Dagur - 25.11.1997, Side 5

Dagur - 25.11.1997, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 2 S .NÓVEMBER 1997 - S Thypr- FRÉTTIR L Söguleg tímamót. Sigurbjörn Einarsson skrýðir son sinn Karl en Ólafur Skúlason, fráfarandi biskup, er fyrir miðju. Karl Sigurbjömsson boðaði í vigsluræðu sinni afdráttarlausa áherslu á að létta neyð og vinna gegn böli. „Mér fannst þetta takast vel til. Eg upplifði hrífandi stund í kirkjunni og það var vel mætt af prestum og Ieikmönnum, háum sem lágum. Þarna var mikil list- iðkun og Iifandi tjáning,“ segir Karl Sigurbjörnsson, sem á sunnudag var vígður sem nýr biskup Islands. Faðir Karls, Sig- urbjörn Einarsson fyrrum bisk- up, færðí son sinn í biskups- hempuna. Biskupsvígslan þótti heppnast með ágætum. Henni tengdri var síðan haldið 600 manna kokteil- boð og um 60 manns sátu kvöld- verðarboð á Hótel Holti. Ef til vill hefur þó hátíðarræða Karls vakið mesta athygli, en í henni boðaði hann, væntanlega jafnt andlegum sem veraldlegum leið- togum, afdráttarlausa stefnu um aukna áherslu á líknar- og mannúðarmál. Biskupinn sagði meðal annars: „Þarna liggja sporin hans enn í heiminum okkar: Fatlaða barnið og móðirin örvinlaða. Oryrkinn sem alls staðar kemur að lokuð- um dyrum. Gamalmennið sem enginn heyrir hrópa á hjálp. Unglingurinn sem ráðvilltur hrekst í viðjum vímufíknar eða illra örlaga í átt til sjálfstortím- ingar. Þarna er Kristur að mæla sér móts við þig. Asjóna Krists dylst að baki hverju þjáðu and- liti, krossinn hans í hverri neyð, allri synd og sorg, sérhverjum dauða. Mér er hugstæð bæn eða öllu heldur samtal Krists og manns sem er útlegging guð- spjalls dagsins. Það er svona: Drottinn, hvenær sáum vér þig? Hungraður var ég og þú varst í megrun. Þyrstur og þú varst að vökva blettinn. Veglaus og vonar- snauður og þú hringdir í lögregl- una. Berfættur og ldæðlaus og þú varst upptekinn af því hverju þú ættir að klæðast í veislunni í kvöld. Sjúkur og þú spurðir hvort það væri smitandi. I fangelsi var ég og þú sagðir: Það hlaut að fara svona! Drottinn, miskunna þú oss! Þú þekkir þetta eins vel og ég, hve auðvelt er að dauf- heyrast við kröfu miskunnsem- innar. Það er svo undur auðvelt." Síðar í ræðunni sagði biskup: „Við skulum... taka á móti hon- um er hann verður á vegi í þeim sem hjálparþurfi er. Finna til með þeim sem þjást. Samfagna þeim sem gleðjast. Leita leiða til að verða að liði, létta neyð og vinna gegn böli. Þannig mælir Kristur sér móts við okkur nú.“ - FÞG Hrannar Arnarsson hefur gefið kost á sér í prófkjör R-listans. Ilrainiar með krötiun Tveir hafa þegar gefið kost á sér í prófkjör R-listans fyrir hönd AI- þýðuflokksins, þeir Pétur Jóns- son, borgarfulltrúi og Hrannar Arnarsson. Hrannar, sem starfað hefur með Þjóðvaka, er ekki í Al- þýðuflokknum en býður sig fram sem óflokksbundinn. „Sameiningarmálin hafa verið mínar ær og kýr í stjórnmálum undanfarin ár. Alþýðuflokkurinn er eins og hugur manns í þeim málum og það kom ekkert annað til greina en að fara inn um hans dyr fyrst þær voru opnaðar,“ seg- ir Hrannar. R-lista flokkarnir eiga að til- nefna 7 menn hver til þess að taka þátt í prófkjöri listans eftir áramót. Skúli Helgason, út- varpsmaður, hefur einnig verið orðaður við framboð fyrir krata en hann segir það ekki koma til greina að sinni. — VJ stu LAGGOT A-flokkamir í eina sæng Nýtt bæjarmálafélag jafnaðar- og félagsnyggjufólks var stofnað í Reykjanesbæ um helgina, en að því standa Alþýðubandalag, Alþýðu- flokkur og fleiri. Bæjarmálafélagið ætlar að bjóða fram í bæjarstjórn- arkosningum næsta vor í stað flokkanna tveggja en þeir hafa starfað náið saman í stjórnarandstöðu í bænum undanfarin 2 ár. „Samstarf jafnaðar- og félagshyggjufólks í Reykjanesbæ byggir á hugsjónum um réttlátt samfélag þar sem jöfnuður ríldr,“ segir m.a í yfirlýsingu nýja bæjarmálafélagsins. Það ætlar sér að standa vörð um frelsi einstaklingsins, en „til þess að hægt verði að tala um raunveru- Iegt frelsi þarf að skapa fólki efnahagsleg og félagsleg skilyrði til að nýta það.“ Minni hagnaðnr af fríhöfninni Vörusala Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli jókst um 390 milljónir (18%) í fyrra í 2.600 milljónir. Hagnaðurinn minnkaði eigi að síður um rúmar 90 milljónir. Ástæðan er rakin til þess að Fríhöfnin greiddi nær 150 milljónir í áfengisgjald. Hagnaðurinn, kringum 500 milljón- ir, var allur greiddur í ríkissjóð í formi arðs. Áfengi og tóbak er 30% af sölu Fríhafnarinnar, ilmvötn 20% og sæl- gæti 1 5%. Tæki eru síðan um fjórðungur heildarsölunnar og aðrar vörur kringum 10%. Graíarvogur fuiidar uin fíkniefni „Samtaka nú!“ er yfirskrift borgarafundar um unglinga og forvarnir, sem haldinn verður næstkomandi miðvikudagskvöld í Húsaskóla í Grafarvogi. Að fundinum stendur samstarfshópur foreldra, stofnana, félagasamtaka og ann- arra aðila sem koma að uppeldi barna og unglinga í hverfinu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri opnar fundinn, síð- an flytur Einar Gylfi Jónsson, forvarnafull- trúi SAA, erindi um tildrög forvarnaverk- efnisins og síðan verða tillögur að úrræð- um og lausnum ræddar. Verkefnið er undir hattinum „Island án eiturlyfja árið 2002“ og sérstakur liður í Grafarvogshverfi sem reynslusveitarfélagi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Bjarnheiður Hallsdóttir ferðamálafræðingur og Ásgeir Björgvinsson, forstööumaður Hvalamiðstöðvarinnar á Húsavik, eru hress með árangurinn að undaförnu. - mynd: e.ól. Húsavík vinsælust til hvalaskoðuitar Um 20 þúsund manns skoðuðu hvali hér við land í sumar og áætl- að að það hafi fært þjóðarbúiuu ailt að 860 miHjóna tekjur í sumar. Gífurlegur uppgangur hefur ver- ið í hvalaskoðun hér á landi. Frá 1995 hefur þátttakendum fjölg- að úr rúmlega 2 þúsund í meira en 20 í sumar, sem eru um 18% allra erlendra ferðamanna sem hingað komu auk um 2.000 Is- lendinga. Talið er að um 2.500 manns hafi komið hingað gagn- gert til að skoða hvali. Um 70% allra hvalaskoðara fóru frá Húsavík, sem þar með er orðinn vinsælasti hvalaskoðunarstaður- inn í Evrópu, samkvæmt nýrri skýrslu. Áætlað er að þetta hafi skilað rösklega 300 milljóna beinum tekjum, en að heildar- tekjur þjóðarbúsins af hvala- skoðun geti numið allt að 860 milljónum í sumar, eða álíka og Smuguveiðarnar. Ekki öfgasinnaðir friðunar- sinnar og grænmetisætur „Hvalaskoðunarferðir eru rétt að heljast á Islandi," segir skýrslu- höfundurinn, Ásbjörn Björgvins- son, forstöðumaður Hvalamið- stöðvarinnar á Húsavík. Hann telur víst að þeint ferðamönnum sem koma gagngert til landsins til hvalskoðunar geti fjölgað verulega á næstu árum og að heildaráhrif slíkra ferða á efna- hagslífið gætu nálgast 2 millj- arða eftir 3-4 ár.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.