Dagur - 25.11.1997, Page 2
2 -PRIÐJUDAGUR 2S.NÓVEMBER 1997
FRÉTTIR
L A
Brátt varð um gamanið hjá Huldu Gunnarsdóttur, fréttamanni á Stöð 2/Byigjunni, um helgina þegar hún meiddist illa á fæti á leiðinni á 100 ára
afmælisfagnað Blaðamannfélags íslands. Hún verður fjarri fréttamennskunni næstu vikur en hyggst ekki sitja aðgerðalaus á meðan. mynd:bg
Fréttamanni
varð fótaskortur
Huldu Guimarsdóttur
varð fótaskotur um helg-
ina. Hvorki á tuugunui ué
í fréttamannsstarfinu
heldur við holræsi
skammt frá Hótel íslandi
þar sem 100 ára afmæli
Blaðamannfélags íslands
var haldið hátíðlegt.
Fréttamaður Stöðvar 2/Bylgjunnar,
Hulda Gunnarsdóttir, varð fyrir því
óhappi síðastliðið Iaugardagskvöld að
detta í holræsi og slasa sig á fæti. Hún
missti meðvitund um tíma. Slysið varð
FRÉTTA VIÐ TALIÐ
rétt fyrir utan Hótel Island þar sem
Hulda var ásamt starfsfélögum og
mökum á leið í 100 ára afmælisfagnað
Blaðamannafélags Islands.
„Eg var að fara út úr strætisvagnin-
um og datt ofan í opið holræsi við Ar-
múlaskólann. Ég hélt fyrst að þetta
væri ekkert alvarlegt og reyndi að ein-
beita mér að því að laga skóhælinn, en
það næsta sem ég man er þegar ég
rankaði við mér í sjúkrabíl," segir
Hulda sem slapp við fótbrot en tölu-
vert blæddi inn á beinhimnu. Fylgdar-
Iið fréttakonunnar bar Huldu inn í
söluturinn Arnesti þar sem hlúð var að
henni á meðan beðið var sjúkrabíls.
Hún Iét svo vita af sér um klukkan
21.00 og létti starfsfélögum hennar þá
mikið, enda ógaman að skilja við konu
sem þeir höfðu árangurslaust reynt að
koma til meðvitundar.
Hulda ætlar ekki að láta málið kjurrt
Iiggja vegna frágangs borgarinnar á
ræsinu. „Maður á að geta gengið um
göturnar óhult án þess að eiga á hættu
að lenda í slysi við hvert fótmál. Ræsið
var opið f alfaraleið og án þess að ég
viti hverjum um er að kenna er þetta
mjög alvarlegt mál sem ég á eftir að
skoða frekar.“
- Og er þetta í fyrsta skipti sem þú
misstígur þig með þetta dramatískum
hætti í fréttamannsstarfinu?
„Það má með sanni segja. Ég held ég
hafi aldrei lent jafn illa í því og þetta
kvöld.“ — BÞ
.T^ur
Það fór fyrir brjóstið á mörgum
í heita pottinum að Sjónvarpið
skyldi klippa á útsendingu frá
biskupsvígslunni á sunnudag-
inn til þess að hleypa að Kalla
og vofunni í svokölluðum 3-bíó-
sýningum. Tímasetningar
kirkjunnar manna stóðust ekki
nákvæmlega og frekar en seinka
3-bíóinu var slökkt á útsending-
unni úr Hallgrímskirkju í miðj-
um sálmasöng. Heyrst hefur að margir hafi
hringt ævareiðir í Sjónvarpið og lýst hneykslan
sinni. Flestir vildu kenna íþróttadeildinni um
því síðdegis var bein útsending frá sundkeppni,
en deildin er sögð alsaklaus að þessu sinni.
Lítið lagðist fyrir kappann Öss-
ur Skarphéðinsson þótti mönn-
um á Pressuballinu um helgina.
Þjóðargersemin Diddú fór á
kostum og söng flögrandi um
salinn þar til hún bauð upp í
vals - nýskipuðum ritstjóra sem
missti karlmennskuna ofan í
súpudiskinn og þorði ekki út á ,
gólf með hinni fögru dívu söng- karphéðinsson.
listarinnar. Hún trúði auðvitað
ekki eigin augum og eyrum, og enginn þeirra
hundruða spariklæddra gesta sem mændu á
kappann afneita glitklæddri söngkonunni. En
urriðinn hristi bara hausinn, svo það kom í hlut
Atla Steinarssonar að bjarga stéttinni og taka
sveiflu - með stæl.
Kvennamálin hjá Sjálfstæðis-
flokknum í Reykjavík eru sívin-
sælt umræðuefni í heita pottin-
um. Eins og áður hefur komið
fram mun það hafa komið upp
að Guðrún Pétursdóttir verði
kölluð inn á lista sjálfstæðis-
manna til að Ijölga þar konum.
Slíkt er þó talin ólíkleg niður-
staða enda Guðrún mikil vin-
kona Ingibjargar Sólrúnar. Nú
er fullyrt að konan í lífi sjálfstæðismanna í
Reykjavík heiti Asdís Halla Bragadóttir, aðstoð-
armaður mennstamálaráðherra, og að reynt
verði að fá hana inn á listann.
Ásdís Halla
Bragadóttir.
Össur
Karl
Sigurbjörnsson.
Líkur á sérframboði
taldar hafa aukist
Jóhann G. Berg-
þórsson
verkfræðingur og bæjarfulltrún.
Prófkjörslisti Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði vinn-
urekki meirihluta í bæjar-
stjóminni. Tveirþriðju
flokksmanna á bandi Jó-
hanns G. ogfélaga að eigin
sögn.
— Telurðu að Sjálfstæðisflokkurinn í
Hafnarfirði hafi á að skipa sigurstangleg-
um lista við sveitarstjórnarkosningamar
á næsta ári í Ijósi niðurstöðunnar í próf-
kjöri þeirra um sl. helgi?
„Ekki get ég sagt það og það er nokkuð
ljóst að þessi listi mun ekki vinna meirihluta
í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Það eru margar
ástæður fyrir því en fyrst og fremst vegna
þess hvað þátttakan í prófkjörinu var döpur.
Það var sagt að það væru 1850 manns
flokksbundir fyrir prófkjör og heyrst að um
300 manns hafi gengið í flokkinn fyrir próf-
kjörið. Miðað við þátttökuna voru það 623,
eða einn þriðji sem tók þátt í prófkjörinu.
Þannig að ég vil að meina að ég og Ellert
Borgar Þorvaldsson eigum þessa tvo þriðju
flokksmanna sem ekki kusu í prófkjörinu."
— Hefurðu skýringu á þessari dræmu
þátttöku?
„Okkar lið sniðgekk þetta og einnig þeir
sem vildu sættir í flokknum. Það er vegna
þess að öllum málaleitunum þeirra um
sættir hefur verið hafnað af þessu liði.
Þannig að þetta kom mér alls ekki á óvart og
útkoman nánast eftir bókinni eftir að við
vorum farnir út.“
— Hafa likurnar fyrir sérframboði ykk-
ar kannski aukist í Ijósi þessara dræmu
þátttöku í prófkjörinu?
„Ég mundi segja að líkurnar hafi aukist,
en við höfum enga ákvörðun tekið. Við eig-
um líka eftir að sjá hvernig klofni.ngsfram-
boð krata og klofningsframboð komma í
Firðinum mun koma út. Það er hins vegar
mikill æsingur í fólki fyrir því að við bjóðum
fram, en við bremsum það bara niður enda
nægur tími til stefnu. Það er geysilega mik-
ið þrýst á okkur að fara fram og reyndar
óþægilega mikið. Hins vegar er líka búið að
gera okkur þetta mun auðveldara en áður.
Samkvæmt nýjum kosningalögum þarf ekki
að tilkynna framboð fyrr en þremur vikum
fyrir kjördag, þannig að við höfum góðan
tíma til að vinna okkar heimavinnu."
— Hvað finnst þér um þá hugmynd að
sameina Hafnarfjörð, Garðahæ og Bessa-
staðahrepp í eitt sveitarfélag?
„Það væri auðvitað mjög jákvætt mál. Það
liggur hins vegar fyrir að Bessastaðahreppur
hafnaði sameiningu við Garðabæ í kosning-
um fyrir nokkrum árum. Þá hafa forystu-
menn í Garðabæ, bæði bæjarstjórinn og
Benedikt Sveinsson, sagt að þeir muni ekki
líta við sameiningarmálum fyrr en þeir í
Bessastaðahreppi biðja um það. A sama hátt
hafa þeir sagt að það þýði ekkert fyrir ykkur
í Hafnarfirði að tala um sameiningu við þá í
helmingi minna sveitarfélagi nema að við
biðjum um það sjálfir. Þannig að mér finnst
að boltinn í þessu máli liggja hjá þeim á
Álftanesi. Þar á bæ hafa menn lýst því opin-
berlega yfir að þeir sjá enga æskilegar for-
sendur til að sameinast, hvorki pólitískar sé
fjárhagslegar. Þannig að ég sé nú ekkert ger-
ast í þessum málum á næstunni. Þar fyrir
utan er Hafnarfjörður sjálfum sér nógur og
sjálfstæður að öllu leyti. Þannig að þessi
sameiningarmál eru að mínu viti margra ára
þróun.“ -GRll