Bókasafnið - 01.03.1982, Blaðsíða 39
c
1
TOGARAÖLDIN
Stórveldismenn og kotkarlar
1. bindi ritverks eftir Gils Guðmundsson er
fjallar um mesta byltingarskeió íslenskrar at-
vinnusögu. í bókinni er greint frá upphafi tog-
veiða viö ísland, samskiptum íslendinga viö er-
lenda togaramenn, sem stundum voru brösótt,
deilum um hvort íslendingar sjálfir ættu að hefja
togaraútgerð og frá fyrstu tilraununum sem mis-
heppnuðust og frá landhelgisgæslunni sem var í
höndum Dana og þótti heldur lítilfjörleg, þótt á
því væru undantekningar. í bókinni eru fjölmarg-
ar myndir sem sumar hverjar hafa aldrei birst áð-
ur og hafa því mikið sögulegt gildi.
LANDIÐ ÞITT — ÍSLAND
Komin eru út tvö bindi af staðfræðiritinu
LANDIÐ ÞITT — ÍSLAND eftir Þorstein Jóseps-
son og Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Hér
er um sérstætt og glæsilegt ritverk að raeða, lyk-
ilinn að leyndardómum landsins okkar, íslands,
og kjörbók allra íslenskra heimila. í bókinni er að
finna upplýsingar um sögu og sérkenni þúsunda
staða, bæja, kauptúna, héraða og landshluta. í
bókunum eru fleiri hundruó litmyndir, sem auka
mjög gildi bókarinnar og auðveldar fólki aö átta
sig á staðháttum og auka þekkingu sína á land-
inu. Vert er einnig að benda áað í bókunum eru
fjölmargar gamlar litmyndir, þannig aö einnig er
brugðið upp svipmyndum liðins tíma. Þegar
fyrsta bindi þessa ritverks kom út í fyrra komst
einn bókmenntagagnrýnenda, Andrés Kristjáns-
son, svo að orði að þetta ritverk væri
sáttmálsörk lands og þjóöar og eru það orð aö
sönnu.
39