Dagur - 25.11.1997, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 2S. NÓVEMBER 1997 - 7
ÞJÓÐMÁL
Markmið og efadir
JJALLpÓR
ASGRIMS-
SON
FORMAÐUR FRAM-
SÓKNARFLOKKSINS OG
UTANRlKISRÁÐHERRA
SKRIFAR
Aðalfundur miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins var haldinn í
Kópavogi um síðustu helgi. A
fundinum var þátttaka flokksins
í ríkisstjórn rædd og árangur af
starfi stjórnarinnar veginn og
metinn. Þátttaka Framsóknar-
flokksins í ríkisstjórn byggist á
stjórnarsáttmála, sem inniheldur
flest af áherslumálum Fram-
sóknarflokksins úr síðustu kosn-
ingum. Nú er farið að síga á
seinni hluta kjörtímabilsins og
því viðeigandi að meta það starf
sem unnið hefur verið og horfa
um leið til framtíðar.
Kosningamarkmið Fram-
sóknaiilokksins
Skýr og afdráttarlaus markmið
voru einkenni á málflutningi
framsóknarmanna í síðustu
kosningum. Sumum andstæð-
ingum flokksins þótti djarft að
ganga svo hreint til verks og hétu
því að rifja upp fyrir flokknum
baráttumálin ef drátlur yrði á
efndunum. Lítið hefur heyrst frá
andstæðingunum og þær gagn-
rýnisraddir sem heyrðust frá
stjórnarandstöðunni vegna kosn-
ingamarkmiða framsóknar-
manna fyrir kosningar eru orðn-
ar að hvísli. Framsóknarmenn
þurfa enga aðstoð við að rifja
upp þá sýn sem þeir lögðu fram
fyrir síðustu kosningar. Fram-
sóknarflokkurinn vildi: Stefna
að því að draga úr atvinnuleysi
°g fjölga störfum til muna -
12.000 ný störf fyrir aldamót.
Berjast fyrir endurreisn heimil-
anna m.a. með breytingum á
húsnæðislánakerfinu. Stuðla að
jöfnun lífskjara, til að mynda
með skattalækkunum. Efla
menntun og skólastarf, þar sem
jöfn tækifæri til menntunar
væru grundvallaratriði.
Auka hagvöxt og jafnvægi í
ríkisfjármáltun
Þessi markvissi málflutningur
ávann sér góðan hljómgrunn og
traust kjósenda. Eftir kosningar,
þegar staðið var upp frá gerð
stjórnarsáttmálans, hafði flokkn-
um tekist að koma öllum megin-
áherslum sínum inn í þann
samning.
Samkvæmt stjórnarsáttmálan-
um er nú unnið að öllum helstu
áherslumálum framsóknar-
manna og því er ljóst að áhrif
Framsóknarflokksins eru mikil í
stjórnarsamstarfinu. Það hefur
gengið án teljandi árekstra við
samstarfs-flokkinn - sem að sínu
leyti undirstrikar að ólíkir stjórn-
málaflokkar geta starfað ágæt-
Iega saman meðan í.heiðri eru
hafðar ákveðnar leikreglur, sann-
girni, málamiðlanir og heilindi.
Frainfaraskeið í efnahags-
iiiálum
Það er ekki lengur um það deilt
að hér á landi er mikið framfara-
skeið í efnahags- og atvinnulífi.
Bölsýnustu andstæðingar stjórn-
arinnar sem héldu því fram að
hún myndi færa kyrrstöðu og
Ef ekki hefði verid tekið í taumana hefði velferðarkerfið orðið gjaldþrota og enginn ræktar rósagarö þar sem jarðvegurinn er fokinn burt.
doða yfir íslenskt þjóðfélag eru
nú uppteknir við að leita að lífs-
marki í eigin ranni. Til að krókna
ekki á víðavangi hjúfra þeir sig
nú hver að öðrum. í stjórnarsátt-
málanum lagði ríkisstjórnin
áherslu á að skapa þyrfti skilyrði
fyrir bættri afkomu heimiianna í
Iandinu og treysta undirstöðu
velferðar. Til að ná árangri setti
hún sér skýr og afdráttarlaus
markmið í ríkisfjármálum og
efnahagsmálum, markmið sem
nú eru smám saman að nást.
Efnahagur Islendinga fer
batnandi, kaupmáttur eykst, at-
vinnuleysi minnkar, störfum
fjölgar, stöðugleiki ríkir og tekist
hefur að koma böndum á halla
ríkissjóðs. I þessu sambandi er
rétt að líta yfir helstu þjóðhags-
stærðir. Eftir að hafa búið við lít-
inn hagvöxt nokkur undanfarin
ár og jafnvel neikvæðan, hefur
nú orðið mikil breyting. Hag-
vöxtur var 5,2% í fyrra og stefnir
í að verða 4,6% í ár. Til saman-
burðar má nefna að í iðnríkjun-
um var hann að meðaltali 2,7% í
fyrra og gert er ráð fyrir að hann
verði um 3% í ár. Þessa hag-
stæðu breytingu má einkum
þakka aukinni erlendri fjárfest-
ingu á sviði stóriðju og festu í
stjórn efnahagsmála, sem eykur
tiltrú manna á íslensku efna-
hagslífi. Þessi festa er afar mikil-
væg því hin hraða og jákvæða
þróun íslensks efnahagslífs getur
stefnt stöðugleikanum í hættu
og valdið aukinni verðbólgu.
Kaupmáttur eykst
Ástand á vinnumarkaði er
gjörbreytt. Umsvif hafa stórauk-
ist. Atvánnulausum hefur fækkað
að sama skapi og reikna má með
að störfum hafi fjölgað um
7.000 það sem af er kjörtímabil-
inu. Nýjustu spár gera ráð fyrir
að störfum fjölgi um rúmlega
13.000 til aldamóta.
Störfum hefur ekki aðeins
fjölgað heldur hafa ráðstöfunar-
tekjur einnig hækkað og kaup-
máttur aukist að sama skapi.
Aukin framleiðni fyrirtækja og
lækkun skatta einstaklinga hefur
leitt til umtalsverðrar kaupmátt-
araukningar, sem var u.þ.b. 3,5%
í fyrra. I ár er gert ráð fyrir að
hún verði um 4,5% og 5% á
næsta ári. Þessi kaupmáttar-
aukning er mun meiri en þekkist
í nágrannaríkjum okkar. Raunar
er gert ráð fyrir því að kaupmátt-
araukning á Islandi frá 1995 til
aldamóta verði allt að 25%. Allir
sem vilja, hljóta að sjá í hendi sér
hvílík umskipti það hljóta að
vera fyrir íslensk heimili.
Aframhaldandl stöðuglelki
A seinni hluta kjörtímabilsins
mun ríkisstjórnin áfram keppa
að því marki sem hún setti sér í
upphafi. Tvenn verkefni verður
þó sífellt að hafa í huga. Annars
vegar verður að tryggja stöðu
efnahagslífsins með því að vera á
varðbergi gegn þenslu, því að
verði verðbólgunni sleppt lausri
mun það ógna afkomuöryggi
fjölskyldna í landinu. Hins vegar
verður að bregðast við auknum
viðskiptahalla við útlönd. Halla-
laus ríkisrekstur er að sjálfsögðu
Iiður í þeirri baráttu en fleira
þarf að koma til, svo sem aukinn
sparnaður almennings. Hug-
myndir um skattaafslátt vegna
lífeyrissparnaðar eru nú orðnar
að veruleika í tengslum við tíma-
mótafrumvarp ríkisstjórnarinnar
um lífeyrisjóði.
Með því að treysta og tryggja
þann fjárhagslega grundvöll,
sem þjóðfélagskerfi okkar hvílir
á, vilja framsóknarmenn leggja
áherslu á að Island verði áfram
velferðarríki sem tryggir þegnum
sínum góða menntun og heilsu-
gæslu og umfram allt öryggi í
andstreymi. Ef ekki hefði verið
tekið í taumana hefði velferðar-
kerfið orðið gjaldþrota og enginn
ræktar rósagarð þar sem jarðveg-
urinn er fokinn burt.
Bætt afkoma nú gefur tækifæri
til að auka enn frekar framlög til
mennta- og heilbrigðismála eins
og ráð er fyrir gert í fjárlagafrum-
varpi ríkisstjórnarinnar. Það þýð-
ir hins vegar ekki að slakað verði
á kröfum um hagkvæmni í rekstri
eða nauðsynlegt aðhald. A þeim
trausta grunni sem nú er verið að
leggja, er unnt að tryggja að Is-
lendingar búi um langa framtíð
við betra velferðar- og samhjálp-
arkerfi, en þekkist hjá flestum
öðrum þjóðum.
Næstu skref
Framsóknarmenn hafa nú þegar
hafið vinnu við stefnumótun um
framfarir í íslensku samfélagi á
leið í nýja öld. Við ætlum okkur
að hafa þá stefnumótun djarfa
og ákveðna þannig að lands-
menn þurfi ekki nú, frekar en
áður, að velkjast í vafa um skoð-
un okkar eða stefnumál í mikil-
vægum málaflokkum. Arangur
okkar í ríkisstjórnarsamstarfinu
og stefnumótun næsta flokks-
þings, sem haldið verður að ári
liðnu, munum við Ieggja í dóm
þjóðarinnar.