Bókasafnið - 01.03.1982, Page 38
KS BÓKASAFNS-
HÚSGÖGN
Kristján Siggeirsson hf. kynnti
á vorfundi um málefni al-
menningsbókasafna í júní s.l.
ný húsgögn fyrir bókasöfn, og
vöktu þau mikla athygli. Fyrir-
tækið hefur verið að þróa þessi
húsgögn síðasta árið í sam-
vinnu við starfsmenn bóka-
safna og kunnáttufólk á þessu
sviði, og nú nýlega hafið
framleiðslu á þeim.
KS bókasafnið hefur bæði
vegghillur og fristandandi eyj-
ar. Hillur hlið við hlið eru
samtengdar, sem hefur um
20% sparnað í för með sér,
auk þess sem við bjóðum
bókasöfnum þessi húsgögn á
hagstæðu verði. í hillurnar
fást bóka- og blaðaskáhillur
og i þær má setja ýmsa fylgi-
hluti, sem falla að þörfum
bókasafna.
Auk þessa bjóðum við bóka-
vagna, afgreiðsluborð, les-
borð, stóla við borð og í setu-
stofu og ýmsa aðra hluti fyrir
bókasöfn.
KS BOKA-
VAGN
Bókavagninn vakti sérstaka athygli á
vorfundi um almenningsbókasöfn í
júní s.l. Hann fæst í tveimur stærðum,
undir honum eru góð hjól og allur er
hann hinn þægilegasti í notkun.
KRISTJfifl
SIGGGIRSSOn HF.
LAUGAVEGI 13, REYKJAVÍK, SIMI 25870
38