fyrir það, en hefur orðið fyrir árásum Norður-Víetnama og talsvert manntjón orðið í liði beggja. í gær bárust fréttir um, að Bandaríkjamenn hefðu fellt 85 Norður-Víetnama, en misst fáa menn fallna, en margir tugir bandarískra hermanna særðust.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.