Dagur - 25.11.1997, Qupperneq 4
4 -ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997
FRÉTTIR
rO^tr
Sjö fengu Evrópusambandsstyrk
Sjö íslensk rannsóknarverkefni fengu nýverið styrk úr Leonardo da
Vinci áætlun Evrópusambandsins. Leonardo áætluninni er ætlað að
stuðla að rannsóknum og þróunarstarfi á sviði starfsmenntunar.
Verkefnin sjö fengu samtals rúmar 65 milljónir króna í styrk. Sam-
starfsnefnd atvinnulífs og skóla fékk styrk til tveggja mannaskipta-
verkefna, Rannsóknastofnun Háskólans til að rannsaka og skrá þörf
fyrir menntun í ófaglærðum störfum og Skólaþjónusta Eyþings fékk
styrk til að þróa aðferðir í starfsnámi fyrir fatlað fólk, svo nokkuð sé
nefnt. Alls var sótt um styrki vegna 13 verkefna.
SÍF íjárfestir í Noregi
Stjórn Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda hefur samþykkt að
dótturfyrirtæki sölusambandsins í Noregi, Mar-Nor, kaupi helmings-
hlut í fiskframleiðslufyrirtækinu Hovden Fiskindustri í Norður Nor-
egi.
Kaupin eru liður í uppbyggingu Mar-Nor og er ætlað að styrkja út-
flutning þess á stöðluðum salfiskafurðum sem henta lyrir markaðs-
kerfi SIF.
Nýr Flugleiðavefur
Flugleiðir hafa opnað nýjan vef á Internetinu og segja forsvarsmenn
fyrirtækisins hann boða byltingu í sölumálum þess. Hægt er að bóka
farmiða hvert sem er á vefnum, skrá sig í vildarklúbb Flugleiða og
skoða upplýsingar um fargjöld og Iaus sæti.
Flugleiðir hafa einnig opnað vefi í Bandaríkjunum og Bretlandi og
verið er að undirbúa vefi fyrir 12 önnur markaðssvæði lyrirtækisins,
alls fimmtán vefi á 9 tungumálum.
Nýr og breyttur sjukrabíll
Reykjavíkurdeild Rauða
krossins hefur tekið í
notkun nýjan og fullkom-
inn sjúkrabíl. Bíllinn er
meira áberandi í útliti en
eldri sjúkrabílar og helg-
ast það af því að sjúkra-
flutningamenn telja að
bílarnir verði að vekja
meiri athygli í umferðinni
svo að þeir komist leiðar sinnar með sem minnstum töfum.
Rauði krossinn á sjúkrabílana og rekur en Slökkvilið Reykjavíkur
annast sjúkraflutningana. Sjúkraflutningar voru nærri 12 þúsund í
fyrra.
FullsMpaö framkvæmdaráð
Erlendur Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækja-
sviðs Fjárfestingabankans. Með ráðningu hans er framkvæmdaráð
bankans fullskipað, en í því sitja auk Erlendar, Bjarni Armannsson,
forstjóri, Svanbjörn Thoroddsen, framkvæmdastjóri viðskiptastofu og
Tómas Kristjánsson, framkvæmdastjóri skulda og áhættustýringar.
Erlendur Magnússon hefur starfað hjá Nomura Bank International
undanfarin ár og annast tengsl bankans við Norðurlönd og Eystra-
saltsríkin.
SVR til Akraness
Stjórn SVR hefur óskað eftir viðræðum við bæjarstjórn Akraneskaup-
staðar um samvinnu um almenningssamgöngur með tilkomu jarð-
ganga undir Hvalfjörð. Fyrir utan Reykjavík þjónustar SVR m.a. íbúa
á Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ og Kjalarnesi. Ef samningar takast við
Skagann er ekki talið ólíklegt að áður en langt um líður hægt verði
að ferðast með vögnum SVR allt vestur til Borgarness.
Gjaldtaka endurskoðuð
Fræðsluráð hefur samþykkt að setja á laggirnar nefnd til að skoða
gjaldtöku íyrir lengda viðveru nemenda í skólum eftir að skóladegi
lýkur. Astæða þykir að skoða þetta mál vegna mismunandi viðveru-
tíma nemenda eftir því hvort um er að ræða einsetinn eða tvísetinn
skóla. Kostnaður foreldra vegna viðveru barns í skóla eftir skóla fer
eftir fjölda viðverutíma, en getur numið allt að 8-10 þúsund krónum
á mánuði.
Aldraðir byggja
Byggingarnefnd hefur samþykkt erindi Samtaka aldraðra um bygg-
ingu fjölbýlishúss með 23 íbúðum við Dalbraut 16. Stærð hússins
verður um 2800 m2 á fjórum hæðum ásamt kjallara.
Togarar MHF urðu að „góðkunningjum “ Akureyringa sem höfðu þá fyrir augum í allan fyrravetur þar sem þeir lágu bundnir við
Torfunefsbryggjuna.
Togarar MHF viö
veiðar í Barentshafi
Mecklenhurger Hoch-
seefischerei (MHF) í
Rostock í Þýskalandi,
dótturfyrirtæki Út-
gerðarfélags Akureyr-
iuga (ÚA), hefiir selt
einn af fimm togurum
félagsins, Bootes, tfi
rússneskrar útgeröar.
Togarinn hefur þegar hafið veiðar
í Barentshafi en um sölu afurða
togarans sjá Fiskafurðir í Reykja-
vík. Þeir fjórir togarar MHF sem
enn eru í eigu fyrirtækisins eru á
þorskveiðum í Barentshafi, á
karfaveiðum við Austur-Græn-
land, á grálúðuveiðum við Vest-
ur-Grænland en einn liggur
bundinn við bryggju í Rostock
fram á vor, þ.e. þar til karfaveiðar
á Reykjaneshrygg hefjast. MHF
er auk þess með UA-togarann
Svalbak á leigu og er hann á grá-
lúðuveiðum við Vestur-Græn-
Iand.
Frystitogarinn Sólbakur hefur
verið á söluskrá og bundinn við
bryggju á Ákureyri, en nú hefur
hann verið sendur á rækjuveiðar
þar sem gert var ráð íyrir að Sval-
bakur væri aftur kominn til ÚA,
og þá á rækjuveiðar. Iðnaðarrækj-
an af Sólbak verður unnin í verk-
smiðju Skagstrendings á Skaga-
strönd. Hráefnisöflun ÚA hefur
gengið vel, hráefni berst bæði frá
togurum félagsins og Vísi í
Grindavík, og er stöðug vinna í
fyrstihúsum félagsins á Akureyri
og Grenivík.
Línubáturinn Aðalvík KE, sem
Kaldafell, dótturfyrirtæki ÚA,
keypti fyrir skömmu á Suðurnesj-
um, hefur verið seldur til Vísis
hf. í Grindavík ásamt 664 tonna
þorskígildiskvóta. Jafnframt var
gengið frá stefnpmarkandi sam-
starfssamningi milli ÚA og Vísis
sem felur í sér víðtæka samvinnu
milli félaganna á sviði hráefnis-
öflunar, skiptum á aflaheimild-
um, og fleiru er lýtur að sérhæf-
ingu fyrirtækjanna. Vísir mun
einbeita sér að saltfiskvinnslu og
hafa forgang að því hráefni sem
berst að landi hjá ÚA og hentar
til þeirrar vinnslu, þ.e. stórum
fiski. Laugafiskur í Reykjadal,
dótturfyrirtæki ÚA, mun hafa
forgang að hausum og hryggjum
hjá Vísi og verða þeir þurrkaðir í
vinnsluhúsi Laugafisks í Njarð-
vík. - GG
Einn árásarmannanna
er dæmdur morðmgi
Einar Sigurjónsson, einn þre-
menninganna sem sitja í gæslu-
varðhaldi vegna fólskulegrar
árásar á öryrkja í síðustu viku, var
í desember 1988 dæmdur í 14
ára fangelsi fyrir manndráp í
Innri-Njarðvík, skjalafals og fjöl-
mörg þjófnaðarbrot. Að fráteknu
gæsluvarðhaldi hefði full refsing
leitt til afplánunar til ágústloka
2001, en Einar fékk reynslulausn
lyrir nokkru.
Einar, sem nú er 33ja ára, var
íyrir níu árum dæmdur fyrir að
hafa 29. ágúst 1987 banað
Ingólfi Ómari Þorsteinssyni með
hnífi í verðbúð Brynjólfs h/f í
Innri-Njarðvík. Veitti hann
Ingólfi hnífstungu í hjartað eftir
að rifrildi kom upp milli þeirra á
verbúðinni.
Einar var um leið sakfelldur
fyrir tékkafals og átta þjófnaðar-
brot, en meðal þess sem hann
stal var gullúr, ljósritunarvél,
myndbandstæki og hljómflutn-
ingstæki. Fyrir þennan dóm hafði
Einar langan sakaferil, hafði 23
sinnum fengið ölvunarsektir og
nokkra dóma íyrir hegningarlaga-
brot vegna þjófnaðar, ávana- og
fíkniefna og fleira.
Einar er einn fjögurra bræðra
sem lögreglan hefur nokkra
reynslu af og í undirheimunum
munu þeir gjarnan kallaðir
„Dalton-bræður“ í höfuðið á
fígúrunum í teiknimyndasögun-
um um Lukku-Láka.
21 par staðfesti samvist í fyrra
Tuttugu og eitt par
staðfesti samvist sína
fyrsta hálfa árið sem
lög heindluðu slíkt.
Stofnun staðfestrar samvistar var
heimiluð með lögum um mitt
árið 1996. Frá þeim tíma til ára-
móta nýtti 21 samkynhneigt par
sér þessa heimild. Ellefu þessara
para voru tveir karlar en tíu par-
anna tvær konur, samkvæmt
skýrslum Hagstofunnar.
Hjónavígslur voru 1.350 áár-
inu, og hlutfallslega heldur fleiri
en á umliðnum áratug, en hins
vegar töluvert færri en fyrir þann
tíma. Næstum fimmta hver
(18%) brúðanna hafði áður
gengið upp að altarinu og hefur
það hlutfall farið hækkandi und-
anfarin ár.
Hjónum fjölgaði þó ósköp lítið
á árinu, því hjúskaparslit voru
næstum eins mörg og víglurnar
(1.240). Meirihluli þeirra varð
vegna andláts annars makans.
Og þar var í tvöfalt íleiri tilfellum
um að ræða eiginmenn en eigin-
konur - þannig að ekkjum fjölg-
aði að venju helmingi meira en
ekklum. Lögskilnaðir voru 530 á
árinu, um 10% fleiri en árið
áður. — HEI