Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.1983, Blaðsíða 9

Bókasafnið - 01.06.1983, Blaðsíða 9
« SKIPST Á SKODUNUM Um bókasöfn, rithöfunda og bókaútgáfu [„Mikill misskilningur ef bókaverdir halda sig inna af hendi einhverja þjónustu við rithöfunda. 9? — segir Jóhannes Helgi, rithöfundur Spurt er um viðhorf undirritaðs til al- menningshókasafna og hókavarða. Þaö i er satt hest sagt alveg á mörkunum að ég vilji sjá af klukkutima i umfjöllunina. 1 Svör min og kollega minna munu engu breyta. Þetta þjóðféíag okkar er ekki þeirrar gerðar að það taki sönsum frammi fyrir rökum. það hefur sýnt sig að þessi furðuskepna sem heitir rikisvald og rekur m.a. almenningshókasöfnin. tekur ekki afstöðu lil nokkurs skapaðs hlutar. leiðréttir ekki nokkurt rangheti. nema frammi fyrir krepptum hnefum manna sem eru þess umkomnir að valda umtalsverðum usla í samfélaginu. Og það hefur þvi miður einnig komið á daginn að rithöfundar i landinu eru svo guðsvolaður söfnuður að hann ber ekki einu sinni g;efu til að standa vörð um fjöregg sitt. höfundarréttinn og lifs- nauðsynlegan afrakstur hans. Það er ekki fyrr húið að sameina rithöfunda í eitt hagsmunafélag. sem einhvers ;elti að vera megnugt. en byrjað er að bera inn á fundina sprengiefni sem heitir pólitik. og nú eru samtökin aðliðast i sundur rétt einusinni. En mérskilsl að þjófnaðurinn á höfundarrélti. alger til skamms tima. þetta furðulega fyrirbæri sem nánast | ókeypis útlán á hugverkum er. séu gamlar ofdrykkjuvarnir. eigi r;etur sinar að rekja til einhverra kurfa sem sátu á alþingi á fyrri helmingi aldarinnar. Þá var kreppa i landi og atvinnuleysi og með einhverjum h;etti þurfti að tryggja að menn legðust ekki i hrennivin i ein- i beru afþreyingarskyni. En það er ekki k hægt að gefa það sem maður ekki á I nema gera annað tveggja. kaupa það fyrst — eða sölsa undir sig. sem erháttur ófrómra. og þann kost valdi alþingi. Þvi dugði ekki að hafa áður gert höfundar- rétt. skýlausan eignarrétt. upptækan til rikisins nokkrum áratugum eftir lát höf- unda. Þeirskyldu lika rúnir lifandi — og það er á þvi ráni sem almenningsbóka- söfn og bóka.erðir og lánþegar þrifast I og hafa gert lengi. Og með sihækkandi | söluskatli á bækur hefur rikisvaldið þrengl kosti starfandi rithöfunda i þeim mæli. að þeir eru nánast þjöðnýtlir. Launatekjur þcirra eru álika tryggar og manns sem hefur bingóspil að alvinnu. lifevnssjóðsréttimL^^^^^^^s'ir ekki Og við störfum ekki aðeins í minnsta málsamfélagi i veröldinni: leiðin frá þvi vfir i iinnur málsvæði er svo ógreið sem framast má vera. íslendingar á niunda tug aldarinnar hafa ekki aðcins væng- týft heila kynslóð rithöfunda. þeir eru langt komnir með aðdrepa hana. og það á mesta verklegu franifaraskeiði þjóð- arinnar. Nokkur bragarbót hefur verið gerð á höfundarrettargreiðslum fyrir útlán bóka á siðustu árum. citthvað kákað i málið. þannig að á siðasta ári voru veittar á fjárlögum S(MI þúsund krónur i þessu skyni. u.þ.b. tvö þrjú þúsund krónur per haus. (ireiðslurnar eru samt ekki miðaðar við útlán á bókum ein- stakra höfunda. það telja bókaverðir nánast óframkvæmanlegt. ef ekki auka- atriði. og við lifum á tölvuöld. Þessi fyr- irsláttur bókavarða ber ekki votl um vkja mikinn skilning á eignarélti. Slik talning hefur aldrei verið vandamál i nágrannalöndum. sem inna af hendi greiðslur til höfunda í samræmi við út- lán á bókum þeirra. Islensku söfnin greiða samkvæmt titlafjölda i hillunum. Eg hvst ekki við að það sé almennt á vitorði bókavarða hve fráletur afrakstur islenskra höfunda af bókum sinum i al- menningsbókasöfnum er i samanburði við önnur riki. t.d. Danmttrku. ekki stærra riki þö. Það sem útlánahæsti htif- undur Dana ber úr býtum árlega er hundraðfiild sú upphæð sem eintaka- h;esti islendingurinn fær i sinn hlut. og kemur fleira til t Þ.iðJ stjórnvöldum að traðka á rilhöfundum i ' landi sinu. Það er mikill misskilningur ef bóka- verðir halda sig inna af hendi einhverja þjónustu við rithöfunda i landinu. Það er þveröfugt eins og greiðslum til | höfunda er háttað i dag. Maður sem getur fengið.bækur heimscndar að vild sér að kostnaðarlausu. hann kaupir ekki bækur svo nokkru nemi. hann fer heldur i tvær sólalandaferðir á ári. Ég skil hann vcl. f:.f umsvif bókasafnanna halda áfram að aukast án þess að greiðsla af einhvcrju viti til höfunda komi til munu ( söfnin ganga af bókaútgáfunni í landinu dauðri. Það er svo einfalt. Hún hefur þegar skroppið svo saman að farið er að nálgast hættumörk. E.g skrifaði fyrir nokkrum árum greinaflokk um þessi efni. Ein greinin hét Bók er biö. Nú vill svo til að hægt er að gera samanburð á heimlánuðu biói og heimlánaðri bók. Ég á við videóið. sem gerði íslendinga á augabragði að i kræfustu höfundarréttarþjófum sem um getur í heimsbyggðinni: hugsunarhátt- urinn er korninn beinustu boðleið frá ríkisvaldinu. Leigugjald fyrir Vídeó- spólu er fimmtiu krónur á sólarhring. Bók er biö. Leigugjald fyrir bók er átta aurar á sólarhring. fjórir aurar. ef tvæ eru lesnar. Einfalt reikningsdæmi. Árs kort frá Borgarbókasafninu kostar þrjá- I tíu krónur á ári. Hingað hafa nýlega komið erlendir lögfræðingar. gæslumenn höfundarrétt- Videóspóluframleiðendanna oghaft I síðasta tölublaði Bókasafnsins (6. árg., 2. tbl. 1982) voru birt svör tveggja rithöfunda við spurningu um viðhorf þeirra til almenningsbókasafna og bóka- varða. Hér á eftir birtist svar Péturs Gunnarssonar rithöfundar við sömu spurningu, en grein hans féll niður i sið- asta blaði. Fyrst verða birtar greinar sem urðu til vegna skrifa Jóhannesar Helga rithöfundar í síðasta tölublaði. I upphafi greinar sinnar lýsir Jó- hannes Helgi (skst. JH hér á eftir) þeirri furðuskepnu er heiti ríkisvald og reki m.a. almenningsbókasöfn. JH telur að því miður séu íslenskir rithöfundar svo guðsvolaður söfnuður. að þeir beri ekki gæfu til að standa vörð um fjöregg sitt, höfundarréttinn og afrakstur hans. I grein sinni leggur JH megináherslu á að með óviðunandi greiðslum til rithöf- unda fyrir útlán verka þeirra í almenn- ingsbókasöfnum, stundi söfnin þjófnað á höfundarrétti. Á því ráni þrífist al- nrenningsbókasöfn, bókaverðir og lán- þegarog hafi gert lengi. Þá gagnrýnir JH þann hátt sem er á greiðslum til rithöf- unda. Þær séu ekki miðaðar við útlán bóka höfunda heldurgreiði söfnin sam- kvæmt titlafjölda í hillunum. Enn- fremur segir JH að bókaverðir telji óframkvæmanlegt, ef ekki aukaatriði, að miða þær við útlán. Þetta telur JH vera fyrirslátt sem beri ekki vott um ýkja mikinn skilning á eignarétti. Þá segir JH að slík talning hafi aldrei verið vanda- nrál í nágrannalöndum, sem greiði höf- undum í samræmi við útlán á bókum þeirra. Niðurstaða JH er sú að það sé mikill misskilningur ef bókaverðir telja sig inna af hendi einhverja þjónustu við íslenska rithöfunda. Það sé þveröfugt - eins og greiðslum til rithöfunda sé hátt- að í dag. Þá telur JH að haldi urnsvif bókasafnanna áfram að aukast án þess að umtalsverð greiðsla til rithöfunda komi til, muni söfnin ganga af bókaút- gáfu í landinu dauðri, en hún hafi skroppið svo saman að nálgist hættu- mörk. Síðan fjallar JH um leigu á „Vídeó- spólum", og telur að sama gjald eigi að greiða fyrir útlán á eintaki bókar og leigu einnar spólu. Hluti af því gjaldi ætti að renna til útgefenda, og myndi þá bókaútgáfan eflast aftur að gæðurn, og höfundum væru tryggð laun fyrir vinnu sína. í síðasta kafla greinarinnar segir Jó- hannes Helgi bókaútgefandi frá óvænt- um viðbrögðum bókasafna, þegar hann bauð þeim bók sína Hús málarans endurútgefna til kaups. í lokin leggur Jóhannes Helgi til að bókasafnsfræð- ingar, og þá einkum bókaverðir Borgar- bókasafnsins, svari eftirfarandi spurn- ingu: „Hvert er viðhorf yðar til rithöf- unda og bókaútgefanda?" (Endursögn VG) 9

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.