Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.1996, Side 79

Bókasafnið - 01.06.1996, Side 79
Kostir beinlínuaðgangs að rafrtenum texta- og töluupplýsingum 36 bókasöfn (97% svörun) % af 36 í KUL 22 (100%) % af 22 Aðrar stofnanir 14 (47%) % af 14 Bókasafnið borgar aðeins fyrir það efni sem notað er: 25 69% 16 73% 9 64% Það leysir að hluta til rýmisþörf: 25 69% 15 68% 10 71% Bókasafnið sparar peninga sem nota má til annarrar þjónustu: 12 33% 5 23% 7 50% Afmarkaður kostnaður sem auðvelt er að láta notendur greiða: 12 33% 7 32% 5 36% Bókasafnið getur boðið upp á aðgang að meira úrvali efnis: 15 42% 14 64% 1 7% Aðrir kostir: 5 14% 3 14% 2 14% Aðrir kostir sem nefndir voru: notendur fá upplýsingar í stað bóka; upplýsingar fást með skjótum liætti alls staðar að úr heiminum (2 svör); hægt er að gera mun á þeim tímaritum sem þurfa að vera í bókasafninu í prentaðri útgáfu á pappír og hinna sem aðeins er þörf á sjaldan; bjóða má notendum upp á aðgang að gífurlegu úrvali; koma mi upp rafrænum gagnasöfnum á staðnum Athugasemdir (5, 4 frá bókasöfnum utan Kaþólska hiskólans): • pappír sem miðill fyrir dreifmgu upplýsinga og þekkingar hefur mikla aðlögunarhæfdeika • þetta getur aðeins gerst ef notendur vilja borga fyrir það • það fer eftir notendum og fjárhag bókasafnanna • það fer eftir því hvert verð áskriftar í pappírsformi er í samanburði við verð á aðgangi að og sendingu gagna á rafrænu formi • ég tel ekki að þetta muni Ieiða til nokkurs sparnaðar fyrir bókasöfnin að temja sér nýja hætti við rannsóknir en aðeins 23% svar- enda innan Kaþólska háskólans töldu það galla. Fleiri telja það galla (46%) en kost (33%) að kostnaður við rafrænar upplýsingar er skýrt afmarkaður og auðvelt er því að láta notendur greiða hann. Smámunur er á svörum frá bóka- söfnum innan Kaþólska háskólans og utan hans varðandi þetta atriði. Stærri hluti bókasafna utan Kaþólska háskól- ans taldi þetta bæði kost og galla. Helstu gallar pess að panta gögn úr rafrœnum gagnasöfhum samkvœmt beiðni Athygli vekur að helstu gallar þess að panta gögn úr raf- rænum gagnasöfnum fremur en að kaupa þau til bóka- safnsins útgefm á pappír eru taldir vera takmarkanir á að- gangi að upplýsingum, nú og í framtíðinni. Gallarnir sem flestir svarenda merktu við eru: „Safngestir hafa ekki neitt safhefhi tilþess að hlaða í“ (tæp 70%), „efni sem vísað er til getur veriðorðiðóaðgengilegt eftir tiltekinn tíma“(tæp 70%), „óvissa um kostnaðþessararþjónustu í framtíðinni “ (60%). Það vekur jafnframt athygli að ekki skuli litið á það sem meiri háttar galla að fé er eytt án þess að safnkostur vaxi, í ljósi þess að meðal helstu galla er: „að safngestir munu ekki hafa safnkost til þess að blaða í“ og „að efhi sem vísað er til getur verið orðið óaðgengilegt eftir tiltekinn tíma . Athyglis- verður munur er á svörum frá bókasöfnum innan Kaþolska háskólans og utan hans. í meirihluta bokasafna (86%) inn- an Kaþólska háskólans er merkt við það sem galla að safn- gestir munu ekki hafa neitt til þess að blaða í, utan hans er aðeins merkt við þennan galla í 39% bókasafna. Á hinn bóginn merkja aðeins 23% bókasafna innan Kaþólska há- skólans við það sem galla að fólk verður, að hluta til, að vinna að rannsóknum á annan hátt í framtiðinni, en það telja 46% svarenda utan Kaþólska háskólans galla. I heild má segja að svarendur telja nýju tæknina bæði hafa kosti og galla. IV Uppbygging safhkosts í framtíðinni Hvernig er líklegt að uppbygging safnkosts þróist í framtíðinni þegar tækniþróun nútímans er höfð í huga? Um þetta var spurt með opinni spurningu. Svörin voru mjög mismunandi, Sumir töldu að engar breytingar yrðu, en aðrir að þær gætu orðið miklar. Eitt svar var á þessa leið: „engar breytingar eru sjáanlegar í náinni framtíð, þar sem engin samvinna hejur verið íþessum efnum fram tilþessa“og annað: „ég sé ekki að miklar breytingar geti átt sér stað í litl- um bókasöfhum, í náinni framtíð, vegna þess hve þessi þjón- usta (sem nýtir nýja tœkni til upplýsingamiðlunar) er dýr“. Dæmi af svörum þeirra sem bjuggust við breytingum: „ Uppbygging sajhkosts hefiur nú þegar breyst mikið, mí er hœgt að sjá (í beinlínuaðgangi) hvað er til á öðrum bókasöfnum, og hvaðþau hafa pantað, ...“, og: „með aðgangi að rafrœnum upplýsingum er hœgt að velja til safnsins af mun meiri ná- kvœmni“. Margir svarenda töldu að aðgangur að safnefni yrði ennþá mikilvægari, en nú, sérstaklega aðgangur að raf- rænum upplýsingum, sumir nefndu einnig mikilvægi að- gangs að safnkosti annarra bókasafna með millisafnalánum. Átt er við aðgang að safnefni fremur en eign þess. Afleið- ingu af því taldi einn svarenda verða þá að bókasöfn yrðu minni (þ.e. að á hverju bókasafni yrðu færri einingar í boði) og annar taldi ennfremur að það yrði til þess að safnkostur hvers bókasafns yrði jafnframt sérhæfðari. Væntanlega vegna þess að minna af jaðarefni yrði keypt til bókasafna heldur aðeins boðið upp á aðgang að því annars staðar, með millisafnalánum og með aðgangi að rafrænum gagna- Bókasafhið 20. árg. 1996 79

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.