Dagur - 25.11.1997, Side 11
Xk^ur'
ÞRIÐJUDAGVR 2 S .NÓVEMBER 1997 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Nýfætt barn: Mikil hætta á greindarskeröingu eða líkamlegri fötlun þegar fleirburar fæðast.
Ábyigðarleysi
lækna gagnrýnt
stærri gerðinni. Meðal fjöl-
margra vandamála sem upp geta
komið eru bólgur og blæðingar í
eggjastokkum og alvarleg vökva-
teppa sem í einhverjum tilvikum
geti orsakað hjartabilun.
Þá eiga konur, sem ganga með
mörg fóstur, einnig á hættu ýmis
önnur vandkvæði á meðgöngu
og í fæðingu, sem sum hver geta
verið lífshættuleg, auk þess sem
börnin þurfi oft á kostnaðar-
samri umönnun og eftirliti að
halda jafnvel árum saman.
Vísindalega nákvæmni
skortix
Frjósemislækningar hafa að
mestu leyti verið eftirlitslausar í
raun í Bandaríkjunum, að miklu
leyti vegna þess að ríkisstjórnin
hefur ekki heimilað ríkisstyrki til
rannsókna á fóstrum, og þá und-
ir þrýstingi frá andstæðingum
fóstureyðinga. Þetta hefur orðið
til þess að frjósemisrannsóknir
hafa fyrst og fremst verið unnar
á sjálfstæðum sjúkrahúsum í
ágóðaskyni, en ekki af rannsókn-
arhópum á vegum ríkisstofnana
sem þurfa að leggja tilraunir sín-
ar undir mat hjá vísinda- og siða-
nefndum.
„Að flestu leyti hafa ófrjósem-
isaðgerðir hér á landi þróast á
sviði gróðafyrirtækja frekar en
sem vísindastarfsemi, þannig að
margt af því sem læknar eru að
gera í frjósemisaðgerðum hefur
ekki uppfyllt þær kröfur sem
gerðar eru til vísindalegra
starfa,“ sagði Thomas Murray,
yfirmaður við miðstöð í siðfræði
læknavísinda við Case Western
Reserve háskólann.
Sé frjósemismeðferð hætt í
miðju kafi, eins og gagnrýnend-
um finnst að hefði átt að gera í
þessu tilviki, þá kostar það við-
komandi nokkur þúsund dollara
og stundum krefjast konur þess
að haldið sé áfram. „Það er gífur-
legur þrýstingur á að skila ár-
angri, en læknarnir verða að
draga mörkin á réttum stað,“
sagði Sauer. Annars fær maður
það í hausinn aftur, „fólk segir:
Þessir andskotans frjósemis-
læknar.“
-The Washington Post
GUÐSTEINN
BJARNASON
skrifar
Sjöbiiramir í Iowa
virðast ætla að spjara
sig vel, en margir
læknar og siðfræðing-
ar efast um að áhætt-
an hafi verið réttlæt-
anleg.
Fæðing sjöburanna í Iowa í
Bandaríkjunum er einstæður
viðburður sem vakið hefur
heimsathygli. Móðir sjöburanna
var í gær komin heim til sín og
einn þeirra var orðinn laus úr
öndunarvélinni, og flest benti til
þess að hinir sex myndu spjara
sig ágætlega.
Bæði læknar og siðfræðingar
víða um heim hafa hins vegar
gagnrýnt harðlega hlut frjósem-
islæknanna sem gerðu Bobbi og
Kenny McCaughey kleift að
eignast svo mörg börn. Þegar
frjósemisaðgerðir eru stundaðar
af ábyrgðarleysi og án tillits til
aðstæðna, þá er bæði konum og
afkvæmum þeirra stofnað í
mikla hættu, og það með sívax-
andi tilkostnaði fyrir ríki og al-
menning.
Fyrir örfáum áratugum var
fæðing þríbura afar sjaldgæfur
viðburður, að ekki sé talað um að
fleiri börn fæðist í einu, og þá
hafði það aldrei gerst að fleiri en
fimmburar hefðu Iifað af fæð-
ingu. Nú er hins vegar fæðing
fjölbura, þriggja eða fleiri, að
nálgast fimm þúsund á hverju
ári. Og í flestum tilvikum er það
nýrri tækni, frjósemisaðgerðum
að þakka.
Notaði sama skanunt og síð-
ast
Þótt flest bendi enn til þess að
öll börnin sjö muni verða heil-
brigð, þá er oftast, þegar fleir-
burar eru fleiri en þrír, um ein-
hvers konar líkamlega eða vits-
munalega fötlun að ræða hjá
einhverjum þeirra. Margir eru
því þeirrar skoðunar að ekki eigi
að stuðla að fleirburafæðingum
þegar hægt er að komast hjá því.
Katherine Hauser, frjósemis-
Iæknirinn sem McCaughey
hjónin leituðu til, varði gerðir
sfnar á blaðamannafundi eftir
fæðinguna og sagði að hún hefði
notast við jafn stóran skammt af
frjósemislyfinu og notaður var
fyrir tveimur árum, þegar sömu
hjón Ieituðu til hennar. I það
skiptið varð lyfið til þess að þeim
fæddist ein dóttir. Af einhverjum
óútskýrðum ástæðum, sagði
hún, „náðum við meiri árangri í
þetta sinn en við gerðum okkur
vonir um.
Gagnrýnendur gera sig hins
vegar ekld ánægða með þessa
skýringu. Þegar læknar
McCaughey hjónanna áttuðu sig
á því að frjósemisaðgerðin hefði
haft í för með sér að um það bil
þrisvar sinnum fleiri egg en þeir
höfðu búist við hafi náð þroska,
hafi þeir átt að hætta að bæta við
sæðisfrumum frá eiginmannin-
um og reyna aftur eftir einn eða
tvo mánuði þegar eggjafram-
leiðslan væri orðin heldur hóf-
legri.
Hefði getað orðið að martröð
„I þessu tilviki eru sögulokin
góð,“ segir Mark Sauer, yfirmað-
ur við kynhormónadeild Col-
umbia læknamiðstöðvarinnar í
New York. „Ef hún hefði á hinn
bóginn látið lífið eða börnin átt
ævilangt við taugalömun eða
einhver önnur vandkvæði að
stríða, þá væri þetta hrein
martröð. Og meira að segja er
enn hugsanlegt að úr þessu geti
orðið martröð, því vel geta kom-
ið upp einhver sálræn og félags-
leg vandamál. Og samfélagið á
svo sannarlega rétt til þess að
spyrja hvers vegna þetta gerðist
og hvort annarra úrkosta hefði
verið völ.“
Roger Kempers, læknaforstjóri
í bandarísku hormónalyfjasam-
tökunum í Birmingham, Ala-
bama, sagði að samkvæmt regl-
um samtakanna beri læknum að
forðast fleirburafæðingar af
HEIMURINN
Winnie Mandela kemur fyrir Saim-
leiksnefndina
SUÐUR-AFRIKA - Sannleiks- og sáttanefndin svonefnda í Suður-
Afríku, sem hefur það verkefni að draga fram í dagsljósið glæpi suð-
ur-afrískra stjórnvalda á tímum aðskilnaðarstefnunnar, er byrjuð að
rannsaka ásakanir á hendur Winnie Mandela fyrir mannréttindabrot.
Ásarnt lífvörðum sínum á Winnie Mandela, sem er íyrrverandi eigin-
kona Nelsons Mandela forseta, að hafa borið ábyrgð á fjölmörgum
morðum og pyntingum. Frú Mandela verður yfirheyrð á föstudaginn,
en hefur neitað öllum þessum ásökunum.
Prinsamir sleppa ekki viö erfðaskatt-
iim
BRETLAND - Vilhjálmur og Harry, synir
Díönu Spencer og Karls Bretaprins, munu ekki
eiga þess kost að sleppa við greiðslu erfðaskatts
vegna eigna móður sinnar, en skatturinn nem-
ur alls um 800 milljónum íslenskra króna.
Samkvæmt lögum eiga þeir þess kost að sleppa
við greiðsluna, en Karl prins, konungsíjölskyld-
an og fjölskylda móður þeirra eru á einu máli
um að það myndi mælast illa fyrir meðal al-
mennings, svo réttara sé að greiða.
Karl Bretaprins: Varúð-
arráðstafanir gegn al-
menningsálitinu.
Stærsta gjaldþrot frá
stríðslokum
JAPAN - Elsta og stærsta verðbréfafyrirtæki í Japan, Jamaichi, er
gjaldþrota, og nema skuldir þess meira en 1.500 milljörðum íslenskra
króna. Þetta er stærsta gjaldþrot í sögu japanskra fyrirtækja frá því í
stríðslok. Gengi jensins féll í kjölfarið, og má vænta þess að gjaldþrot-
ið hafi mikil áhrif á efnahagslíf í Japan og jafnvel á verðbréfaviðskipti
um heim allan. Gjaldþrotið kom þó ekki á óvart, að sögn verðbréfa-
sala á Vesturlöndum.
Karadzic vongóður
BOSNÍA OG HERSEGOVÍNA - Fyrstu bráða-
birgðatölur úr kosningunum í serbneska hluta
Bosníu, sem fram fóru um helgina, bentu til
þess að flokkur Radovans Karadzics, sem sjálf-
ur mátti hvorki vera í framboði né kjósa, hafi
unnið sigur í fjölmörgum kjördæmum og hrós-
aði talsmaður hans sigri í gær. Endanlegra nið-
urstaðna er ekki að vænta fyrr en eftir u.þ.b.
tvær vikur, vegna þess hve utankjörstaðarat-
kvæði eru mörg.
Radovan Karadzic: Tals-
maður hans lýsti yfir
sigri í gær.
Upplýsingar til umsækjenda tímabundin
leyfis fyrir sölu skotelda í smásölu,
fyrir og eftir áramót 1997-1998.
Þeim aðilum sem hyggjast sækja um leyfi fyrir sölu skot-
elda í smásölu í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ,
Kjalarnes- og Kjósahreppi fyrir og eftir áramót 1997-1998,
ber að sækja um slíkt leyfi til embættis lögreglustjórans í
Reykjavík, fyrir 10. desember 1997. Leyfi eru veitt sam-
kvæmt reglugerð um sölu og meðferð skotelda, nr.
536/1988.
Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi:
1. Leyfi eru aðeins veitt fyrir sölu skotelda að fyrir liggi
samþykki eldvarnaeftirlits vegna sölu, pökkunar- og
geymslustaða, einnig leyfi lóðareiganda ef umsækj-
andi er ekki umráðamaður lóðar þar sem sala á að
fara fram.
2. Ef fyrirhugað er að selja úr skúrum eða gámum,
skal
vera búið að ganga frá slíkum sölustöðum fyrir
kl. 16.00, 27. desember 1997, svo skoðun geti farið
fram á aðstöðu og öryggisþáttum.
3. Upplýsingar um fyrirhugaðan geymslustað fyrir
óselda vöru við lok söludags, eða eftir að sölutíma
lýkur, skal fylgja umsókn um söluleyfi.
4. Tilgreina þarf ábyrgðarmann fyrir sölunni sem þarf
að mæta á kynningarfund hjá lögreglunni að
Hverfisgötu 115, 27. desember 1997, kl. 09.00.
Leyfisgjald er kr. 3.000.-
Reykjavík 24. nóvember 1997.