Alþýðublaðið - 04.06.1966, Side 4
smmM)
Rliítjör&r: Cylfl Grðndnl (íb.) og Benedlkt Grbndel. — Rlt»tí5m»rful!.
trfil: ElBur GuSnaaon. — Slmar: 14900-14803 - Auglýalngaalml: 1490*.
AOaetur AlþýBuhúaiB vlB Hverflsgötu. Reykjavlk. — PrentamlBja AlþýBu
bUBalna. — AakrUtargjald kr. 95.00 — 1 lausasölu kr. 5.00 elntaklO.
Utgefandl Alþýðuflokkurlnil.
TUNGUÐ
BANDARÍKJAMENN hafa enn unnið mikið ivís-
indalegt afrek með því að lenda „Surveyor“ geimfar
inu á tunglinu. Tókst lending þessi með ágætum og
telja kunnugir að maður hefði lifað hana af, ef um
mannað skip hefði verið að ræða.
:*á' í'*
Jf Fyrir nokkrum mánuðum lentu Sovétmenn
mu IX. á tunglinu og tókst það eftir allmargar til
raunir. Sú lending benti til þess, að yfirborð tungls
ins'væri hart, nothæft til lendinga og að þar væru
ekki gljúpir sandar, eins og áður var haldið. Ame-
ríkumenn hafa nú staðfest þetta og er niðurstað
an ekki aðeins sú, að fólk hefur setið við sjónvarps
tæki og horft á beinar sendingar frá yfirborði mán-
ans, heldur eru vísindalegar líkur fyrir mannaferðum
þ'ángáð út nú taldar meiri en fyrr.
JÖRÐ/N
í.i'.
UM LELÐ og ma-nnsandinn vinnur sigra á tungl-
fínu, gerast á jörðunni tíðindi, sem benda til þess,
}að siðferðilegur þroski ,sé hér enn næsta bágborinn
-óg jaðri við hið versta meðal dýranna.
'Í.O" " ir '
i. ; Fregnin um aftökurnar í Kinshasi við Leopold-
rj . -r
^yille í Kongó er hrollvekjandi. Fjórir fyrrverandi ráð
dherrar í stjórn landsins voru ákærðir fyrir samsæri
’til að ráða forsetann, Mobuto, af dögum. Snubbótt
iskyndiréttarhöld fóru fram, engin vitni voru leidd,
'én mennirnir dæmdir til dauða. Aftakan var síðan
r>'.
• látin fram fara á stóru torgi og landsstjórnin
ihvatti þjóðina til að fjölmenna á aftökustað.
Ekki er Ijóst, hvort Mobuto vildi með þessu
jhræða landsfólkið og innræta því ótta og virð-
ingu fyrir stjórn sinni — eða aðvara pólitíska and-
stæðinga. Hvað sem fyrir stjórninni hefur vakað,
varð mannfjöldinn óður, þegar þriðji ráðherrann
vár hengdur á torginu. Jafnvel þjálfaðir hermenn
misstu stjórn á sér og flúðu.
Þrátt fyrir göfugar hugsjónir, sem margar þjóðir
og einstaklingar aðhyllast, verður ekki sagt, að manns
líiið sét dýrt nú á dögum. Eiga fleiri sök á en gæfu-
lausir ráðamenn í Kongó. í Suður- og Suðaustur-Asíu
er hungurdauði, þar sem ekki eru beinar blóðsúthell
ingar. Þótt ekki fari hátt, munu hendur stórveld-
anna þeldur ekki vera hreinar, svo mjög sem þau
ástunda margvíslegt leyni- og njósnamakk.
Svdna er ástandið — og þetta eiga að heita
friðartímar, nema rétt á eihum stað.
Nú! er leitað að lífverum á öðrum stjörnum. En
hvað er það, sem maðurinn á jörðunni ætlar að kenna
þeim — ef hann finnur þær?
a 4 4. j jjání 1966 - ALÞÝÐUBLA9IÐ
Minningarorð
Framhald af 7. síðu.
dýpstu samúð og bið allar góðar
vættir að styðja þau og styrkja
í þungri sorg.
Hjálmar Ólafsson,
Hugurinn hvarflar 36 ár aftur
í tímann. Ég hafði komið til að
freista að ná prófi upp úr I. bekk
Menntaskólans á Akureyri. Mér
og eflaust fleiri utanrkólanemend
um, var nokkur geigur í brjósti,
að setjast frammi fyrir þeim lærSu
herrum í kennarskólanum , og
verða að opinbera þar fákænsk
una fyrir þeim og drjúgum hópi
áheyrenda.
Ef til var það ekki sízt þess
vegna, að ég veitti sérstaka at
hvsli fyrsta prófsveininum. sem
kallaður var til sætis við próf
borðið.
Axel Benediktsson kom, liæglát
ur en liiklaus, dró sitt verkefní,
leysti úr spurnlngum kennarans
skýrt og örugglega og hvarf svo
jafn hæglátur frá til þess að rýma
fyrír þeim næsta.
Mér óx kjarkur. Máske var þetta
ekki eins mikil raun og ég hafði
haldið.
Þannig voru mín fyrstu kynni
af Axel Benedíktssyni. Samveran
í skóla við leik og störf juku þessi
kynni og við bundumst vináttu,
sem síðan hélzt. þótt oft væri breið
vík á milli, veena starfa á fiar
lægum landshornum. Og myndin,
sem upnhafleea greyptist í huga
minn, hefir ekki brevt.zt, nema til
að skvra't og fyllast út.
Axel var fiölhæfur gáfumað
ur oe í liuga hans ólgaði auðugt
hugmyndaflug, sem hann lét bó
ekki uooi hvemdagslega, nema
við kunnuga. Hann var prvðilesa
skáldmæltur, bótt hann hirti ekki
um að birta l.ióð sfn, nema lítið
eitt og undir dulnefni. Kom þar
tii greina, meðfædd o.ff áunnin
hlédrægni og siálfsgaenrvni.
En af okkar löngu kvnnum
hika ég ekki við að fullyrða, að
HEKLU
HERRA
SOKKAR
ríkasti þátturinn í fari hans var
góðvild til samstarfsmanna og iöng
un til að rétta hlut þeirra, sem
minna máttu sín. Hann haslaði
sér völl í hópi þeirrar framvarða
sveitar, sem vill vernda og styðja
lítilmagnan og stóð þar ókvik
uli þar til yfir lauk. Og hann
kunni vel að halda á sínu máli
og stóð fastur fyrir jafnt við hvern
sem var að deila.
Á síðari árum átti hann við
heilsuleysi að stríða, sem hann
bar með æðruleysi og karl
mennsku. Engum mun þó hafa
verið ljósara en honum að hverju
dró og fyrr en öðrum, þótt hann
léti lítið á því bera. Síðast er
við kvöddumst eftir að hafa ræðst
við stundarkorn um sameiginlegt
áhugamál, þar sem áhugi hans var
jafn gneistandi og hugsunin
skýr og forðum, þótt fársjúkur
væri, lét hann þessi orð falla, um
leið og hann brosti við: „Líklega
hef ég mig nú ekki fram úr þessu
í þetta sinn.”
í einkalífi sínu var Axel Bene
diktsson hamingjusamur maður.
Hann og hans ágæta kona, Þóra
Guðmundsdóttir voru samhent um
að skapa hlý’egt heimili þar sem
þrjú mannvænleg börn ólust upp.
Þeim vil ég votta innilega samúð,
því að þeirra missir er mikill.
í hópí okkar stúdentanna frá
M.A. 1935 er nú fyr-ta skarðið
höggvið. Við munum finna sárt
tii þess við næstu samfundi. Ég
veit, að okkur öllum verður efst
og innst í huga þökk fyrir sam
fylgdina á líðnum árum og fyrir
óhikula v'náttu. Og það er trú
mín, að beirn öðrum, sem þekktu
Axe] Benediktsson bezt, sé liið
sama í huga.
Oddur A. Sigur.iónsson
ÁBYRGÐ Á HÚSGÖGNUM
Athugið, að merki
þetta sé ó
húsgögnum, sem
óbyrgðarskírteini
fylgir.
Koupið
vönduð húsgögn.
HÚSGAGNAMEISTARAFÉLAG REYKJAVIKUR
Hjúkrunarkonur
Hj úkrunarkonur óskast að Borgarspítalan-
um í Heilsuverndarstöðinni í Reykjavík, til
afleysinga í sumarfríum.
Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkonan í
síma 22413.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíltur.
Bifreiðaeigendur
á Austurlandi
Ljósastillingar á vegum Félags íslenzkra bif-
reiðaeigenda verða framkvæmdar á Reyðar-
firði laugardaginn 4. júní og sunnudaginn 5.
júní. Egilsstöðum mánudaginn 6. jú'ní.
Tunguhaga þriðjudaginn 7. júní og Seyð-
isfirði miðvikudaginn 8. júní. Einnig er ráð
gert að fara til Breiðdalsvíkur ef mögulegt
reynist.
Félagsmenn í F.Í.B. fá 20% afslátt frá ljós'a-
stillingargjaldi geg’n framvísun félagsskír-
teinis.
Þeir sem ætla að láta stilla ljós bifreiða
sinna eru beðnir um að hafa samband við
umboðsmenn félagsins á viðkomandi stöð-
um.
Félag íslenzkra bifreiðaeigenda.