Bókasafnið - 01.03.1982, Page 36
3. Nordisk konference om registrering
af igangværende forskning
Mjög er misjafnt frá einu landi til annars,
hvemig háttað er skráningu verkefna, sem
unnið er að, en ekki hefur verið lokið.
NORDINFO efndi því til ráðstefnu um
efnið í Óðinsvéum 31. sept.-2. okt. 1981. Til
ráðstefnunnar var boðið fulltrúum rann-
sóknarmanna og þeirra aðila sem annast
stjóm og skipulagningu rannsókna, en síðast
en ekki síst þeim sem annast skráningu
rannsóknarverkefna og miðlun upplýsinga
um þau. Lögð var fram greinargerð um
skipan þessara mála í hveiju landi og íhug-
að, hvaða leiðir væru færar til að koma upp
samræmdri skráningu rannsóknarverkefna,
annað hvort í hverju landi um sig eða fyrir
löndin sameiginlega. Einnig var metin
þörfin á slíkri skráningu almennt. Þátttak-
andi af hálfu íslands var Sigrún K. Hann-
esdóttir lektor.
4. Kartlággning över brister i
basmaterialförsörjningen i Norden
Skýrsla um niðurstöður könnunar frá
1980. Höfundar eru Lars-Erik Sanner og Siv
Wesslén. Viðfangsefnið á rætur að rekja til
Scandia-áætlunarinnar svonefndu og miðar
að því að tryggja skynsamlega verkaskipt-
ingu um öflun erlendra rita til rannsóknar-
bókasafna á Norðurlöndum. Skýrslan hafði
áður komið út í bráðabirgðaútgáfu, sem
tekin var ti! umfjöllunar á sérstökum fundi í
Stokkhólmi í desember 1981. Þar var einnig
fjallað um annað skylt verkefni, sem
NORDINFO hefur gengist fyrir og beinist
að lánahreyfingu rita milli Norðurlanda
innbyrðis annars vegar og Norðurlanda og
annarra landa hins vegar. Nefnist sú könn-
un „UAP (Universal Availability of Publi-
cations) i Norden“.
Bókasöfn og stofnanir, sem áhuga hafa á
að fá fréttaritið NORDINFO-NYTT sent
reglulega, geta skrifað eftir því beint til
stofnunarinnar, en ritinu er dreift ókeypis.
Svo er einnig um þau sérefnisrit, sem hér
hafa verið talin, en upplag sumra þeirra er
takmarkað. Póstáritunin er: NORDINFO,
c/o Tekniska högskolans bibliotek, Otnás-
vágen 9, SF 02150 Esbo 15, Finland.
Samstarfsnefnd —
Framhald af bls. 21
AGRIS (Agricultural Information System).
Umsögn um málið send Rannsóknaráði.
Nefndin þiggur boð frá Norsk doku-
mentasjonsgruppe um að eiga aðild að
undirbúningi 5. norrænu IoD-ráðstefnunn-
ar sem haldin verður í Þrándheimi 16,—17.
júní 1982. Boðið þegið. Auglýsingu um ráð-
stefnuna dreift til ýmissa aðila.
Bréf barst frá NORDINFO, dags. 4/9
1981, þar sem spurt er hvort samstarfs-
nefndin hafi fram að færa tillögur um
framtíðarskipulag NOSP (Nordisk sam-
katalog over periodika). Nefndin fjallaði
um erindið og sendi NORDINFO umsögn
sína.
36