Dagur - 25.11.1997, Blaðsíða 10
10 - ÞRIBJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997
FRÉTTIR
Oíi#ur
Ekkert smá
skemmti-
LEGUR
r
Furuvöllum 3 ■ 600 Akureyri
Sími 461 2288 ■ Fax 462 7187
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Vélfræðingar!
Að Verkmenntaskólanum á Akureyri vantar kennara í vélstjórnar-
greinum frá og með upphafi vorannar 1998.
Laun skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Skriflegar umsóknir ásamt greinargerð um fyrri störf berist Verk-
menntaskólanum á Akureyri, Eyrarlandsholti, 600 Akureyri, fyrir 9.
desember nk. Ekki er þörf á sérstökum eyðublöðum.
Æskilegt er að umsækjendur séu vélfræðingar með menntun í
uppeldis- og kennslufræðum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hef-
ur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið gefur undirritaður í síma 461 1710.
Skólameistari.
Húsf riöunarsjóður
Húsfriðunarnefnd ríkisins auglýsir eftir umsóknum til Húsfriðunarsjóðs,
sbr. ákvæði í þjóðminjalögum nr. 88/1989 sbr. lög nr. 43/1991 og
98/1994 og reglugerð um Húsfriðunarsjóð nr. 479/1993.
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnaðar vegna:
- undirbúnings framkvæmda, áætlanagerðar og tæknilegrar ráðgjafar og
til framkvæmda vegna viðhalds og endurbóta á friðuðum húsum og hús-
um sem hafa menningarsögulegt og listrænt gildi.
- byggingarsögulegra rannsókna og útgáfu þeirra.
Að gefnu tilefni er hlutaðeigendum bent á að leita eftir áliti Húsfriðunar-
nefndar ríkisins og sækja um styrk áður en framkvæmdir hefjast.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. febrúar 1998 til Húsfriðunarnefnd-
ar ríkisins, Þjóðminjasafni íslands, Suðurgötu 41, 101 Reykjavík, á um-
sóknareyðublöðum sem þar fást.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 562 2475 milli kl. 10.30 og 12.00
virka daga.
Húsfriðunarnefnd ríkisins.
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri,
sími 462 6900
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Hafnarstræti 107, Ak-
ureyri föstudaginn 28. nóvember
1997 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum:
Grænamýri 15, Akureyri, þingl. eig.
Aðalheiður M. Steindórsdóttir, gerð-
arbeiðendur Akureyrarbær og Líf-
eyrissjóður verslunarmanna.
Hafnarstræti 86, íb. 01-02-01, Akur-
eyri, þingl. eig. Guðmundur Ármann
Sigurjónsson og Hildur María Hans-
dóttir, gerðarbeiðandi Húsbréfa-
deild Húsnæðisstofnunar.
Hafnarstræti 97, hl. 2D, Akureyri,
þingl. eig. Hönnunar-/verkfræðistof-
an ehf. gerðarbeiðendur Akureyrar-
bær og Iðnlánasjóður.
Hafnarstræti 97, hl. 5A, Akureyri,
þingl. éig. Byggingarfélagið Lind
ehf., gerðarbeiðendur Bílanaust hf.,
íslandsbanki hf. höfuðst. 500 og
Landsbanki íslands höfuðstöðvar.
Hafnarstræti 97, hl. 5A Akureyri,
þingl. eig. Byggingarfélagið Lind
ehf, gerðabeiðendur Bílanaust hf,
íslandsbanki hf höfuðst. 500 og
Landsbanki íslands Höfuðstöðvar.
Hólsgerði 2, Akureyri, þingl. eig.
Hallur Jósepsson og Árni Evert Ing-
ólfsson, gerðarbeiðandi Húsbréfa-
deild Húsnæðisstofnunar.
Hrafnabjörg 1, Akureyri, þingl. eig.
Þorsteinn H. Vignisson, gerðarbeið-
andi Húsbréfadeild Húsnæðisstofn-
unar.
Litlidalur, Eyjafjarðarsveit, þingl.
eig. Jónas Vigfússon og Kristín
Thorberg, gerðarbeiðandi Bygging-
arsjóður ríkisins.
Lóð úr landi Akurs, Eyjafjarðarsveit,
þingl eig. Hjalti Þórsson, gerðar-
beiðandi Húsbréfadeild Húsnæðis-
stofnunar.
Tröllagil 23, Akureyri, þingl. eig.
Hólmfríður Pétursdóttir, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður verkamanna.
Ægisgata 19, Litla-Árskógssandi,
þingl. eig. Jón Ríkharður Kárason,
gerðarbeiðandi Húsbréfadeild Hús-
næðisstofnunar.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
24. nóvember 1997.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
Róleg helgi
hjá lögreglunni
Dagbók lögregluuuar
í Reykjavík 21. til
24. nóvember.
Umferðannálefni
Höfð voru afskipti af fimmtíu
ökumönnum vegna hraðaksturs
og voru nokkrir þeirra sviptir
ökuréttindum til bráðabirgða. Þá
voru 11 grunaðir um akstur und-
ir áhrifum áfengis.
Umferðarslys
Um helgina var lögreglu tilkynnt
um 34 umferðaróhöpp. Arekstur
varð á Miklubraut við Rauða-
gerði á föstudagsmorgun. Báðir
ökumenn voru fluttir á slysadeild
til skoðunar, annar vegna eymsla
í brjósti og hinn í hálsi. Fjarlægja
varð bæði ökutækin af vettvangi
með kranabifreiö.
Ekið var á 9 ára pilt um klukk-
an fimm á Iaugardag á Nesvegi.
Pilturinn var fluttur á slysadeild
en er ekki talinn mikið slasaður.
A sunnudagskvöld varð árekstur
á Suðurlandsbraut við Alfheima.
Flytja varð fjóra einstaklinga á
slysadeild til skoðunar vegna
eymsla í baki, hálsi og innvortis.
Bæði ökutækin voru óökufær og
því flutt af vettvangi með krana-
bifreið.
Rruiiar
Rétt fyrir þrjú að morgni laugar-
dags var tilkynnt um eld í bílskúr
í Hlíðahverfinu. Miklar
skemmdir urðu í bílskúrnum og
meðal annars brann þar bifreið.
Þá var tilkynnt um reyk í stiga-
gangi á Háaleitisbraut um tvö
leitið á laugardag. Reyndist þar
hafa gleymst pottur á eldavél.
Eignaspjðll
Nokkuð bar á því að unglingar
væru að vinna skemmdarverk á
eigum borgara með því að
spreyja á þau með málningu.
Tveir piltar 15 og 16 ára voru
handteknir við slíka iðju eftir
miðnætti á laugardag við Hall-
veigarstaði. Þeir voru fluttir á
lögreglustöð.
Þá voru þrír aðrir handteknir
við sömu iðju í undirgöngum á
Miklubraut við Lönguhlíð. Þar
voru haldlagðir 60 úðabrúsar. Að
morgni sunnudags voru síðan 3
unglingar teknir er þeir vour að
spreyja á veggi skóla í austur-
borginni.
Innbrot
Að morgni sunnudags vaknaði
húsráðandi í Vesturbergi upp við
mannaferðir í húsi sínu. Brota-
maður náði að hlaupa á brott en
hann hafði tekið til nokkur verð-
mæti til að hafa á hrott með sér.
Maðurinn er ófundinn.
Annað
Tveir tvítugir piltar voru hand-
teknir er þpir, voru að selja ung-
lingsstúlkum áfengi við grunn-
skóla. Þeir hafa báðir oft komið
við sögu við slíka iðju áður.
Maður dreginn iim
í húsagarð og bariirn
Úr dagbók lögregl-
imnar á Akureyri
vikirna 17.-24.
nóvember 1997.
Vikan var frekar tíðindalítil og
störf lögreglunnar einkenndust
af hefðbundnum verkefnum.
Snar þáttur í starfi lögreglunnar
er eftirlit með umferðinni og er
með því reynt að fá ökumenn til
að virða umferðarreglurnar og
stuðla þannig að slysalausri um-
ferð. Það má ekki gleymast að
markmið umferðarlöggæslu er að
fá alla til að fylgja umferðarregl-
unum því slys og óhöpp í umferð-
inni má yfirleitt alltaf rekja til
brots aðila á einhverjum reglum
umferðarlaganna. Reynslan hef-
ur sýnt að ekki er unnt að ná
þessu markmiði nema að beita þá
viðurlögum sem staðnir eru að
umferðarlagabrcrtum.
Yfirsjónir ökiuiianna
Sé litið til yfirsjóna ökumanna
síðustu viku þá báru 99 atvik íyr-
ir augu lögreglumanna sem þeim
þótti ástæða til að hafa afskipti
af. Þar af voru 7 kærðir fyrir of
hraðan akstur, 4 fyrir ölvun við
akstur, 2 fyrir að aka án ökurétt-
inda, 19 fyrir að vanrækja að
færa ökutæki til aðalskoðunar, 6
fyrir að vanrækja að færa ökutæki
Lögreglan á Akureyri við eftiriitsstörf.
til endurskoðunar og aðrar yfir-
sjónir varða síðan hin aðskiljan-
legustu umferðarlagabrot.
Jólaglöggin fraimiiiiJaii
Það er ánægjulegt hversu fáir
voru staðnir að of hröðum akstri
þrátt fyrir góðar aðstæður en
dapurlegra að 4 voru staðnir að
akstri undir áhrifum áfengis og er
sérstök ástæða til að hvetja öku-
menn til að að gæta sín nú þegar
í hönd fer tími hefðbundins gleð-
skapar í fyrirtækjum og stofnun-
um tengdur komu jólanna. Að
hafa áfengi um hönd á vinnustað
er vondur siður sem oft hefur
orðið fyrirtækjum til vansa en er
sem betur fer á undanhaldi og
verður vonandi brátt úr sögunni.
Skráð eru 13 umferðaróhöpp og
minniháttar meiðsl í þremur
þeirra. I einu þeirra var grunur
um ölvun við akstur.
Brotist inn í Endurvinnslu
Eitt innbrot er skráð en þar var
farið inn í Endurvinnsluna við
Réttarhvamm en litlu stolið. Eitt
minniháttar fíkniefnamál kom
upp í vikunni og því miður þá
telst það ekki lengur til tíðinda.
Helgin var með venjubundnum
hætti, ölvun í meðallagi og
þurftu fimm að gista fanga-
geymslur vegna ölvunar. Þrjár
Iíkamsmeiðingar eru skráðar en
meiðsli urðu ekki alvarleg.
Bariun í húsagarði
I einu tilvikinu var maður dreg-
inn inn i húsagarð í miðbænum
og gengið í skrokk á honum þar.
Árásarmaðurinn gaf sér tíma til
að koma gleraugum sínum á ör-
uggan stað áður en hann gekk til
verks og er óvíst hvernig farið
hefði ef vegfarandi hefði ekki
orðið árásarinnar var og látið
lögregluna vita. Sá sem fyrir
árásinni varð var fluttur hálf-
meðvitundarlaus á sjúkrahús,
mikið bólginn og skrámaður, en
mun ekki hafa hlotið alvarlega
áverka. Arásarmaðurinn var
handtekinn og fluttur á lögreglu-
stöð þar sem hann viðurkenndi
að hafa ætlað að veita mannin-
um ærlega ráðningu og ganga frá
honum í eitt skipti fyrir öll. Bað
hann svo lögregluna að sækja
gleraugun sín sem hann vísaði á
í garðinum. Hann hefur oft kom-
ið við sögu lögreglunnar áður.