Tölvumál - 01.12.1986, Blaðsíða 27
AFBURÐA TÆKNI SEM SPARAR
ÞÉR TÍMA, FÉ OG FYRIRHÖFN
Undanfarin ár hafa VICTOR tölvurnar skapað sér virðingarsess
á íslenskum markaði. Þær eru hraðvirkar, öruggar og tæknilega
fullkomnar. Reynslan hefur sýnt að þær eru vandaðar, sterk-
byggðar og hafa lága bilanatíðni.
Mikið framboð er af tölvum á markaðinum sem virðast líkar við
fyrstu sýn. Gjarnan eru gylliboð auglýst sem auðvelt er að láta
ginnast af. Við ráðleggjum viðskiptavinum að kynna sér vandlega
hvað á boðstólum er, til að kaupa ekki köttinn í sekknum.
Reynslan sýnir að ódýrustu tölvurnar eru yfirleitt ekki ódýrastar
þegar upp er staðið.
Einar J. Skúlason er gamalgróið fyrirtæki sem starfað hefur í
hartnær hálfa öld. Fyrirtækið hefur á að skipa reyndu og vel
menntuðu starfsfólki, sem kappkostar að veita viðskiptavinum
trausta og góða þjónustu.
Hríngið eða komið á Grensásveg 10 og við veitum góðíústega allar nánari upplýsingar.
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 68-69-33
augljós