Dagur - 25.11.1997, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 2 S .NÓVEMBER 1997 - 3
FRÉTTIR
L
Ekki beint gegn
R-listaniun
Framsóknarmenn eru harla ánægðir med eigin verk og telja sig hafa staðið við fiest
kosningaioforð sín. Þeirhafa engan áhuga á sameiningarbröiti féiagshyggjufiokkanna.
Framsóknarmeim leg-
gja á það áherslu að
bjóða fram í eigin
nafni í sem flestum
sveitarfélögum, segir
í ályktun miðstjómar
fiokksins.
Framsóknarmenn hafa engan
áhuga á að vera með í þeirri sam-
einingarhrinu félagshyggjuflokk-
anna sem setur mark sitt á und-
irhúning sveitarstjórnarkosning-
anna næsta vor. 1 ályktun aðal-
fundar miðstjórnar Framsóknar-
flokksins, sem haldinn var um
helgina, er lögð áhersla á að
flokkurinn bjóði fram „lista í eig-
in nafni í sem flestum sveitarfé-
lögum“, eins og segir orðrétt.
Sigrún Magnúsdóttir, oddviti
framsóknarmanna í Reykjavfk,
segir ályktuninni ekki beint gegn
Reykjavíkurlistanum, enda hafi
það Iengi verið yfirlýst stefna
Framsóknarflokksins að æskileg-
ast sé að flokkurinn bjóði fram
sér. „En það er breyting á pólit-
ísku landslagi þegar þeir flokkar
sem starfa með okkur í Reykja-
víkurlistanum eru að ræða sam-
einingu á landsvísu og ekkert
óeðlilegt þótt miðstjórn flokksins
kveði fast að orði um þetta.“
Efling byggðakjarna
1 stjórnmálaályktun miðstjórnar
kemur fram að framsóknarmenn
eru'harla ánægðir með eigin verk
og samstarfið í ríkissljórninni.
Þeir telja sig liafa staðið við flest
sín kosningaloforð og að sá bati
sem nú sjáist merki um í ís-
lensku efnahagslífi muni á
næstu misserum skila sér til
fólksins í landinu.
Miðstjórnin hvetur til þess að
unnið verði skipulega að því að
jafna skilyrði til búsetu í Iand-
inu. Hún telur að efling byggða-
kjarna sé enn til að byggja upp
fjölbreytt atvinnulíf um allt land.
Efling sveitarfélaga og tilflutn-
ingur verkefna til þeirra frá rík-
inu geti einnig stykt búsetu á
landsbyggðinni. Einnig þurfi að
framfylgja nú þegar ákvæðum
stjórnarsáttmálans um lækkun
húshitunarkostnaðar, jafna þurfi
kostnað við aðgang landsmanna
að ljósleiðaranum og standa
verði vörð um jafnrétti til náms,
m.a. með aukinni jöfnun náms-
kostnaðar.
Sophia Hansen.
Sendiherraim
í vitiiasfúku
Dómari í Istanbúl í Tyrklandi
vill að Olafur Egilsson sendi-
herra og Katrín Fjelsted beri
vitni í máli gegn Halim A1 vegna
brota hans á umgengnisrétti
Sophiu Hansen við dætur sínar.
Réttað var í málinu í sakadómi í
Istanbúl í gær. Samkvæmt upp-
lýsingum samtakanna Börnin
heim sýndi lögmaður Sophiu
fram á að ekki stæðust fullyrð-
ingar Halims um að dætur
Sophiu vildu ekki hitta hana.
Dómarinn óskaði þá eftir því að
Olafur og Katrín bæru vitni um
þetta efni þegar réttað verður
næst í málinu í febrúar. Þau
voru bæði viðstödd þegar
Sophia hitti dætur sínar síðast.
Dómari þessi dærndi Halim í
4 mánaða fangelsi fyrr á þessu
ári, en því var áfrýjað.
Vilja sameiningar-
úrslitin ómerk
Snorri Björn Sigurðsson, bæjarstjóri á Sauðárkróki, „fær á baukinn“ hjá tveimur fyrrverandi
bæjarfulltrúum á Sauðárkróki vegna framkvæmdar kosningar um sameiningu sveitarfélaga
í Skagafirði nýveríð.
Framkvæmd samein-
mgarkosningaima í
Skagafirði kærð.
Krafa að úrslitin
verði dæmd ómerk.
SjiíklÍTigiim á sjókra-
húsinu á Sauðárkróki
mismunað í kosning-
unni?
Sýslumanninum á Sauðárkróki
hefur borist kæra frá Erlendi
Hansen og Herði Ingimarssyni,
fyrrverandi bæjarfulltrúum á
Sauðárkróki, vegna kosningar-
innar um sameiningu sveitarfé-
laga í Skagafirði 15. nóvember
sl. Krefjast þeir ógildingar kosn-
inganna þar sem verulegir ann-
markar hafi orðið á framkvæmd-
inni.
Hörður og Erlendur segja í
kærunni að framlagning kjör-
skrár hafi verið með öllu óheim-
il. Bæjarstjórinn á Sauðárkróki
hafi afhent kjörskrárnar, undir-
ritaðar af honum sjálfum. Af
bókun bæjarstjórnar og bæjar-
ráðs verði ekki séð að kjörskráin
hafi verið afgreidd og staðfest
með lögbundnum hætti og síðan
undirrituð af allri bæjarstjórn-
inni svo hún öðlaðist lagalegt
gildi. „Kosningin gat því ekki far-
ið fram með ólögmætri kjör-
skrá,“ segir í kærunni.
Maimréttindi brotin?
Snorri Björn Sigurðsson, bæjar-
stjóri á Sauðárkróki, fær fleiri
ákúrur. Hörður og Erlendur
segja að í tugi ára hafi verið opn-
uð kjördeild hluta úr degi á
sjúkrahúsinu á Sauðárkróki en
svo hafi ekki verið nú, sem skjóti
skökku við í kosningum sem hafi
ígildi stjórnarskrárbreytinga.
Staðhæft er að starfsfólki sjúkra-
hússins hafi verið sagt að kjör-
deild yrði opnuð og fyrst síðdeg-
is hafi endanlega verið Ijóst að
ekki yrði af opnun kjördeildar. I
Lýtingsstaðahreppi munaði að-
eins 2 atkvæðum að sameiningin
yrði felld og segir í kærunni að
vitað sé að ef nokkrir einstakl-
ingar úr þeim hreppi hefðu feng-
ið að neyta kosningaréttar síns
hefðu úrslitin í Lýtingsstaða-
hreppi orðið á þann veg að sjálf-
krafa hefði orðið að endurtaka
kosninguna um sameiningu
sveitarfélaga.
Oddvitinn kannast ekki við
neitt
Dagur bar þetta undir Elínu Sig-
urðardóttur, oddvita Lýtings-
staðahrepps, í gær, en hún hafði
ekki haft spurnir af kærunni og
kannaðist ekki við umræðuna.
„Eg veit það a.m.k. að við unn-
um okkar störf jafn vel hér í Ar-
garði og framast var unnt,“ sagði
Elín. — BÞ
Oddvitinn ekki kæröiir
Náttúruvernd ríkisins telur að Gísli Einarsson, oddviti í Biskups-
tungahreppi, hafi sýnt slæmt fordæmi þegar hann framkallaði sápu-
gos nýverið án þess að hafa heimild til. Að líkindum mun Gísli þó
losna \dð lögreglukæru vegna málsins. Stjórn stofnunarinnar átelur
ofangreint athæfi oddvitans og telur það skapa slæmt fordæmi fyrir
náttúruvernd á lslandi, ekki síst vegna þeirrar stöðu sem Gísli gegn-
ir í Biskupstungnahreppi.
Eigandi Vegas á yfir höfði sér kæru
Islensk fatafella hyggst kæra Harald Böðvarsson,
einn eigenda Vegas, fýMr áreitni. Konan ber að
Haraldur hafi meinað sér útgöngu úr skrifstofu
hans og verið nærgöngull. Samkvæmt fréttum
Stöðvar 2 sturtaði hún töflum í sig til að Haraldur
leyd'ði henni að fara út og var þá kallað á sjúkrabíl.
Síðan hafi hún verið barin og sparkað í hana. Þeg-
ar konan hugðist kæra í gær til lögreglu var hún
beðin um að koma aftur í dag. Lögreglan er hugs-
anlega vanhæf í málinu þar sem Haraldur er sonur
Böðvars Bragasonar lögreglustjóra.
Sama magn af úthafskarfa
Á ársfundi Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar sem fram
fór í Lundúnum nýlega var tekin ákvörðun um veiðar á úthafskarfa á
næsta ári. lslenskum fiskiskipum verður heimilt að veiða 45.000 lest-
ir af karfa á árinu 1998 eða sama magn og nú. Einnig var samþykkt
veiðilýrirkomulag á norsk-íslenskri síld utan lögsögu aðildarríkja í
samræmi við síldarsamning fimm aðila frá 28. október sl. Er þetta í
samræmi við það fyrirkomulag sem gilt hefur á þessu ári.
Hálf miUjón í þvagfæraskurðtæki
Styrktar- og sjúkrasjóður verslunarmanna í Reykja-
\dk færði í gær á 130. afmælisdegi sjóðsins Land-
spítala Islands hálfa milljón króna að gjöf. Pening-
arnir eiga að renna í sjóð til kaupa á geislatæki til
þvagfæraskurðlækninga. Mikil þörf er fyrir slíkt
tæki til aðgerða á karlmönnum sem eru með alvar-
lega þvagfærasjúkdóma líkt og krabbamein í
blöðruhálskirtli. Jóhannes Jónsson, kaupmaður í
Bónus, afhenti Guðmundi Vikar Einarssyni yfir- JóhannesJónsson.
lækni peningagjöfina í gær við hátíðlega athöfn í
Höfða í boði borgarstjóra.
Böðvar Bragason.