Dagur - 16.12.1997, Side 2
18-ÞRIÐJUDAGVR 16 .DESEMBER 1997
ro^tr
LÍFIÐ t LANDINU
Dagur • Strandgötu 31 • 600 Akureyri
og Þverholti 14 • 105 Reykjavík
Sfmimi hjá lesendaþjónustmmi:
5631626,
460 6171“ 551 6270
inetfang: ritstjori@dagur.is
Simbréf: æ a a f»i*n eða i
Þessir hringdu
Bréffrá...
Hrafnseyri
Ekkert klárn í SORPU!
/ haust voru liðin 100 ár frá því nokkrir foreldrar á Þ/ngeyr/ tóku sig til og efndu tii
skólahalds fyrír börn. Myndin sýnir kirkjuna á Þingeyri.
Hundrað ára skóla-
hald á Þmgeyri
í haust voru Iiðin 100
ár frá því nokkrir for-
eldrar á Þingeyri tóku
sig til og efndu til
skólahalds fyrir börn
sín í heimahúsi á staðn-
um. Skólahald hafði
reyndar hafist í Þing-
eyrarhreppi talsvert fyrr,
eða árið 1885, þegar
stofnsettur var skóli í
Haukadal, en þá og fram yfir
aldamót, var þar þróttmikið
mannlíf og fleira fólk búsett en
á Þingeyri.
Gunnar Hvanndal, veður-
fræðingur, segir frá þvf í 2.
hefti af Mannlífi og sögu, að
fyrsti skólastjórinn á Þingeyri,
Þorvarður Þorvarðarson, cand.
theol. hafi lent í hremmingum
nokkrum þegar hann tók að sér
að Ieiðbeina piltum í dönsku,
utan skólatíma. Gunnar segir
svo frá:
„Byijuðu svo dönskutímarnir,
sem hafðir voru á kvöldin í
Hermanns Wendels húsi. Inn-
an tíðar kom skólanefndin og
lét Þorvarð vita, að hann mætti
ekki kynda ofn skólastofunnar
utan kennslustunda. Heldur
en að hætta við allt saman,
ákvað Þorvarður að taka skóla-
piltana heim til sín og kenna
þeim í sínu prívat herbergi á
Pósthúsinu. Segir svo ekki
frekar af kennslunni, en þegar
piltarnir ætluðu að fara að
borga honum, vildi hann enga
borgun, en bað þá að hafa
sama háttinn á, ef til þess
kæmi, að til þeirra yrði leitað í
svipuðum efnum.“ Já, það eru
breyttir tímar!
Tómas Jónsson frá Gili í
Dýrafirði, var lengi skólastjóri
Barnaskóians á Þingeyri,
Tómas er kunnur fyrír gaman-
semi sína og létta lund og eru
eftirfarandí tvær frásagnir hans
til vitnis um það.
„Þetta lagast allt þegar
snjórinn kemur “
Það var að hausti til, og skól-
Hallgpimup
Sveinsson
skrifar
inn nýbyrjaður, að
móðir eins drengsins í
skólanum hringdi til
mín og kvartaði yfir
því að drengurinn
lærði ekkert heima,
og sagði það ótækt að
við kennarar létum
hann komast upp með
það. A ég þá að hafa
svarað: „Hafðu
engar áhyggjur af drengnum,
þetta lagast allt þegar snjórinn
kernur."
Og það gekk eftir.
En konan trúði mér fyrir því
seinna, að eftir þetta samtal
hafi hún sagt við sjálfa sig: „Við
þennan helvítis mann tala ég
ekki oftar.“ Sú varð nú ekki
raunin, því seinna gerðist hún
kennari við skólann!
„Nú hefur þú gleymt að
greiðaþér, Tommi“
Það var regla hvern morgun,
að nemendur stilltu sér upp í
röð á gangi skólans, áður en
gengið var inn í skólastofurnar.
Það var ekki fyrr en kennarinn
sagði: „Gjörið þið svo vel,“ og
dyr skólastofanna voru opnað-
ar, að hver og einn gekk til sæt-
is síns.
Einn morguninn, þá er allir
voru komnir í sína röð, fannst
mér að ég þyrfti að flytja smá
áminningarpistil. Það var mér
eiginlegt að tala alltaf hátt og
skýrt, með nokkrum þögnum á
milli. Áleit ég áhrifamátt þagn-
arinnar ekki minni en orða-
flaumsins. Þá gerist það í einni
dauðaþögninni, að drengur
nokkur, saJdeysislegur á svip-
inn, segir hátt og skýrt: „Nú
hefur þú gleymt að greiða þér,
lommi.
Þar með lauk áminningar-
ræðunni.
ÍDegiþ. 10.12. var
smápistill frá konu
sem hafði hringt og
kvartað undan klám-
myndum í Sorpu.
Ragna Halldórsdóttir
umhveifisfræðingur
sendi þetta svar
Það var fyrir um tveim vikum að
framkvæmdastjóri SORPU kall-
ar mig inná skrifstofu og segir
að það sé komið upp alvarlegt
mál. Það hafi hringt kona og
hún kvarti yfir því að dóttir sín,
13 ára, hafi orðið fyrir áfalli
vegna klámmynda á veggjum
SORPU og Idámblöðum um allt.
Konan gerði mikið úr þessu og
talaði um að færa málið fyrir
lögrelglustjóra. Barnið hafi kom-
ið með Rimaskóla í vettvangs-
ferð og hafi séð nektarmynd af
Pamelu Anderson? Fram-
kvæmdastjóri biður mig um að
athuga málið, hvort það sé ein-
hver fótur fyrir þessari ásökun.
Niðurstöður mínar voru þær,
að í fyrsta lagi var engin skrán-
ing hjá mér um að ég hafi tekið
á móti 13 ára nemendum úr
Rimaskóla. Eg skrái hvern skóla
þegar kennarar hringja inn og
panta vettvangsferð.
I öðru lagi þá fara nemendur
ekki út úr rútu inní móttökustöð
og koma aldrei inn í hús í end-
urvinnslustöðvum, enda er þar
ekkert að sjá. Það eru því engar
berar konur á vegi þeirra í vett-
vangsferð, nema þeir hafi góðan
kíki og geti séð eitthvað hanga
utan á böggluðum pappír í mót-
tökustöðinni.
I þriðja lagi, þeir nemendur
sem labba í gegnum stöðina sjá
kannski blaðahrúgu á gólfinu
við pressuna en það eru ekki
frekar klámblöð en eitthvað
annað. Mestmegnis eru þetta
dagblöð.
I Móttökustöðinni eru blöð í
kassa inni í trúnaðarskjalaher-
bergi af margvíslegum toga og
mynd af Pamelu Anderson í bik-
ini á ströndinni uppá vegg. Það
má kannski skilgreina það sem
bera konu? Þá mætti spyija sig
að því hvort banna ætti börnun-
um að fara í skólasund. Annað
hangir ekki þar, nema kannski
mynd af Jesú í fallegum gylltum
ramma. Nemendur í vettvangs-
ferð koma aldrei í trúnaðar-
skjalaherbergi og myndin af
Pamelu er saklausari en margur
myndi sjá inná næsta verkstæði
eða víða annarsstaðar.
Ég hringdi í konuna sem hafði
komið með þessar ásakanir á
hendur SORPU og hafði hún
lítinn sem engan tíma til að tala
við mig né vildi segja mér hvar,
hvenær eða hvernig þessi saga
væri komin til.
Það er því óhætt að segja með
sönnu að nemendur komi til
SORPU til að sjá úrgang á leið
til endurvinnslu eða urðunar og
fræðast um umhverfismál og er
viðkomandi lesanda boðið að
koma til SORPU og kynna sér
málið í eigin persónu.
Ragna Halldórsdóttir,
unihverfisfræðingur SORPU.
Visa, Euro, Frí, Vildar...
Lesandi hringdi vegna þeirrar
kortaumræðu sem á sér stað í
þjóðfélaginu nú og hafði þetta
að segja:
„Við verðum víst að sætta okk-
ur við það að þessi kort eru
komin til að vera og getum ekki
breytt því nema með því að allir
taki sig saman um að hætta að
nota þau og það er líklega ekki á
dagskrá. En vegna þess, þá er
bara eitt sem við getum gert og
það er að vinna með þeim, eða
eins og stundum er sagt: if you
cant beat them, join them. I því
felst að í hvert skipti sem við
förum í búð, þá eigum við að
spyrja afgreiðslufólkið hvort ekki
gildi eitthvert kort hjá viðkom-
andi fyrirtæki og séu þau fleiri
en eitt, þá að fá útskýringu á því
hvert þeirra sé hagstæðast að
nota og/eða hvort peningar komi
kannski best út í það skiptið.
Þetta kallar jú á að afgreiðslu-
fólk sé vel inni í þessum málum
og kemur til með að tefja af-
greiðslu eitthvað, en það er eng-
in ástáeða til annars en að nota
þessa þjónustu, sem svo sannar-
lega er komin eða kemur út í
verðlagið og bitnar auðvitað
fyrst og fremst á neytendum."
Framsókn skaðast af samstarfi vlð íhaldlð
Kona hringdi og vildi gera at-
hugasemdir við ummæli Hall-
dórs Ásgrímssonar, formanns
Framsóknarflokksins og Björns
Bjarnasonar, menntamálaráð-
herra um að samstarf Framsókn-
armanna við aðra flokka í R-Iist-
anum hefði skaðað flokkinn.
Sagðist hún viss um að Fram-
sóknarflokkkurinn hefði beðið
meira tjón af samstarfinu við
Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn.