Dagur - 25.11.1997, Side 12
12- ÞRIÐJUDAGUR 2S.NÓVEMBER 1997
Xhypr
ÍÞRÓTTIR
Enn einn sigur
Lakers
Los Angeles Lakers eru enn tap-
lausir í NBA körfuboltanum. A
sunnudagskvöldið voru nágrann-
arnir í Clippers lagðir, 119-102.
E. Jones var stigahæstur Lakers
með 28 stig en hinn ungi Kohe
Bryant skoraði 24. Lakers lék
enn einu sinni án miðherjans
Shaquille O’Neal, en núna er
það magavöðvi sem hrjáir tröllið
og verður hann frá næstu vik-
una.
Boston Celtics gerði sér lítið
fyrir og sigraði Grant Hill og fé-
laga í Detroit, 90-86. Hinn frá-
bæri Antoine Walker var yfir-
burðamaður á vellinum og skor-
aði 29 stig. Þetta var sjöundi sig-
ur Celtics á tímabilinu og hafa
þeir byrjað óvenju vel en á síð-
asta tímabili kom sjöundi sigur-
inn ekki íyrr en 5. janúar!
Chicago lagði Sacramento
nokkuð auðveldlega á útivelli
með 33 stigum frá Michael Jord-
an, þar af 18 í öðrum leikhluta.
Lokatölurnar 103-88, en þetta
var einungis 2. sigur meistar-
anna í þeim 6 útileikjum sem lið-
ið hefur spilað. Mitch Richmond
var stigahæstur f liði heima-
manna með 23 stig. Að lokum
unnu New York Knicks auðveld-
an sigur á Vancouver, 104-84.
Patrick Ewing fór fyrir sínum
mönnum að vanda og skoraði 19
stig en Bryant Reeves skoraði 18
fyrir Vancouver. — jj
HANDBOLTI
Wuppertal lagði
Kiel
Ólafur Stefánsson skoraði átta
mörk, fimm þeirra úr vítum, og
Dagur Sigurðsson var með fímm
mörk, þegar Wuppertal vann
mjög óvæntan útisigur á THW
Kiel, 28:31, þegar liðin mættust
1. deildinni í handknattleik í
Þýskalandi á laugardag. Geir
Sveinsson skoraði þrjú af mörk-
um Wuppertal, en liðið varð fyr-
ir miklu áfalli í leiknum. Dagur
Sigurðsson handarbrotnaði og
Ieikur ekki með liðinu næstu tíu
vikurnar.
Botnlið deildarinnar, Tusem
Essen, sem Patrekur Jóhannes-
son leikur með, vann stórsigur á
Flensborg, 35:23, en önnur úr-
slit urðu þessi í deildinni:
TBV Lemgo-
Wallau-Massenh.
Eisenach-Magdeburg
Nettelstedt -
GWD Minden
B. Dormagen-
Niederwiirzb.
Rheinhausen-
Gummersbach
Staða efstu liða:
rI’BV Lemgo 10 261:235 16
THWKiel 10 275:251 15
SG Wallau-
Massenh. 10 247:227 14
SG Flensburg-
Handew. 10 248:222 12
TuS Nettelstedt 10 289:266 11
GWD Minden 10 258:244 1 1
Wuppertal 10 261:250 11
Niederwur/.bach 9 218:211 10
23:22
23:20
26:26
20:20
23:27
Páll Þórólfsson var valinn í íslenska landsliðshópinn sem maetir Júgóslövum í tveimur leikjum í riðlakeppni EM. Á myndinni sést
hann skora eitt marka Aftureldingar í sigrinum á Haukum siðastHðinn laugardag. - mynd: bg
PállogAmarí
landsliðshópiim
Páll Þórólfsson, hornamaður úr
Aftureldingu, og Amar Péturs-
son úr Stjörnunni voru valdir í
íslenska landsliðhópinn, sem
leikur fyrri leik sinn gegn
Júgóslövum í riðlakeppni EM í
Laugardalshöll nk. fimmtudags-
kvöld. Þeir Páll og Arnar taka
sæti þeirra Björgvin Björgvins-
sonar, Gústafs Bjarnasonar og
Dags Sigurðarsonar, en sá síðast-
nefndi handarbrotnaði um helg-
ina í leik með Wuppertal og leik-
ur ekki næstu tíu vikurnar. Þor-
björn Jensson tilkynnti landsliðs-
hóp sinn í gærdag og hann er
skipaður eftirtöldum leikmönn-
um.
Markverðir:
Guðm. Hrafnkelsson, Val 275
Bergsveinn Bergsveinss.,
UMFA 131
Reynir Reynisson, Fram 9
Aðrir leikmenn:
Bjarki Sigurðsson,
Drammen 195
Páll Þórólfsson, UMFA 9
Róbert Sighvatsson,
Dormagen 47
Geir Sveinsson, Wuppertal 323
Konráð Olavson,
Niederwurzbach 151
Ólafur Stefánsson,
Wuppertal 79
Arnar Pétursson, Stjörnunni 0
Jason Ólafsson, UMFA 15
Róbert J. Duranona,
Eisenach 29
Patrekur Jóhannesson,
Essen 134
Valdimar Grímsson,
Stjörnunni . 227
Júlíus Jónasson, St. Gallen 259
Óvænt á Anfield
Manchester United og
Blackbum uiinu bæði
sæta sigra í ensku úr-
valsdeildinni um
helgiua. Arsenal sem
lengst af hefur verið
við toppinn þurfti að
játa sig sigrað í annað
skiptið á þessu keppn-
istímahili, þegar
strákamir hans Ron
Atkinson tóku á móti
þeim í Sheffield.
Óvæntustu úrslit í úrvalsdeild-
inni á þessu keppnistímabili
voru þó án efa á Anfíeld Road
þar sem nýliðarnir, Barnsley,
báru sigurorð af Liverpool, 0:1.
Líkur á sigri Barnsley fyrir Ieik-
inn voru 9-1 hjá veðbönkum,
enda hafði Barnsley fengið tutt-
ugu mörk á sig í þremur síðustu
leikjum og líldegt til að „bæta“
met Swindon sem fékk á sig 100
mörk á einu tímabili í úrvals-
deildinni. Eina mark Ieiksins
kom eins og óinnpökkuð jólagjöf
frá Patrick Berger sem var að
hlaupa aftur í vítateignum þegar
boltinn fór í hann og fyrir fætur
Ashley Ward sem þakkaði fyrir
sig. Barnsley varðist vel í síðari
hálfleiknum og Þjóðverjinn Karl-
Heinz Riedle fór illa að ráði sínu
í tvígang í upplögðum færum.
Wimbledon var síst slakari að-
ilinn gegn toppliði Manchester
United í fyrri hálfleiknum og ef
sóknarmenn liðsins hefðu verið
aðeins sparkvissari, er aldrei að
vita hvernig Ieikurinn hefði þró-
ast. Fyrsta markið kom ekki fyrr
en á 3. mínútu síðari hálfleiks-
ins, þegar Nicky Butt kom gest-
unum yfír og stuttu síðar skoraði
varamaðurinn David Beckham
annað mark Man. Utd. með
sinni fýrstu snertingu í leiknum.
Heimamenn náðu að jafna en
leikmenn Man. Utd. settu þá í
fjórða gírinn, bættu við þremur
mörkum og innbyrtu 1700.
deildarsigur félagsins.
Leikmenn Derby léku sér að
Coventry eins og köttur að mús í
fyrri hálfleiknum og staðan var
orðin 3:0 eftir 38 mínútur.
Nokkurt hik virtist koma á Ieik-
menn Derby þegar þeir misstu
fyrirliða sinn, Jacob Laursen, af
velli eftir brot Gary McAlister og
leikurinn jafnaðist í síðari hálf-
leiknum. Gordon Strachan,
framkvæmdastjóri Coventry,
sagði eftir leikinn að lið sitt hefði
aldrei átt möguleika, en kvaðst
vera ósáttur við dómgæslu David
Ellery. Strachan sakaði dómar-
ann um að hafa skellt á sig hurð,
þegar hann hugðist ræða málin í
leikhléi. Strachan sagði jafn-
framt að hann teldi það tíma-
bært að þeir sem blésu í flautuna
gerðu það í fullu starfi, en ekki í
aukastarfí.
Ron Atkinson, hinn nýráðni
framkvæmdastjóri Sheffield
Wednesday, féldt óskabyrjun þeg-
ar lið hans sigraði Arsenal 2:0.
Heimamenn komust á sporið
eftir varnarmistök rétt fyrir leik-
hlé sem Andy Booth nýtti sér að
fullu og Guy Whittingham inn-
siglaði sigurinn, stuttu fyrir
Ieikslok.
John Barnes var flestum að
óvörum settur í fremstu línu
Newcastle þegar liðið tók á móti
Southampton. Barnes þakkaði
fyrir sig og skoraði bæði mörk
liðsins í 2:1 sigri. Newcastle var
sterkari aðilinn allan límann, en
náði ekki foryslunni fyrr en þeg-
ar stundarfjórðungur var til
leiksloka. Bjarni Guðjónsson var
ekki á Ieikskýrslu hjá Newcastle.
Vinstri hakvörður Blackburn,
Steve Croft, skoraði sigurmark
liðs síns gegn Chelsea í fyrri
hálfleiknum og hefndi þannig
ófaranna frá því í deildarbikarn-
um, þegar Chelsea hafði betur.
Guðni Bergsson var að venju f
liði Bolton og Arnar Gunnlaugs-
son kom inn á sem varamaður í
markalausri viðureign gegn
Leicester. — FE
UMFAá
toppiim
Afturelding endurheimti topp-
sætið í 1. deild karla í hand-
knattleik um helgina. Mosfells-
bæjarliðið lagði Hauka að velli á
laugardag og FH-ingar, sem
sáttu á toppnum fyrir umferð-
ina, máttu þola tap gegn Stjörn-
unni sl. sunnudagskvöld.
Urslit leikja urðu þessi:
ÍBV-KA 25:31
UMFA-Haukar 25:23
Breiðablik-Fram 20:29
FH-Stjarnan 20:23
Víkingur-ÍR 24:24
Valur-HK 30:24
Staðan er nú þessi:
Afturelding 10 8 0 2 257:241 16
FH 10 7 1 2 280:239 15
Stjarnan 10 7 0 3 276:257 14
KA 9 6 12 258:234 13
Haukar 10 5 2 3 271:252 12
Fram 10 6 0 4 271:255 12
Valur 10 5 1 4 236:231 11
ÍBV 10 4 1 5 282:284 9
ÍR 10 3 1 6 245:267 7
HK 10 3 0 7 249:255 6
Víkingur 9 1 1 7 217:244 3
Breiðablik 10 0 0 10 227: 30 9
Leikur KA og Víkings, sem
frestað var úr 9. umferð, verður
leikinn í KA-heimilinu annað
kvöld og hefst hann ld. 20.
ENGLAND
Úrslit urðu þessi í leikjum ensku
úrvalsdeildarinnar um síðustu
helgi.
Sunnudagur:
Leeds-West Ham 3:1
Hasselbank 77, 90,
Haaland 88 -
Laugardagur
Aston ViIIa-Everton 2:1
Milosevic 36, Ehiogu 56 - Speed
vsp. 12.
Blackburn-Chelsea 1:0
Croft 1 1 -.
Derby-Coventry 3:1
Baiano 3, Eranio vsp. 30,
Wanchope 39 - Huckerby 71.
Leicester-Bolton 0:0
Liverpool-Barnsley 0:1
- Ward 35.
Newcastle-Southampton 2:1
Barnes 55, 75 - Davies 5.
ShefT. Wed.-Arsenal 2:0
Booth 42, Whittingham 86 -.
Wimbledon-Man. Utd. 2:5
Ardley 70, Hughes 72 -
Butt 48, Beckham 66, 76,
Scholes 81, Cole 87.
Staðan er nú þessi fyrir leik
Tottenham og Crystal Pal. í gær-
kvöld:
Man. United 15 9 4 2 36:12 31
Blackburn 15 8 6 1 27:13 30
Arsenal 15 7 6 2 30:17 27
Leeds 15 8 2 5 23-17 26
Chelsea 14 8 1 5 29:17 25
Derby 14 7 2 5 28:20 23
Leicester 15 6 5 4 19:14 23
Liverpool 14 6 4 4 25:14 22
Newcastle 12 6 3 3 16:16 21
Wimbledon 15 5 4 6 18:20 19
Aston Villa 15 5 3 7 15:21 18
Coventry 15 3 8 4 13:19 17
Crystal Pal. 13 4 4 5 13:15 16
Southampton 15 5 1 9 18:23 16
West Ham 14 5 1 8 18:24 16
Sheff. Wed. 15 4 3 8 25:35 15
Tottenham 14 2 4 7 11:21 13
Bolton 14 2 7 5 10:21 13
Barnsley 15 4 1 10 12:40 13
Everton 14 3 3 8 16:23 12
Markahæstir:
Dennis Bergkamp, Arsenal 10
Chris Sutton, Blackburn 10
Francisco Baiano Derby 9
Ian Wright, Arsenal 9
Andy Cole, Man. Utd. 8
John Hartson, West Ham 8