Bókasafnið - 01.01.1974, Síða 13
EINAR SIGURÐSSON
Umræðufundur norrænna rannsóknarbóka-
varða í Reykjavík 8.-13.október 1973
Norrænir bókaverðir hafa lengi haft með
sér margvíslegt samstarf, og væri of langt
mál að skýra frá því til hlítar. Þátttaka ís-
lenskra bókavarða í þessu samstarfi á sér
hins vegar vart lengri sögu en sem nemur
einum áratug. Árið 1964 var haldið í
Gautaborg eitt liinna stóru norrænu þinga,
þar sem þátttaka skiptir hundruðum. Af
Islands hálfu sótti þetta þing m. a. dr. Finn-
bogi Guðmundsson, sem þá var í þann veg-
inn að taka við embætti landsbókavarðar.
Þar munu fyrst hafa verið hafðar uppi ráða-
gerðir um þátttöku okkar í Sambandi nor-
rœnna rannsóknarbókavarða — Nordisk
Videnskabeligt Bibliotekarforbund (NVBF).
Vorið 1966 var stofnuð hér Deild bóka-
varða í rannsóknarbókasöfnum, og gerðist
hún þá um sumarið aðili að NVBF.
Samband norrænna rannsóknarbókavarða
var stofnað 1947. Það heldur þing með al-
mennri þátttöku frá öllum aðildarlöndun-
um á fjögurra ára fresti. Einn fulltrúi héð-
an sótti slíkt þing í Finnlandi sumarið 1966
og í Svíþjóð 1970, en fimm í Þrándheimi í
júní sl. En sambandið hefur frá öndverðu
leitast við að halda jafnframt svo sem einu
sinni á ári umræðufundi —svokallaða hring-
borðsfundi>— þar sem þátttaka er bundin við
fjóra til fimm fulltrúa frá hverju landi og
venjulega er tekið fyrir tiltölulega afmark-
að efni til rækilegrar meðferðar. Bókaverð-
ir héðan hafa á undanförnum árum sótt
nokkra slíka fundi, en það var ekki fyrr en
sl. haust, nánar tiltekið dagana 8.—13. októ-
ber, að fundur af þessu tagi var haldinn hér,
og sá Deild bókavarða í rannsóknarbóka-
söfnun um framkvæmd hans.
Þeim, sem stóðu að fundarhaldinu af
hálfu íslands, þótti mikið við liggja, að
öll skipulagning tækist vel. Loftleiðir sáu
um flutning og gistingu þátttakenda, og á
hóteli þeirra var fundurinn einnig hald-
inn. Aðbúð þar og aðstaða til fundarhalds-
ins var mjög góð.
Erlendu þátttakendurnir, sem voru 17
talsins, komu allir með sömu flugvél síð:
degis mánudaginn 8. okt. Um kvöldið bauð
formaður íslensku deildarinnar, dr. Finn-
bogi Guðmundsson og kona hans, þátttak-
endum öllum heim til sín til kvöldverðar,
og var það erlendu þátttakendunum óvænt
ánægja að hefja dvöl sína hér með heim-
sókn á einkaheimili. Morguninn eftir hófst
mótið með ávarpi menntamálaráðherra,
Magnúsar Torfa Ólafssonar, en síðan flutti
dr. Björn Sigfússon erindi, sem hann nefndi
Tilveru íslenskra rannsókna og stöðu ís-
lands sem norræns ríkis. Að erindinu loknu
óskuðu erlendu gestirnir eftir enn frekari
fræðslu um aðstæður hér á landi og fram-
tíðarhorfur, og svöruðu dr. Björn og ís-
lensku þátttakendumir ýmsum spuming-
um þar að lútandi. Eftir hádegi hófust svo
hin eiginlegu fundarstörf, og var þeim fram
haldið þann dag allan og daginn eftir, mið-
vikudag, en þá um kvöldið bauð íslenska
deildin erlendu gestunum til kvöldverðar i
Norræna húsinu, með almennri þátttöku
deildarfélaga. Sýnd var landkynningarkvik-
mynd, er Loftleiðir léðu, og einn erlendu
13