Alþýðublaðið - 08.06.1966, Síða 11
II. deildarliðið Norwich er
skipað góðum leikm.
Liðið leikur einn leik í Reykja-
vik, gegn Akurnesingum á föstud
Á SL. VETRI voru liðin 20
ár frá stofnun íþróttabandalags
Akraness og hefur bandalagiö
viljað minnast þess á ýmsan hátt.
Einn liðurinn í því að minnast af-
mælisins er sá, að enska atvinnu-
mannaliðinu Nonvich hefur verið
boðið til landsins og mun liðið
koma til landsins 9. júní' næstk.
og leika hér á landi þrjá leiki.
Þá hefur einnig verið ákveðið að
1. deildar lið ÍA fari til Færeyja
27. júlí næstk. í boði B. 36 og
leiki þar nokkra leiki. Einnig eru
ráðgerð íþróttamót á Akranesi í
tilefni afmælisins.
íþróttabandalag Akraness hefur
tekið þátt í íslandsmótum allt frá
stofnun þess og varð fyrst íslands
meistari í knattspyrnu árið 1951.
Síðan hefur lið ÍA stöðugt verið
í fremstu röð íslenzkra knatt-
spyrnuliða og oftast verið í úr-
slitum bæði í íslandsmóti 1.
deildar og bikarkeppninni. Alls
hefur ÍA orðið íslandsmeistari 6
sinnum á þessu tímabili og fjöl-
margir leikmenn liðsins leikið í
landsliði.
Enska liðið Norwich, sem koma
mun hingað í boði ÍA hefur leikið
í 2. deildinni ensku nú um nokk-
urra ára skeið og hefur liðið verið
mjög vaxandi. Hefur félagið á
undanförnum árum keypt marga
góða leikmenn frá öðrum félögum
og hefur koma þeirra til Norwich
orðið til að styrkja liðið mjög.
Af leikmönnum liðsins, sem
ke.vptir hafa verið skulu hér nefnd
ir nokkrir:
Don Davies, miðframh. eða inn-
herji, var keyptur til liðsins 1963
fyrir £ 35 þús. og hefur hann
sýnt mjög góða leiki og verið
einn bezti leikmaður liðsins. Hann
hefur leikið í landsliði Welsh og
með úrvali leikmanna undir 23.
ára aldri.
Terry Anderson, lék með Arsen-
al 1961 — 1965, en það ár var hann
keyptur til Norwich. Hægri úth.
Hann lék áður í unglingalandsliði
Englands.
Gordon Bolland, innherji. Hann
lék áður með Chelsea og er ann-
ar dýrasti leikmaður, sem Nor-
wicii hefur keypt.
Phil Kelly, hægri bakvörður.
Hann lék áður með Wolves og
hefur ennfremur leikið fimm sinn
um með írska landsliðinu, en hann
er fæddur í írlandi.
Malcolm Lucas, hægri framv.
Hann leikur í landsliði Welsh.
Freddie Sharpe, varnarmaður.
Hann lék áður með Tottenham,
níu keppnistímabil og var þar
fastur leikmaður.
Dave Stringer, bakvörður eða
miðframvörður. Hann hefur leikið
í áhugamannalandsliði unglinga
fyrir England.
VESTMANNAEYJAR SIGR-
UÐU VÍKING 3 GEGN 2
Vesmannaeyingar léku sinn
fyrsta leik í II. deild sl. laugardag,
fór leikurinn fram á malarvellinum
í Eyjum og voru mótherjarnir Vík
ingur. Daufum og óskemmtilegum
leik lauk með naumum sigri ÍBV
sem skoraði 3 mörk en Víkingur
2. Ekki er hægt eftir þennan leik
að segja nokkuð til um getu Vest
jnanneyjaliðsins en Eyjamenn hafa
tvö undanfarin ár mætt til úrslita
leiks í deildinni en jafnoft tapað.
Um næstu helgi munu ÍBV og
Fram mætast í Eyjum og verður
fróðlegt að sjá hvernig þeirri við
ureign lýkur.
I stuttu máli var gangur leiksins
á laugardag sá að Víkingur skor
ar fyrsta markið, lir vítaspyrnu,
en ÍBV jafnar nokkru síðar. Rétt
fyrir hálfleik tekur svo ÍBV for
ustuna 2:1. Síðari hálfleik lauk
með jafntefli, Víkingur jafnar 2:2
en ÍBV nær aftur forustunni 3:2
i sem hélzt til loka. Valur Bene-
diktsson dæmdi leikinn og átti
i rólegan dag.
Eins og að framan getur mun
liðið koma til landsins 9. júní nk.
og leika hér þrjá leiki. Fyrsti
leikurinn verður á Laugardals-
vellinum föstudaginn 10. júní kl.
20,30, gegn Akurnesingum. Annar
leikurinn verður á Akranesi sunnu
daginn 12. júní kl. 15,30 gegn úr
valsliði landsliðsnefndar.
Þriðji leikurinn verður svo í
Keflavík miðvikudaginn 15. júní
kl. 20,30 gegn Keflvíkingum.
^Varnh ö 14. síð''
Þessi mynd var tekin í leik Vals og KR á ísland smótinu. Knötturinn er á leið í Valsmarkið, en
þetta var eina mark leiksins.
Terry Anderson, hægri úthergi lék áður með Arsenal.
Breióatilik vann
FH 1 gegn O
Á laugardaginn var léku F.H. og
Breiðablik sinn fyrsta leik í II.
deild íslansmótsins. Leikurinn fór
fx-am í Hafnarfirði í ágætu veðri.
Breiðablik sótti heldur meir fram
an af, en er á leið fyrri hálfleik
réðu FH-ingar lögum og lofum
þótt ekki tækist þeim að skora.
Eina mark leiksins var hálfgert
klaufamark, Guðmundur Þórðar
son h. innherji Breiðabliks var
kominn í gegn, en hinn snjalli
markvörður FH KaiT M. Jónsson
bjargaði með ú+hlaupi, en frá hon
úm hrökk boltinn til FH-ings
sem kiksaði og rann boltinn til
Breiðabliksmanns og potaði hann
honum í netið. Þetta skeði um miðj
an fyrri hálfleik og í 20 mín.
fór knötturinn vai-la á vallarhelm
ing FH, en brátt fyrir þetta tókst
ekki að skora os kom bar til góð
markvarzla Losa Kristjánssonar og
léleg hittni og laus skot FH-inga.
í þessum leik fékk Breiðablik
tvö dýrmæt stis. bví aðeins leik
ur hvert föxac í bessurn riðM sex
leiki. Breiðahlik virðist hafa far
ið nokknð fram frá í fvrra og bá
'■érstnklega vörninni. Bezt.u menn
liðsins vorn T.ngi í markinu og
•Túb'us m'ðvnrðnr oS G"ðrmmd"r
Þnrðax’son. Þiálfari Breiðabliks er
hinn gamalkiinri knattsnvrmimað
"r Halldnr TTalldórss. Lið FH átti
ekki góðan Inik og var framb'r
an léles. Beít" menn liðsins vom
Karl M. .Tnncsnn í mai'kinu. en
liann er 5n, efa elnn hezti marV
vörður okkar og ætti landsbðs
nefnd að hafa ausa með honum.
Aðrir góðir voru kemournar Birg
ir-Björnsron og Bergþór Jónsson
Dórnari var Him-ik Lárusson.
Á undan leik þessum léku Breiða
bljk og Haukar í IV fl. og sigraðl
Breiðablik 3—0. I.V. u.r
jnv
mmmmmmmuhmihmumhi
Tvö íslands-
met i sundi
Fyrstu þrjár greinar ís-
landsmótsins í sundi fóru
fram í Sundhöllinni í fyrra
kvöld. Hrafnhildur Kristjáns
dóttir Ármanni varð Íslands
■ meistari í 800 m. skriðsundi
á nýju íslandsmeti, 11:19,2
mín. Hrafnhildur Guðmunds
dóttir, ÍR hafSi lengst af for
ystu í sundinu og millitími
hennar á 500 m. varð undir
íslandsmeti, 6:56,2 mín.
Hrafnhildur Kristjánsdóttir
haföi yfirburði síðustu 100
metrana.
Davíð Valgarðsson, ÍBK
varð meistari í 1500 m. skrið
sundi, synti á 19:14,4 min.
Annar varð Guðmundur Þ.
Harðarson, Æ, á 19:52,0 min.
en það er í fyrsta sinn, sem
hann syndir betri tíma en
20 mín. Loks sigraði Gestur >
Jónsson, SH í 500 m. bringu
sundi á 5:54,0 mín. Annar
varð Ólafur Einarsson, Æ,
kornungur sundmaður á 6:
21,6 mín.
Aðalhluti Sundmeistara
mótsins fer fram í Neskaup
stað 25.—26. júní.
ALbÝÐUBLAÐIÐ - 8. júní 1966 U;