Dagur - 16.12.1997, Page 6
22 — ÞRIDJUDAGVR 16.DESEMBER 1997
ro^tr
LÍFIÐ í LANDINU
Bestu og verstu
Jólabækumar streyma á
markað og þótt inni-
haldið varði mestu hefur
útlitið sitt að segja því
falleg bókarkápa laðar
að en Ijótfælirkaupand-
ann frá. Dagurfékk Stef-
án Snæ Grétarsson, graf-
ískan hönnuð hjá aug-
lýsingastofunni Máttur-
inn og dýrðin, til að
velja bestu og verstu
bókakápur ársins.
Tíubestu
bókakápur ársius
1. Leyndarmál frú Stefaníu
Jón Víðar Jónsson
Mál og menning
Skemmtileg tilraun með efni.
Hönnunin hæfir efninu vel -
andi fyrsta áratuga aldarinnar
skýr.
2. Og hugleiða steina
Sigfús Daðason
Forlagið
Vel heppnaður minimalismi.
Laus við stæla og hentar efninu
vel.
3. Góða nótt, Silja
Siguijón Magnússon
Bjartur
Það væri svosem hægt að velja
hvaða kápu sem er frá Bjarti.
Glæsilegur heildarsvipur, ein-
faldar og sterkar kápur.
4. Ævintýri nálfanna -
Flóttinn
Terry Pratchett
Mál og menning
Kápan er þess eðlis að þessa bók
verður að lesa! Ævintýri með
stóru Æ-i.
tottit l Mtornnumuitijnll
íflu Híbbí* Bílsjsleia
5. Hádegisverðurinn er aldrei
ókeypis
Þættir í stjórnmálafræði eftir
Hannes Hólmstein Gissurarson
Hið íslenska bókmenntafélag og
Stofnun Jóns Þorlákssonar
Töff kápa og hörð. Hentar efn-
inu vel.
6. Bræður af Ströndum
Sýnisbók íslenskrar alþýðu-
menningar
Sigurður Gylfi Magnússon
Ekki gallalaus hönnun en
skemmtileg. Góð Ijósmynd og
skemmtileg tilraun með
týpographiu.
7. Grandavegur 7
Vigdís Grímsdóttir
Iðunn
Mig minnir að grafíkin sé unnin
uppúr gömlu kápunni, sem er í
lagi, og ljósmyndin er flott.
8. Erta
Didda
Forlagið
Agæt hugmynd þetta með dag-
bókina. Hefði þó mátt vera
hreinni - en hentar það Diddu?
Jean-DomÍBÍquc Dauby
9. Glerhylkin og fiðrildið
Jean-Dominique Bauby
Fróði
Skemmtileg tilvísun f tískublöð-
in, en ég lýsi eftir því hvað dreq
MVC YED þýðir.
g yótfðtíul GísÚSJk
Salomon
^svarti
10. Salomon svarti
Hjörtur Gíslason
Skjaldborg
OK, þetta er hálfgert svindl.
Kápan er örugglega fjörutíu ára
gömul en það er hægt að læra af
þessu.
Verstu
bókakápumar
laosinf
smm
I' Stein^rímur’ StH. s&or&.sö'i V
Jrfi 'V líf Jffifik.uj't
1. Lausnar steinn
Steingrímur St. Th. Sigurðsson
Fjölvi
A1 hverju þurfa endurminningar
að vera svona Ijótar?
2. ísland hið nýja
Trausti Valsson og Birgir Jóns-
son
Fjölvi
Ogurleg meðferð á letri og ljótar
myndir.
3. Leiðin til hamingjunnar
L. Ron Hubbard
Fróði
Hvað er eiginlega verið að fara?
Leturmeðferð klaufaleg og ljós-
myndin ljót.
4. Af silunga- og Iaxaslóðum
Islenska stangveiðihandbókin
1997
Guðmundur Guðjónsson
Sjónarrönd
Nei. Nei. Nei. Myndir, letrið,
það er allt í ólagi.
5. Kæri Keith
Jóhanna Kristjónsdóttir
Fróði
Tilraun til að vera flott en mis-
tekst. Kannski átti Jóhanna ekki
betri mynd.
6. Sálumessa syndara
Ævi og eftirþankar Esra S. Pét-
urssonar, geðlæknis og sálkönn-
uðar
Ingólfur Margeirsson
Er blessaður maðurinn að kýla
sjálfan sig?
7. Útkall rauður
Sorg og sigrar í starfi björgunar-
sveita
Björgvin Richardsson
Skjaldborg
Klaufalegt Photoshop sukk.
Hlutföll milli mynda í ólagi.
8. Lífsgleði
Minningar og frásagnir
Þórir S. Guðbergsson
Hörpuútgáfan
Hið fallegasta fólk en liturinn er
ógurlegur.
9. Þá flugu ernir
Lítil flugsaga að vestan
Jónas Jónasson
Skjaldborg
Enn og aftur er verið að reyna
en formhugsunin er bara ekki í
lagi.
10. Brynhildur og Tarzan
Kristjána Bergsdóttir
Bókaútgáfan Hólar
Klaufaleg myndskreyting og
lélegar tilvísanir í klassíkina.
Sérstök
yerölaitn!!!
Ismaðurinn
Þorsteinn Antonsson
Ljótasta bókarkápan þessi jólin.
Það má ekki gera svona!