Vísir - 10.07.1968, Blaðsíða 16
VISIR
Miðvikudagur 10. júlí 1968.
3 ára drengs leitað,
sem svaff á nteðan
værum svefni
Töluverð leit var gerð að þriggja
og hálfs árs gömlum bandarískum
dreng á Keflavíkurflugvelli á sunnu
dagskvöld. Hans hafið verið sakn-
að að heiman kl. 8 um kvöldið
og kom hann ekki fram fyrr en
kl. 1 eftir miönætti. Litli snáðinn
hafði þó aldrei farið langt aö
heiman, heldur haldið sig i geymslu
í nassta húsi við heimili sitt. Þar
hafði honum runnið i brjóst og
hafði hann ekki vaknað fyrr en
um nóttina.
1112 FARÞEGAR MEÐ FLUGVÉL-
INNITIL SAUÐÁRKRÓKS
— Um 120 þúsund gönguseiðum sleppt í vor i laxveibiár
¦ Það voru 12 farþegar
skráðir með flugvél F.í. til
Sauðárkróks í gær, en þó
voru þeir 1100 betur. Þessi
1100 óskráðu farþegar voru
gönguseiði úr Laxeldisstöð
rikisins í Kollafirði, sem ver-
ið var að flytja norður í Sæm-
undará í Skagafirði.
¦ Mikill fjöldi laxaseiða
hefur verið fluttur með flug-
vélum á þessu vori út um
Iand allt Ura 60 þús. göngu-
seiði hafa verið flutt frá Lax-
eldisstöð rfkisins, en að því
er veiðimálastjóri, Þ6r Guð-
jónsson, sagði Visi mun láta
nærri að 120 þúsund
gönguseiðum hafi verið
sleppt niður á þessu sumri.
Eru þá meðtalin seiði úr upp-
eldisstöðvum ýmissa ein-
staklinga, en margar þeirra
hafa verið reknar af miklum
myndarbrag.
Á þessum tíma er vanalega
búið að sleppa niður flestum
gönguseiöum, en vegna kuld-
anna f vor hefur ekki verið
sleppt niöur nema takmörkuö-
um fjölda á Norðausturlandi og
víðar þar sem miklir kuldar
voru. Þá hefur verið dregið þar
til nú að sleppa niður seiðum
í Húnavatnssýsluárnar, meöan
beðið hefur verið eftir að ísinn
færi.
Mestum fjölda seiðanna var
sieppt niður í Elliðaárnar' eða
um 18 þús. seiðum.
Af ám, sem sleppt hefur ver-
ið niöur í f vor má nefna Laxá
f Kjós, Dælisá í Kjós, Norðurá,
Gljúfurá, ýmsar ár á Snæfells-
nesi, Miöfjarðará bíður, Hörgsá
í Eyjafirði, Hofsá og Vestur-
dalsá í Vopnafirði, Breiðdalsá,
Skógará og margar fleiri.
Flugbjörgunarsveitin tekur þátt í
heræfingum brezkra fallhlífamanna
200 manna hópur úr brezka flughernum
verbur hér við æfingar i júlilok
I urður M. Þorsteinsson, formaður
I Flugbjörgunarsveitarinnar, þegar
| Visiii innti hann eftir hlutdeild ,
sveitarinnar f heræfingum 200'
Okkur hefur veriö boðið að j hérmannanna og auðvitað þaðum i brezkra fallhlífastökksmanria :
fylgjast með æfingum brezku við það með þökkum, sagði Sig-1 úr flughernum, sem hafa fengið \
leyfi til bess að æfa hér í námunda i
við Keflavíkurflugvöll síðustu viku ;
júlímánaðar. s i
Hér eru aöstæður allar slíkar,
aö vart veröur fundinn ákjósan-
legri staður til þess að veita mönn
um sem fjölbreytilegastar æfingar
í fallhlífarstökki, en hópur sá, sem ;
hir.gað kemur, er Ur sveit, sem
nefnist First Parachute Brigade og '
er talin standa mjög framarlega í i
flokki fallhlífarstökkshermanna.
„Okkur leikur nú líka mikill |
hugur á þvi, aö kynnast björgun-1
artækni þeirra, en herinn er ávallt I
vel út búinn af björgunartækjum", j
sagði Siöurður. Flugbjörgunarsveit-
armenn eiga einnig að vera þessum
Mr>- 10 siðu
Slys í morgun
Umferðarslys varð á horni Fells
múla og Grensásvegar í morgun, er
tvær bifreiðar rákust þar á. öku-
maður og farþ'egi annarrar bifreið-
arinnar slösuðust allmikið, en mik-
ið tión varð á báðum ökutækjun-
um..
Áreksturinn varð með þeim hætti
að bifreið var ekið niður Fellsmúla
að Grensásvegi. Ætlaði ökumaður
hennar auðsjáanlega að stöðva á
miðeyjunni, sem skiptir Grensás-
vegi í tyær akbrautir, því annarri
bifreið, af Volkswagen-gerð var ek
ið noröur Grensásveg. Skipti það
engum togum, að bifreiðarnar rák-
ust þarna saman á allmikilli ferð.
Er hallazt að því, að hemlar bif-
reiðarinnar, sem ók Fellsmúlann
hafi bilað. Ökumaður Volkswagen
bifreiðarinnar viðbeinsbrotnaði auk
þess sem hann slasaðist meira, og
farþegi i bifreiðinni skarst í andliti.
Mikið tjón varö á báðum bifreiðun-
um.
Laxaseiðin eru flutt í plastpokum og er dælt súrefni i pokana
auk vatnsins.
Landsmótið hefst
á laugardaginn
Rædumaöurinn kemur frá Danmörku
Tjörnin hkt
1 Ymiss konar hirðing borgarlandsins fer nú fram á veg-
um borgarinnar. Tjörnin er þar ekki undanskilin, lagfærðir
oru bakkar, tínt upp spýtnabrak og leifar gamals brauðs,
sem velviljaðir borgarar hafa gefið íbúum Tjarnarinnar, en
þeir ekki nýtt að fullu. Allur gróður er þó látinn í friði, enda
fæða fuglanna, en t. d. álftirnar lifa mikið á nykrum, sem
er ein tegund sefgróðursins í Tjörninni. Myndina tók ljósm.
blaösins í gær, niéðan lagaðir voru bakkar Tjarnarinnar.
Sfolið af
þvottasnúrum
Eitthvað hefur hann verið fata-
lítíll, þjófurinn sem stal þvottinum
af snúru húsmóðurinnar á Vesturg.
16 A í gær, en hann komst þó ejíki
langt með þvottinn, þj,'í tveir af-
greiðslumenn hjá Anderson &
Lauth sáu til hans og kmiðu hann
til þess að láta þýfið laust. Voru
þetta einkuin skyrtur og svo annað
tau. Þjófurinn tók til fótanna og
var horfinn á bak og burt, þegar
iriorftí?lan kom á vettvang.
¦ Landsmót ungmennafélaganna
| á íslandi hefst á Eiðum n.k. Iaugar-
j dag. Mótsstaðurinn er öllum kunn-
I ur og sólin er nú farin að sýna
j sig á Austfjörðum, svo vonandi
verður hlýtt yfir mótssvæðinu, með
an íþróttir og önnur skemmtiatriði
fara fram. Aö vanda verður um
mjög vandaða fþróttadagskrá að
ræða og eflaust verður keppnin
mjög jöfn og hörð sem og endra-
nær." .
Það hefur vakið mikla athygli, að
Bjarni M. Gíslason rithöfundur í
Danmörku hefur lofað að halda há-
tiðarræðuna. Hann hefur verið 34
ár erlendis og er alkunnur ræðu-
maður á Norðurlöndumr og margan
mun fýsa að heyra hvernig hann
talar íslenzkuna eftir svo margra
ára útiveru. Hann verður heiðurs-
aestur mótsins og er boöið hin;;að
•U' Ungmennafélagi fslands.
IVtótiiS wm standa í tvo daga oy,
¦¦* he.':J*. •* þar verði keppt í
öDum eréinum íbrntta. sem Islend-
ingar stunda. Mikið hefur verið til
mótsins vandað og ekki að efa að
það tekst vel að vanda.
Heiðursgestur mótsins,
Biarni M. Gís'as<Mi rlthöfundjir-