Bókasafnið - 01.11.1985, Page 6
Norrænt samstarf
og stundum nokkuð spennandi
hvernig úr mundi rætast en allir
skiluðu þeir sér þó að lokum.
Þótt undirbúningur hinnar
fræðilegu dagskrár tæki mikinn
tíma, þurfti ekki síður að hyggja
að skemmti- og menningarefni
sem ætlaður var hlutur í dagskrá
þingsins. Eins og áður sagði hafði
verið gert ráð fyrir rnóti bók-
menntagagnrýnenda á svipuðum
tíma og ætlunin að hafa samstarf
við þá, meðal annars með bók-
menntadagskrá að kvöldi til.
Einnig var um tíma talið að
hingað gæti fengist leikflokkur
norskra Sama í tilcfni þingsins.
Hvorugt rættist. Þá var leitað eftir
efni hjá Þjóðleikhúsi og Listahátíð
en hjá hvorugum aðilanum var
hentugt efni til reiðu. Varð því
rninna úr þætti skapandi lista í
dagskránni en undirbúningsnefnd
hefði viljað.
Ýmsar ráðagerðir voru uppi
um sýningar á þingtímanum cn
þrernur var komið upp sem
tengdust þinginu og voru
skoðaðar af mörgum þinggestum.
Voru það sýning í Landsbókasafni
í tilefni 700 ára dánarafmæli Sturlu
Þórðarsonar, bókasýningar í
bókasafni Norræna hússins og
farandsýning um nýbyggingar
rannsóknarbókasafna á Norður-
löndum á vegum NVBF, er
komið var fyrir í anddyri Háskól-
ans.
Á síðustu vikum undirbúnings-
ins fékk nefndin til liðs við sig
fleira fólk til ýmissa verka. Anna
Torfadóttir og Hildur Eyþórs-
dóttir unnu að fjáröflun, Helga
Einarsdóttir raðaði niður í fundar-
húsnæði og Hrafnhildur Hreins-
dóttir starfaði sem blaðafulltrúi.
Ýmsir fleiri lögðu hönd á plóginn.
Margvíslegt tillag stóru safnanna
þriggja, Borgarbókasafns, Lands-
bókasafns og Háskólabókasafns,
svo og embættis bókafulltrúa
ríkisins var afar mikilvægt á
þessum tíma sem og á öllum
stigum undirbúningsins, og var
raunar forsenda fyrir því að hægt
var að undirbúa þingið svo sem
gert var. Á hinum Norðurlönd-
unum eru skrifstofur bókavarða-
félaganna önnum kafnar við
undirbúning þinganna allt að ári á
undan, en starfslið Bókavarðafé-
lags íslands er ekki margt sem
kunnugt er, og lítið fer fyrir skrif-
stofunni.
Síðustu dagarnir fyrir þingið
voru æði spennandi hjá undirbún-
ingsnefndinni en allt komst þó af
á tilsettum tíma. Varla er hægt að
segja að neitt gengi úrskeiðis,
nema þá það að einn danski fyrir-
lesarinn kom að luktum dyrum
um nótt á Norræna húsinu og
gramdist það heldur sem vonlegt
var. Þinggestir tóku að flykkjast
að á laugardeginum 23. júní og
þá var opnuð skrifstofa þingsins,
sem starfaði í aðalbyggingu
Háskólans og var mönnuð starfs-
liði Ferðaskrifstofu íslands og
undirbúningsnefndinni. Og
sunnudaginn 24. júní var þingið
sett í Þjóðleikhúsinu. Þriggja ára
undirbúningsvinna var að baki og
nú var að því komið að árangur-
inn birtist.
Þingið og dagskrá þess
Setningarathöfnin fór vel og
virðulega fram í hátíðlegu
umhverfi. Fornraður undirbún-
ingsnefndar, Elfa-Björk Gunnars-
dóttir, setti þingið og Eiður
Guðnason, alþingismaður og
formaður norrænu menningar-
málanefndarinnar, fluttu ávarp en
síðan fluttu fulltrúar grannþjóð-
anna kveðjur. Öll komust þau
hnyttilega að orði og slógu á létta
eða alvarlega strengi eftir því sem
við átti en Blásarakvintett Reykja-
víkur og listafólk frá Þjóðdansa-
félagi Reykjavíkur komu fram á
milli og fluttu nrúsík og dans af
listfengi og smekkvísi. Um
kvöldið var síðan móttaka á
vegum Reykjavíkurborgar og
Menntamálaráðuneytisins á Kjar-
valsstöðum. Var þar vel veitt, létt
yfir fólki og gleði góð fram yfir
miðnætti.
Eins og áður sagði var dagskrá
þingsins mjög fjölbreytt og voru
oftast tvö eða þrjú efni til með-
ferðar á sama tíma. Sá háttur á að
tryggja að sem flestir finni efni á
sínu áhugasviði, en stundum
leiðir það þó til óánægju þeirra
sem langar til að fylgjast með
fleiru en einu af því sem fer fram
samtímis. Því er líka mikilvægt að
viðfangsefnin séu nægilega sund-
urleit. Sé hins vegar boðið upp á
eitt efni fyrir alla er nauðsynlegt
að það sé nægilega víðfeðmt til að
senr flestir hafi áhuga á því.
Því cr ekki að leyna að undirrit-
aður er, líkt og aðrir í undirbún-
ingsnefndinni, lítt til þess fallinn
að grcina ítarlega frá dagskrár-
liðunr og nreta gildi þcirra, vegna
þess að hann var að jafnaði á
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir og Elfa-Björk Gunnarsdóttir, fortnaðnr
undirbúningsnefndanna tveggja, ganga út úr Þjóðleikhúsinu að lokinni setn-
ingarathöfn þitigsins.
6
BÓKASAFNIÐ