Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1917, Side 126
2Ó
Hið íslenska fræðafjelag í Kaupmannahöfn
Afmælisrit til dr. phil. Kr. Kálunds, með 8 myndura, æh
sögu dr. Kálunds og 6 ritgjörðum. 2,00.
Árferði á íslandi í þúsund ár eftir Þorvald Thoroddsen,
I. h. bókhlöðuverð 5 kr., áskrifendaverð 3 kr., 2. h. bókhlöðuverð 6 kr.r
áskrifendaverð 3,50. Öll bókin 11 kr., áskrifendaverð 6,50, gildir til 1.
oktbr. 1917.
Handbók í íslendinga sögu eftir Boga Th. Melsteð, 1.
b. 2,00 til ársloka 1917 fyrir kaupendur að öllum bindun*
um, er eiga að verða 6 og kosta áskrifendur að eins 12 kr. Bókhlöðu-
verð 1. bindis er 3,75, allra bindanna 24—30 kr., eftir því, hve dýrt
verður að prenta.
Ársrit hins íslenska fræðafjelags, með myndum, 1. ár 1,50.
Heimilisfastir áskrifendur á tslandi geta til ársloka feng-
ið Ársritið fyrir hálfvirði, 75 aura. 2. ár sama verð; er það
því eftir stærð og frágangi hin langódýrasta bók, sem út kemur á ís-
lensku í dýrtíð þessari. Fræðafjelagið gerir þetta til þess, að ungir og
fátækir alþýðumenn, sem oft eru fróðleiksfúsir, geti eignast Ársritið.
Einnig er það hugsunin, að gera tilraun til þess að koma út á íslensku
fróðlegu Ársriti með myndum og margvíslegu efni, bæði frá íslandi og
víðsvegar frá öðrum löndum, er verði afaródýrt, eins og sum alþýðurit
eru hjá fjölmennu þjóðunum, því svo framarlega sem ritið fær svo marga.
kaupendur á íslandi, að fjelagið fái 3/4 af kostnaðinum endurgoldinn það-
an, verður það framvegis selt þar á hálfvirði öllum þeim, sem gerast
kaupendur þess nú þegar, og ekki hækkað í verði við þá, á meðan það
fer eigi fram úr 144 bls. alls. Frá 1. janúar 1918 verður 1. og 2. ár
selt á 1,50.
Fræðafjelagið gerir sjer far um að vanda allan fiágang á bókum
sínum, og vonar að það hafi góð áhrif á íslenska bókagerð.
Til þess að keppa ekki við Bókmentafjelagið, hefur Fræðafjehigið-
ekki fast árstillag; en til þess £tð hinir tryggu viðskiftamenn þess geti
fengið bækur þær, sem það gefur út, með góðu verði, verða þær, er um
stór rit er að ræða, annaðhvort seldar með miklu lægra verði áskrifend-
um, á meðan þær eru að koma út, eins og t. a. m. Jarðabókin, eða
þær verða í fyrstu látnar fyrir hjer um bil hálfvirði, eins og Ferðabók
Thoroddsens og Handbók í íslendinga sögu. það er því áríðandi fyrir
þá menn, sem vilja fá rit Fræðafjelagsins með mjög vægu verði, að
kaupa þau sem fyrst. Á því spara þeir fje og það greiðir fyrir bóka-
sölunni. í*á er lítið er orðið eftir af slíkum bókum, byrjar bókhlöðu-
verðið; en engin bók, sem Fræðafjelagið gefur út, verður sett niður úr
bókhlöðuverði, úr því að það er komið í gildi. Ef t. a. m. nógu margir
menn kaupa Ársritið nú þegar, fá þeir það ávalt, á meðan það stígur
ekki yfir 9 arkir prentaðar, fyrir 75 aura, svo framarlega sem fjelagið-
fær þrjá fjórðunga kostnaðarins á íslandi. Að öðrum kosti sjer Fræða-
fjelagið sjer eigi fært að selja þar Ársritið svo ódýrt.
Fræðafjelagið vill efla greið viðskifti.