Dagur - 16.12.1997, Side 12
Var að Ieika í London
Drífa Arnþórsdóttir,
nýja þulan í Sjón-
varpinu, eralin upp
í Mývatnssveit.
„Mér líst ágætlega á þetta starf.
Það er svolítið skrýtið að standa
uppi á kassa og stíga á nokkurs
konar saumavélafót til að láta
textann rúlla í myndavélinni án
þess að það sjáist á skjánum hvað
maður er að gera. Þetta venst,"
segir Drífa Arnþórsdóttir, 28 ára
þula í Sjónvarpinu.
Boðið þulustarf
Drífa er nýflutt til landsins eftir
fimm ára búsetu f London og
strax tekin til starfa sem þula í
Sjónvarpinu. Hún er ættuð að
norðan og margir Akureyringar
kannast sjálfsagt við hana úr
leikritinu Nönnu systur hjá LA í
hitteðfyrra. Foreldrar Drífu eru
Arnþór Björnsson og Helga Val-
borg Pétursdóttir en þau ráku
Hótel Reynihlíð til margra ára.
Drífa varð stúdent frá MA og fór
svo í þriggja ára nám í Ieiklist í
London. Eftir námið ílentist hún
í Englandi og var í ýmsum hlut-
verkum í smærri leikhúsum.
„Þetta voru mjög mismunandi
hlutverk. En ég Iék alltaf ungar,
sakleysislegar stúlkur í garnni
eða alvöru," segir hún.
Foreldrar Drífu höfðu sótt um
fyrir hana að verða kynnir á
barnaefni í haust því að þar sá
hún fram á að geta kannski not-
að Ieiklistina - og fór í prufu.
Hún fékk reyndar ekki starfið en
nokkru síðar var hringt í hana og
henni boðið þulustarf sem hún
og þáði. Hún er þó ekki alveg
hætt við leiklistina heldur ætlar
að reyna að koma sér á framfæri.
Bíður eftir nýárinu
„Leikhúsfólk þekkir mig ekki af
því að ég lærði erlendis. Ég sé
þetta sem ákveðna leið til að fólk
muni eftir mér ef það eru ein-
hver hlutverk sem gætu verið við
mitt hæfi,“ segir hún.
Drífa kveðst vera á ákveðnum
tímamótum þessa dagana, heim-
þráin og útþráin togi til skiptis í
hana. -GHS
„Ég er að bíða eftir nýárinu og sjá hvað
gerist þá, “ segir Drífa Arnþórsdóttir, 28
ára Mývetningur sem er nýráðin sem
þula i Sjónvarpinu.
Canon BJC-250
Gerð: A4 litableksprautuprentari
Hraði: 4 bls. á mín í s/h - 0,52 bls á mín í iit
Upplausn: 720 dpi
Pappírsmeðferð: Arkamatari fyrir 100 blöð
Gerð: A4 litableksprautuprentari, 2ja hylkja kerfi
Hraði: 5 bls. á mín í s/h - 2 bls á mín í lit
Upplausn: 720 dpi
Pappírsmeðf erð: Arkamatari fyrir 100 blöð
Ný pre nttækni: CCIPS - Canon Image Processing
System sem gerir Ijósmyndir enn skarpari. Fjögurra laga
bleksprautun í stað tveggja.
DMT - Drop Modulation tækni sem stjórnar dropastærð
bleksins sem skilar skarpari prentun.
Annað: 'Banner Printing'
Ferð þú á HM í
Frakklandi næsta
sumar?
Allir sem festa kaup á Canon
prentara fyrir 1. maí nk. fara
í HM-pottinn og heppinn
vinningshafi fær tvo miða á
HM'98 í boði Nýherja og
Canon.
Opið til 18:00 á
laugardögum
Canon
{rj>
NÝHERJI
- Verslun -
Skaftahlið 24 - Sími 5S9 7700
http://www.nyharji.is
kr. 13.750