Dagur - 16.12.1997, Side 1
„Munurað eiga svona
prestfrú, “ sagði kona á
Hvammstanga þegar
húnfórá leiksýningu
og sá prestfrúna, Guð-
rúnu Helgu Bjama-
dóttur, í hlutverki
Línu Langsokks.
„Ég er smá Lína í mér og þarf
ekki að leika hana nema að hluta
til. Til dæmis hef ég alltaf reynt
að sjá björtu hliðarnar á hlutun-
um og læt fátt stoppa mig í því
sem ég ætla mér að gera. Eg gæti
auðveldlega staðið á öðrum fæti
og haldið á hesti með annarri
hendi,“ segir Guðrún Helga
Bjarnadóttir, leikskólastjóri og
prestsfrú á Hvammstanga.
Sonuriim er Herra Níels
Leikfélag Hvammstanga sýnir
þessa dagana leikritið um Bland í
poka, sem stendur saman af brot-
um úr fjórum sígildum barnaleik-
ritum, það er
Kardimommu-
bænum, Dýrun-
um í Hálsaskógi,
Karíus og Bakt-
us eftir Thor-
björn Egner - og
loks Línu
Langsokk eftir
Astrid Lindgren.
Leikfélagið er
þróttmikið
menningarfélag í
Húnaþingi og
hefur Guðrún
Helga nokkuð
starfað með því. Lék í uppsetn-
ingu félagsins á Skáld-Rósu síð-
astliðið vor og þá hljóp hún í
skarðið, þremur dögum fyrir
frumsýningu. Að þessu sinni ætl-
aði Guðrún hinsvegar ekki að
vera með í leiknum og mætti á
fyrstu æfingu til að gera heyrin-
kunnugt að hún yrði ekki með.
„En það var tekið fram fyrir
hendurnar á mér og endirinn
varð sá að ég ákvað að slá til,“
segir Guðrún.
Alls taka þrettán leikarar þátt í
uppsetningunni á Blandi í poka,
þar á meðal sonur Guðrúnar og
sr. Kristjáns Björnssonar, eigin-
manns hennar. Hann heitir Sig-
urður Stefán og fer með hlutverk
apans, Herra Níels. „Ég hleyp
með hann á herðunum um svið-
ið, sýninguna út í gegn,“ segir
Guðrún. - Hún segist hafa
drukkið söguna um Línu
Langsokk í sig þegar hún var lítil
stelpa og sér sé minnisstæð sýn-
ing Leikfélags Kópavogs á leikrit-
inu um Línu fyrir mörgum árum.
Þá hafi hún farið með börnin sín
í Borgarleikhúsið fyrir nokkrum
árum og séð Línu þar.
Að eiga svona prestfrú
Guðrún Helga segist hafa fengið
sterk viðbrögð frá þeim fjölmörgu
sem hafa séð sýninguna að und-
anförnu. „Það var kona sem
mætti á eina sýninguna sem
sagði við mig að henni lokinni að
það væri nú munur að eiga svona
prestsfrú,“ segir Guðrún, sem þó
vill ekki gera mikið úr því að hún,
maddaman sjálf, sé um stundar-
sakir í þessu hlutverki.
Sú nýbreytni hefur verið við-
höfð á sýningun-
um á Blandi í
poka að undan-
förnu að selja
ekki sælgæti í
hléi. Þess í stað
hefur verið boð-
ið uppá jólaöi,
kaffi, piparkökur
og heimabakaða
skúffuköku frá
nokkrum af
myndarlegustu
og best bakandi
húsmæðrunum
á Hvammstanga.
Ánýjuári
A morgun, sunnudag, er áformuð
á Hvammstanga lokasýning á
Blandinu í pokanum. Er það eins
og búast má við, þegar jólaasinn
er kominn í fólk. Hinsvegar hafa
Maddama Langsokkur og hennar
ættingjar gert þvílíka lukku á fjöl-
um Félagsheimilisins á Hvamms-
tanga að undanförnu að nú er
áformað að taka sýningar upp
aftur, strax á nýju ári. -SBS.
„Það varkona sem
mætti á eina sýning-
una sem sagði við mig
að henni lokinni að
það væri nú munurað
eiga svona prestsfrú, “
segir Guðrún Helga.
„Ég er smá Lína ! mér og þarf ekki að leika hana nema að hluta til. Til dæmis hef ég alltaf reynt að sjá björtu hliðarnar á hlutunum
og læt fátt stoppa mig íþví sem ég ætla mér að gera. Ég gæti auðveldlega staðið á öðrum fæti og haldið á hesti með annarri
hendi, “ segir Guðrún Helga Bjarnadóttir, leikskólastjöri og prestsfrú á Hvammstanga, sem leikur Línu Langsokk hjá Leikfélagi
Hvammstanga.
Vegmúli 3 • 108 Reykjavik • Simi S88-7200 • Fax S88-7201
Veitum hagstæð
lán til kaupa á
landbúnaðawélum
' SP-FJARMOGNUN HF
Þaö tekur aöeins
eittn
virkan
aö koma póstinum
þínum til skila
«
SPARISJÓÐUR NORÐLENDINGA