Vísir - 24.07.1968, Qupperneq 1
handtöku diplomata
í framhaldi af frétt Visis í gær
um handtöku fransks sendiráös-
starfsmanns vegna gruns um ölvun
viö akstur, sneri Vísir sér l morgun
til utanrikisráðuneytisins og spurö-
ist fyrir um rétt sendiráðsmanna er-
lendra umfram rétt almennra borg-
•'ra f slfkum tilfellum.
Bjami Guðmundsson, blaðafull-
trúi utanrikisráðuneytisins sagði,
að þeir nytu svokallaðrar almennr-
ar friðhelgi, sem væri frábrugðin
friðhelgi venjulegra borgara að þvf
leyti, að handtaka væri þvf aðeins
heimil. að viðkomandi væri stað-
inn að verki. Ef um grun væri að
ræða, þyrfti leyfi yfirmanns við-
komandi sendiráðs til handtökunn-
ar. Hér væri um að ræða svipaða
friðhelgi og alþingismenn nytu.
Róttækar
9
breytingar á
t Fiskmati ríkisins
; Um þessar mundir eru í undir
búningi róttækar breytingar á
Jfiskimati rfkisins og eru þær
► ráðstafanir geröar í beinu fram-
-haldi af spamaðaráætlun rikis-
* 5tiórnarinnar. Er meöal annars
f athugun að sameina fiskmat-
ið og freðfiskmatið.
J Er hér um ýmsar hagræðing-
arráðstafanir að ræða, sem
spara munu mannafla og kostn-
að við fiskmatið.
Sauðféð, sem sett var í gæzluvarðhald í Árbæjarhverfi í fyrrakvöld var fluti niður í Blesugróf í
^gær, þar sem lesið var úr mörkum. Eigendur sauðfjárins verða látnir koma þvi fyrir.
Sláturhúsin bíða
haust
borgarfjár-
ms 1
Borgaryfirv'óld gera gangskör oð jbv/ að
útrýma sauðfé úr borgarlandinu — Veita
ibúum Arbæjarhverfis úrlausn
Borgaryfirvöldin hyggjast nú
gripa til fullnægjandi ráðstafana
á komandi hausti til þess að út-
rýma sauðfjárhaldi í Reykjavík,
nema á þeim þrem bæjum í
borgarlandinu, þar sem það hef-
ur verið leyft. Þegar fénaður
kemur af fjalli f haust bfða
hans engin hús nema slátur-
húsin og Fjárborg verður rifin.
Var álitsgerð borgaryfirvald-
anna Iögð fram á borgarráðs-
fundi f gær, sem svar við end-
urteknuhi Tcvörtunum fbúa Ár-
bæjarhverfis um ágang sauðfjár
f garðlönd þeirra, eins og fram
hefur komið f fréttum yísis.
Var sagt frá því, m.a., að kostn-
aður við eftirlit sauðfjár og girðing
ar til að varna því aðgangi að garð
löndum hafi numið rúmri y2 millj-
ðn króna árlega undanfarin ár, og
er talið að kostnaðurinn muni
verða enn meiri á þessu ári.
I álitsgerðinni voru raktar þær
ráðstafanir borgaryfirvalda tl að
hamla ágangi sauðfjár á borgar-
landinu. Þann 10. sept 1963 var
samþykkt í borgarráði, að sauðfjár
haldi í borginni skyldi hætt. Þessi
ákvörðun var ítrekuð árið 1966 og
miðast þá bannið við sauðfjárhald
inu við 1. okt 1967. Þessar ákvarð-
anir hafa sauðfjáreigendur að meira
eða minna leyti virt að vettugi jafn
framt því sem banninu hefur ekki
veriö fylgt nægjanlega eftir, af við
komandi yfirvöldum. í sumar var
bannið enn ítrekað. Undanfarin ár
hefur Reykjavíkurborg haft einn
til þrjá menn á launum til
að hafa eftirlit meö og koma i
veg fvrir ágang sauðfjár í borgar-
landinu. Var eftirlitið framkvæmt
undir stjórn lögreglunnar. Sl. sum-
»->■ 10. síða
Kringlumýrarbrautin opnuð í haust
— Önnur akbrautin fullgerð frá
Borgartúni að Sléttuvegi
Ákveðið hefur nú verið, að mal-
úka aðra akbraut Kringlumýrar-
'rautar frá Sléttuvegi í Fossvogi
>g norður að Borgartúni í haust,
rð því er gatnamálastjóri, Ingi C.
Wagnússon sagði Vísi í morgun.
5agði Ingi, að Kringlumýrarbrautin
etti i framtiðinni að vera með tvi-
skiptri akbraut, hvorri um sig 7
metra breiðrl.
Upphaflega var ákveðið að mal-
bika í haust aðeins þann hluta
Kringlumýrarbrautar, sem liggur
milli Hamrahlíðar og Sléttuvegar
og þá fullgera báðar akbrautirnar
á þeim kafla, en frá því var horfið,
eins og fyrr greinir, og því ákveðið
að fullgera aðra akbrautina í haust
og fá því alla samgönguleiðina ak-
færa í haust.
Mikið verk og vandasamt er að
flytja hitaveitustokkinn niður fyrir
og undir götuna á kaflanum milli
Hamrahlíðar og Sléttuvegar. Sagði
Ingi, að það verk væri nú hafið og
búið að sprengja fyrir hitaveitu-
stokknum undir götuna, og hafið
undirbúningsstarf að sjálfum flutn-
ingnum.
Kardimommubær
og Stanleyville
flytja að ári
Hestaeigendur halda fund með borgar-
verkfræðingi / kvöld
Bækistöðvar hestamanna viö
Elliðaárnar, Stanleyville og Kardi-
mommubær, voru mjög í fréttum
á flóöatímanum í vetur. Nú hefur
hestaeigendum þar verið gert aö
færa hesthús sín til upp á hæð
eina skammt frá. Hesthúseigendur
á þessum stöðum eru að vonum
daufir í dálkinn yfir þessum úr-
skurði, en þó finnst þeim bót i
máli, að á nýja svæðinu fá þeir
leyfi fyrir húsum sinum og þurfa
ekki lengur að hafa áhyggjur af
Takmörkuð heimild til
i FJÖRUG VERZLUN MEÐ SALT OG
! TUNNUR Á MIÐUNUM I NÓTT
— Veiðin með bezta méti
■ í nótt fengu nokkur skip
góð síldarköst á miðun-
um austur við Bjarnarey og
var veiðin með allra bezta
móti, eða allt upp í 400 tonn
á skip. — Flest bíða skipin
eftir flutningaskipinu Síld-
inni, sem á skammt ófarið ð
miðin. Leiguskip Síldarútvegs
nefndar, Katharina kom á mið
in f nótt og pöntuðu nokkur
veiðiskipanna þegar tunnur
og salt þar um borS. Skip
þetta getur flutt 4500 tunnur
af saltsíld til Iands f hverri
ferð og mun Sfldarútvegs-
nefnd leigja fleiri skip til þess
arar þjónustu viö saltendur á
miðunum, ef áhugi er fyrir
hendi.
Elisabeth Hentzer, leiguskip
Valtýs Þorsteinssonar kemur
ur til Raufarhafnar í fyrramálið
með tæpar 4000 tunnur af salt-
aðri sild og verður henni um-
skipað á Raufarhöfn um borð f
Dísarfellið, sem flytur síldina
utan. — Verður því lítil vinna
við þennan síldarfarm á Raufar-
höfn, utan það sem kann aö
verða yfirfarið á söltunarstöð-
inni Norðursíld. Ekkert aðkomu-
fólk er nú á Raufarhöfn, sem
er mjög óvenjulegt um þennan
tíma en margt fólk gengur at-
vinnulaust á staðnum, einkum
konurnar.
Ákveðið hefur verið að greiða
sérstakan styrk til þeirra veiði-
skipa, eða móðurskipa, sem
flytja saltaða síld af fjarlæg- s
um miðum til lands og nemur
sá styrkur 130 kr. á tunnu. Sér-
stakri nefnd hefur auk þess ver-
ið falið að hafa yfirumsjón með i
síldarflutningunum.
Búizt er við að söltun veröi
10. síða
flóðahættu. ,
Þeir hafa fengið árs frest til að
flytja húsin, svo að þeir geta haft
hesta sína á sama stað og áður
nú í vetur. I kvöld hafa þeir boð
að fund, þar sem borgarverkfræð-
ingur mun mæta til þess að útskýra
þessi mál af hálfu borgarinnar.
Vísir átti í morgun tal við einn
þeirra manna, sem eiga hesta í
Kardmommubæ. Hann sagðist líta
svo á, aö þessi krafa um flutning
húsanna Væri fyrst og fremst kom
in til vegna þess að laxveiðimenn
teldu að frá húsunum gæti stafað
vatnsmengun, sem gæti orðið hættu
leg fyrir veiðar í Elliðaánum. Þessi
maður kvaðst ekki vita betur held
ur en laxveiði hefði verið gó
í ánum í sumar, svo að laxveiði-
mennirnir þyrftu varla aö hafa
horn í síöu hestamannanna.
Aö Öðru leyti var hann mjög
ánægður með framkomu borgaryfir
valda í þessu máli, og einkum
hrósaði hann áætlunum um hiö
nýja svæði, sem hestaeigendur fá
til umráða.