Alþýðublaðið - 28.06.1966, Blaðsíða 10
þessari mynd sézt Þór Konráðsson, ÍR sigra öru gglegra í 80 m. hlaupi. Þór er mjög efnilegur og* varð
efaldur meistari á Sveinamótinu. .
1 Mikil þáttiaka og skemmti-
leg keppnin á svei namótinu
ÍR-ingar höfðu mikla yfirburði -
híutu 7 meistara af 10
SVEINAMEISTARAMÓT ís■
lands í frjálsum íþróttum var háð
a Laugardalsvellinum um helg-
ina. Mótið var mjög ánægjulegt,
þátttaka óvenjulega góð' og árang-
ur jafn og góður í flestum grein-
um, þó að ekkert sveinamet væri
sett.
ÍR-ingar höfðu mikla yfirburði
t mótinu og félagið hlaut 7 meist-
aratitla af 10, sem keppt er um.
Ármann, íþróttabandalag Akur-
Ásgreir Ragnarsson, ÍR sveina-
rlieistari í kuluvarpi.
eyrar og Vngmennasamband
Skagafjarðar hlutu einn meistara
hvert.
Flestir hinna ungu pilta, sem
kepptu á mótinu eru nýliðar og
afrekin því í mörgum tilfellum
góð.Þátttakan í hlaupunum var
ágæt, t. d. voru 18 í 80 m. hlaupi,
12 í 200 m. hlaupi og 9 í 800 m.
hlaupi.
Af einstökum piltum, sem at-
hygli vöktu, skulum við nefna
nokkra. Þór Konráðsson, ÍR, hef-
ur keppt nokkrum sinnum áður
og hann virðist í stöðugri fram-
för. Þór hefur mjög lítið æft og
því er árangur hans og framfar-
ir jafnvel enn eftirtektarveröari.
Vonandi getur þessi efnilegi í-
þróttamaður sinnt íþróttunum enn j
meir í framtíðinni. Ólafur Ingi- j
marsson, UMSS er fjölhæfur, —
hann sigraði í 200 m. hlaupi með |
yfirburðum, varð annar í 800 m. j
og var á sama tíma að keppa í
langstökki. Akureyringar komu |
rneð ágætan flokk, en Ásgeir Guð-
mundsson og Halldór Jónsson
vöktu mesta athygli.
Finnbjörn Finnbjörnsson, ÍR,
sigraði í grindahlaupi og lilaut
verðlaun í fleiri greinum. Hann
hefur sýnt miklar framfarir síðan
í fyrra, en Þá hóf hann fyrst
keppni. Ágúst Þórhallsson, Árm.
hafði yfirburði í hástökki, hann
er skemmtilegt íþróttamannsefni.
Félagar hans, Hróðmar Helgason
og Bergur Garðarsson eru einnig
efnilegir.
Guðjón Magnússon, ÍR, sigraði
i stangarstökki, en hann er liðtæk-
ur í fleiri greinum, léttur og fjað-
urmagnaður. Ásgeir Ragnarsson,
ÍR, varð meistari í kúluvarpi, —
sterkur vel og einnig góður stökkv
ari og spretthlaupari. Snorri Ás-
geirsson, ÍR, sigraði í kringlu-
kasti og það má segja það sama
um hann og marga fleiri, sem
kepptu á mótinu, fjölhæfur og
efnilegur. Ólafur Jóhannsson, UM-
SS varð annar í kringlukastinu,
hann er sterkur og stæðilegur
piltur.
Framhald á 15. síðn.
KNATTSPYRNUKEPPNINNI
í A-riðli íslandsmótsins, var fram
haldið á grasvellinum í Njarðvík
á miðvikudagskvöldið var. Þar
áttust við ÍS. og Fram. Fóru hinir
síðarnefndu með stóran sigur af
hólmi, 6 gegn 0. Eftir gangi leiks-
ins er sá munur sízt of mikill.
Framarar réðu öllu um gang hans
og var stundum engu líkara en um
hreina sýningu væri að ræða af
þeirra hálfu, enda höfðu þeir,
bæði leikni, hraða, snerpu og stað-
setningar, langt umfram mótherja
sína. Galli liðsins virtist samt
vera, þrátt fyrir þessi sex gerðu
mörk, ónóg skotfimi. Annars var
liðið mjög jafnt og samstillt í
leik sínum við ÍS; einna helzt bar
á Jóhannesi Atlasyni og Baldri
Scheving.
Lið ÍS var með slappara móti í
þessum leik, enda meira og minna
lemstrað eftir leikinn við Víking
nokkium dögum áður. Framlínan
var svo að segja óvirk. Eini ljósi
púnkturinn i henni var nýliðinn
Róbert Magnússon. Vörnin var all-
an ieikinn í sannkölluðu „akk-
orði” vegna stöðugrar sóknar
Framara. Bjargaði hún því sem
bjargað varð, en lét Gottskálk, sem
átti frábæran leik, um afganginn.
Annars var stundum eins og að
„hulinn verndarkraftur” hlífði
marki ÍS. T. d. skeði það, að ein-
um varnarleikmanni mistekst
spyrna, þannig að knötturinn stefn-
ir í hans eigið mark, en mótherji
hleypur í því fyrir knöttinn og
forðar því að hann hafni í netinu.
Fram mætti mjög ákveðið til
þessa leiks. Skoruðu þeir strax á
fyrstu mínútu, svo greinilegt var
að þeir ætluðu sér ekki að láta
„harmleikinn” gegn Haukum end-
urtaka sig, en þeir töpuðu lionum
sem kunnugt er. En eftir að hafa
séð lið Hauka í leik, gegnir mik-
illi furðu hvernig það hefur get-
að hent. En skýringin á því er
varla önnur en hin sígilda setning
í knattspyrnuheiminum, að „allt
getur skeð í knattspyrnu.” - emm.
tððan í I. deild,
og í II. deild.
þessi
Staðan í 1. deild er
öftir leiki helgarinnar:
íeílavík:KR 2:1 (1:0)
AkureyrhAkranes 2:1 (2:0)
VALUR
AKRANES
AKUREYRI
ÞRÓTTUR
Staðan
A-riðilI:
HAUKAR
FRAM
VESTM.
SUÐURNES
2. deild er þessi:
B-riðilI:
Breiðablik: FH 2:1.
4 3 1 0 6:3 7
ÍSAFJ. 4 2 0 2 7:7 4
FH 4 1 0 3 5:7 2
KS 2 0 1 1 2:3 1
MHHHHMHMtMHWMMMV
Akureyri sótfi meira
og sigraði Akranes 2:1
NÆRRI TVO þúsund Akureyr-
ingar sáu lið sitt vinna fyrsta sig-
urinn i I. deild á þessu sumri, er
liðið mætti Akurnesingum á
sunnudaginn. Akureyringar léku
undan örlitlum vindi í fyrri hálf-
leik og skoruðu tvö mörk. Akur-
nesingar gerðu eitt mark í síðari
hálfleik og fleiri urðu mörkin
ekki.
Sigur Akureyringa var verð-
skuldaður. Þeir áttu mun fleiri
tækifæri og sýndu sinn bezta leik
á keppnistímabilinu.
Á 15. mínútu átti Kári Árnason
skot að marki. Akurnesingur ver
á linu, en boltinn lendir aftur til
Kára og hann sendi hann yiðstöðu
laust í netið. — Rétt fyrir hlé
skallar Skúli Ágústsson að marki
Skagamanna, hrekkur boltinn í
þverslá og fyrir fætur Steingríms,
sem skorar óverjandi.
Síðari hálfleikur var jafnari, þó
áttu Akureyringar fleiri tækifæri,
en tókst ekki að skora.
Akurnesingum tókst loks að
skora á 20. mínútu síðari hálfleiks,
er há sending kemur að marki Ak-
ureyringa, Samúei markvörður og
annar varnarmaður norðanmanna,
ásamt Birni Lárussyni eiga í bar-
áttu um knöttinn, en þeim síðast
nefnda tekst að spyrna honum í
netið.
Eins og fyrr segir var sigur
Akureyringa mjög verðskuldaður,
þeir sóttu meira og áttu mörg upp [pg dæmtii vel
lögð tækifæri, en tókst þó aðeins
að nýta þau tvívegis. Sem dæmi
um sóknarþunga Akureyringa má
geta þess, að þeim voru dæmdar
um 20 hornspyrnur, en Akurnes-
ingar fengu aðeins tvær.
Jón Stefánsson lék nú aftur með
liði sínu eftir meiðsli undanfarið.
Liðið er jafnt og enginn skarar
fram úr.
Rikharður lék með Akraneslið-
inu, en fór út af rétt fyrir hlé.
Jón Leósson varð að yfirgefa völl-
inn vegna meiðsla I upphafi síðari
hálfleiks, en Jón var einn bezti
leikmaður Akurnesmga.
Dómari var Hreiðar Ársælsson
|L0 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 28. jýní 1966
Fram lék sér að IB
Suðurnesja 6-0