Alþýðublaðið - 30.08.1966, Side 3
Kúbanskir hermenn
viíja tii Vietnam
Havana (ntb-Reuter).
Kúbanskar hersveitir hafa lýst
sig fúsar til iað fara ’sem sjálf-
boðaliðar til Víetnam, ef fram á
það verður farið. Frá þessu skýrði
háttsettur foringi í Kúbuher á
fundi í Havana í gær, en í síð-
asta mánuði bauðst Fidel Castro
til að senda hersveitir með öllum
útbúnaði til að berjast gegn
Bandaríkjunum í Víetnam.
Talsmaður utanríkisráðuneytis
Bandaríkjanna, Hobert Mac Losk-
ey sagði í gær, að Bandaríkjun-
um hefði um skeið verið það'
kunnugt að flugmenn frá Norður-
Víetnam fá kennslu og þjálfun í
Sovétríkjunum, en liann kvaðst
ekki geta sagt, um hve marga flug
menn væri að ræða. Frá því var
skýrt í sovézkum blöðum á sunnu
daginn, að norður-víetnaniskir
flugmenn stunduðu nám í Sovét-
ríkjunum og voru um leið'birtar
myndir af nokkrum þeirra. Mac-
Loskey sagði, að allmargar þotur
af fullkomnustu sovézki-i gerð
væru nú í notkun í Víetnam.
Víetkong tilkynnti í gær, að
ekki væri hægt að ábyrgjast ör-
yggi frambjóðenda og 'kjósenða í
Var sænskur
ríkisborgari
RANNSÖKNARLÖGREGLAN í
Osló hefur nú komist að raun um
liver maðurhm var sem fannst lát
inn í skógi skammt frá borginni,
fyrir nokkfu. Hann liafði verið
sænskur ríkisborgari, Tommy
Finn Plath að nafni, fseddur og
búsettur í Jönköping. Hinsvegar
mun ekki hafa verið getið um
dánarorsök.
Eins og menn muna, fannst í
veski hans reikningur frá Hótel
Loftleiðum, þar sem talið var að
hann hefði dvalist í stuttan tíma.
Þar var uppgefið nafnið Anders
Karlsson, en rannsóknarlögreglan
hér gekk úr skugga um að eng-
inn Anders Karlsson liafði verið
íikráður farþegi hjá nokkru flug-
eða skipafélagi til eða frá íslandi.
Og sú mun einnig ráunin með
Tommy Finn Plath, nafn hans er
ekki a'ð finna í neinni farþega-
skrá.
nágrenni Saigons, sem tækju þátt
í kosningunum í næsta mánuði.
Talið er að skæruliðarnir 'hafi í
hyggju að ráðast á kjörstaði, ná
atkvæðaseðlum á sitt vald og eyði
leggja kjörskrá og koma þannig
í veg fyrir kosningarnar. Formæl-
andi lögreglunnar í Saigon sagði
í gær, að lögreglan hefði fengið
fyrirmæli um að skjóta alla þá,
sem hefðu opinberlega í frammi
áróður gegn kosningunum.
Kúbanskir hermenn
vilja til Víetnams.
S
Ágæít veður
og góð veiði
Á sunnudaginn var ágætt veður
á síldarmiðunum og góð veiði.
Veiðisvæðin voru tvö eins og áð-
ur, 90 sjómílur SA að austri frá
Langanesi og 75 mílur austur af
Dalatanga. 72 skip tilkynntu um
afla, alls 12.619 lestir. 26 skip
voru með 200 tonn og þar yfir.
Hæstu skip voru Dagfari ÞH, 361
lest, Kristján Valgeir GK, 320, og
Jón Garðar með 300 lestir.
í gær var veðrið enn ágætt, en
veiðisvæðið aðeins eitt, 50—-80
mílur ASA frá Dalatanga. 58 skip
tilkynntu um afla, alls 10.215 lest
ir, þar af 23 með 200 tonn og þar
yfir. Efstir voru:
Örn RE, 370 lestir Seley SU,
320, Hannes Hafstein EA, 300,
Arnfirðingur RE, 300.
Vasaþjófur
tekinn
VASAÞJÓFUR var hand-
tekinn í Glaumbæ um síð-
ustu helgi. Hann mun hafa
stundað þessa atvinnu nokk-
uð lengi og verið orðinn
laginn við. Kristján Sigurðs-
son, hjá rannsóknarlögregl-
unni sagði Alþýðúblaðinu að
nokkra síðustu daga mun
hann hafa verið hvað stór-
tækastur og þau væru ófá
Framhald á 14. síðu.
Séö yfir sýningardeil dirnar. (Mynd: JV).
Rvík, — AKB.
Iðnsýningin 1966 verður opn
uð í dag. Sýninigin er opnuð
ki. 10 árdegis fyrir boðsgesti og
klukkan fimm síðdegis verður
sýningin opnuð öllum almenn
ingi.
Blaðamaður og Ijósmyndari
Alþýðublaðsins fóru í gær inn
í íþróttahpll og var þá verið að
leggja síðustu hönd á undirbún
ing sýningarinnar. Var allt á
ferð og flugi, undirbúningur var
mikill oig margar hendur að
starfi. Fyrir utan íþróttahöll
ina yar verig að koma upp skijt
um og rétt í því að við komum
að var verið að fara inn með
geysistóra Coca Cola flösku og
mun hún eiga að prýða eina
sýningardeildina. í flestum
sýningardeildanna var fólk að
störfum, undirbúningi var langt
á veg komið og í dag er svo
öllum undirbúningi lokið og
sýningin opnuð.
Iðnsýningin er fyrsta vörusýn
ingin sem haldin er í íþrótta
höllinni í Laugardal. Sýningar
nefnd keypti sérstaka gerð skil
rúma, svonefnt Apton- system
til að afmarka sýningarstúkur.
Milliveggir eru úr ferköntuðum
stálpípum, sem flekar eru felld
ir inn í og festir með þar til
gerðum spennum. Skilrúmakerf
ið má reisa og taka niður á
skömmum tíma, Er því unnt að
nota það í mörg skipti og 'á mis
munaíndi hátt.
Þeir, sem sýna á Iðnsýning
unni er um 140. Sýningunni er
skipt í 12 deildir, sem eru
breytilegar að stærð, bæði
hvað flatarmál og fjölda sýn
enda snertir, Stærsta deildin á
sýningunni er deild tré- og hús
gaignaiðnaðarins, í henni sýna
30 fyrirtæki framleiðslu sína.
Sláturfélag Suðurlands hefur
stærstu sýningarstúkuna, en
sýningarrými heninar er um
þrjú þúsund fermetrar að flat
armáli.
Undirbúningur að sýningunni
hefur verið mikill. Á vegum
sýningarnefndar munu starfa
um 15 manns sýningardagana,
og að auki hafa sýnendur starfs
lið í stúkum sínum. Um 200
manns munu alls istarfa við
sýninguna.
í sýningaiihöllirini vei-ður
veitingasalur og mun hanni
rúma tun 250 manns í sæti.
Þar munu gestir eiga kost á að
kaupa ýmsar veitingar, heita og
kalda rétti, smurt brauð, pyls
ur, kaffi, kökur o. fl. Annars
staðar á sýningarsvæðinu verð
Framh. á 13. síðu.
Loka firði tii síldarrannsókna
Uppi eru ráðagerðir um að loba
firði í Noregi og koma þar upp
aiþjóðlegri síldarrannsóknarstöð,
þar sem hægt væri að fylgjast ná
ið nicð atferli og liegðun síldar-
innar í sínu eðlilega umhverfi, að
því er segir í síðasta tölublaði
.Fiskaren.
Fjörðurinn, sem / að öllum lík-
indum verður fyrir valinu er
Fjeldspollen við Bergen. Unnið
hefur verið að undirbúningi þessa
máls á vegum Alþjóðlega haf-
rannsóknarráðsins og hafa sér-
fræðingar þess kannað mjög
marga staði, í þessu augnamiði,
en hallast helzt að fyrrgreindum
firði. Er búizt við að endanleg á-
kvörðun verði tekin á fundi ráðs
ins. sem haldinn verður í Kaup-
mannahöfn í byrjun október í
lnaust.
Finn Devold, norski síldarsér-
fræðingurinn, lét svo ummælt
fyrir skömmu í viðtali við Aften
posten, að hann vonaðist til aö
þessar ráðagerðir kæmust fljót-
lega í framkvæmd. Fjeldspollen
væri ákjósanlegur staður til þess
ara rannsókna, þar sem auðvelt
er tiltölulega að Ioka firðinum og
í Bergen er fullkomin hafrann-
sóknarstofnun. Búizt er við að
mörg lönd muni í sameiningu
standa straum af þessari umfangs
miklu tilraun, og við rannsóknirn
ar munu starfa sérfræðingar frá
mörgum löndum.
Megintilgangurinn með- því að
gera þessa tilraun, segir Finn De
vold, að fá svör við ýmsum þeim
grundvallarspurningum um síld-
ina, sem ekki hefur verið hægt
að fá svar við vegna þess að að-
staða hefur ekki verið til svona
rannsókna. I firðinum er stað-
bundinn síldarstofn, og vonast vís
indamenn til að geta með þessum |
30.
rannsóknum aflað margvíslegra
upplýsinga um lífsháttu síldarinn
ar og ef til vill að finna ein-r
liverja skýringu á veiðisveiflum..
Einnig verða þarna gerðar um-
fangsmiklar tilraunir með merk-
ingu síldar„ ,
Þetta mun vera í fyrsta skipti
sem efnt er til fiskirannsókna af.
þessu tagi, og eykur það enn á
• gildi þessarar fyrirhuguðu tilraun
i ar.
ágúst 1966 - ALÞÝÐUBLAÐÍÐ %