Dagur - 17.02.1998, Síða 5
ÞRIDJUDAGUR 17.FEBRÚAR 1998 - S
Víypr
FRÉTTIR
Borgin svíkur öll loforð
Hjálmar Hafliðason , formaður húsfélagsins: Við höfum verið að reka á eftir því hjá
borginni að hún efndi það sem lofað var þegar Bólstaðahlfðinni var lokað
mynd: hilmar
Borgin hefur ekki
efnt neitt af því sem
hún lofaði íhúum
þjónustuíbúða við
Bólstaðahlíð þegar
SVR hætti akstri um
götuna.
„Það vantaði ekki að það var
heilmiklu lofað hjá borginni
(þegar strætisvagnaleið um göt-
una var lokað) - en það hefur
ekki verið staðið \ið neitt af því,
ekki einu sinni að bera sand á
svellið hér í kring. Það var hringt
þrisvar á föstudaginn til að biðja
um sand, en hann kom ekki. Og
við höfum lfka verið að hringja
núna í morgun, en það bólar
ekkert á þeim,“ sagði Haraldur
Hafliðason, húsvörður í þjón-
ustuíbúðum aldraðra \ið Ból-
staðahlíð. Hann hefur þ\í tak-
markaða trú á að Reykjavíkur-
borg efni önnur loforð sín.
Lofað Mta í stétt - fá ekki
einu sinni sand
„Við höfum verið að reka á eftir
því hjá borginni að hún efndi
það sem lofað var þegar Ból-
staðahlíðinni var lokað og stræt-
isvagnarnir hættu að stoppa við
húsið, en það gengur ekki
neitt,“ sagði Hjálmar Hafliða-
son, formaður húsfélagsins.
„Það var lofað að hiti yrði settur
í gangstéttina alveg út á Háteigs-
veg. Einnig var lofað lagfæring-
um við Háteigsveginn, bæði að
setja skýli sunnan við götuna og
gönguljós við gangbrautina yfir
hana, því fólk fer svo mikið í
verslanirnar í Skipholti 70. En
ekkert af þessu er komið,“ sagði
Hjálmar.
Blaðamanni Dags, sem átti
leið þar framhjá á Iaugardag og
hrósaði happi yfir að sleppa með
heil bein úr þeim mannraunum,
lék fonitni á að vita hvort aldr-
aðir íbúar hússins væru ekki því
sem næst í „stofufangelsi" heima
hjá sér. Hættir aldrað fólk sér út
úr húsi við slíkar aðstæður?
Enginn út á Háteigsveg á
svona glæru
„Nei, það hættir sér ekki út á
svona glæru, nema þá í einhverj-
um neyðartilfellum og þá ein-
ungis í bíl upp við dyr. Það labb-
ar enginn hérna út á Háteigsveg
í þessu fær,i“ sagði Haraldur.
Auk 66 íbúða fyrir aldraða í Ból-
staðahlíðini er rekið þar félags-
starf fyrir aldraða, sem koma
heiman að frá sér víðs vegar úr
borginni. Meirihluti aldraðra
eru bíllausir og strætisvagnar því
þeirra helsta samgöngutæki.
Það til í fyrrasumar stoppaði
strætó svo að segja við húshorn-
ið, en nú ekur hann einungis um
Háteigsveg.
Hjálmar og Haraldur voru
sammála um að helstu rökin fyr-
ir lokun Bólstaðahliðar fyrir um-
ferð; mörg slys á börnum, séu
hæpin. „Þegar þetta var athug-
að reyndist ekkert meira um slys
hér en í öðrum hverfum," sagði
Hjálmar. Með því að koma fyr-
ir upphækkuðum hraðahindrun-
um, eins og t.d. á Háteigsvegin-
um, sé engin ástæða til að loka
Bólstaðahlíðinni fremur en öðr-
um götum. -HEI
Jafnréttis-
námskeið
Gertrud Átröm kennir hérlendum
grundval/arreglur jafnréttis. mynd: bús'
Vegna þessa er stödd hér á landi
Gertrud Áström sem stýrir um-
fangsmiklu tilraunaverkefni á
vegum sænskra sveitarfélaga þar
sem jafnréttismál eru samtvinn-
uð vinnu að öðrum málaflokk-
um undir heitinu samþætting
(mainstreaming).
Eirikur Bj. Björgvinsson,
íþrótta- og tómstundafulltrúi
Akureyrar, segir fyrsta boðorðið
í þessari samþættingarvinnu
vera að greina ástandið eins og
það er og síðan að Ieita leiða til
að bæta það. „Við erum að veita
almenningi þjónustu fyrir pen-
inga skattborgaranna og við
megum þ\rí ekld einblína á einn
hóp fremur en annan þegar við
skoðum starf okkar. Grundvall-
aratriðið í samþættingunni er að
Iíta ekki á jafnréttið sem sérstak-
an þátt við hlið annarra samfé-
lagsþátta, heldur sem hluta af
stærri heild,“ segir Eiríkur.
Gertrud hélt fyrirlestra og átti
í gær fundi með forystufólki í
bæjarstjórn Akureyrar og for-
svarsmönnum íþróttafélaga, fé-
lagsmiðstöðva og hverfafélaga á
staðnum. I dag mun hún hitta
borgarfulltrúa og embættis-
menn í Reykjavík. Verkefni
Iþrótta- og tómstundráðs
Reykjavíkur og Akureyrar er til
þriggja ára og er markmiðið að
þróa og reyna leiðir og tæki sem
stuðla að því að jafnréttissjónar-
miða verði gætt við alla vinnu
við málaflokka. hh
Þríhöfðanefiidin
Forystumenn sjómanna og útgerðar gengu á fund svokallaðrar Þríhöfðanefndar i sjávarútvegsráðuneytinu í gær. Þar kynntu
menn sjónarmið sín um verðmyndun sjávarfangs og afnám kvótabrasksins. Nefndin á eins og kunnugt er að skila tillögum til
lausnar þessum tveimur erfiðu deilumálum eigi siðar en 15. mars nk. en þá rennur út sá frestur sem sem gerður var á sjó-
mannaverkfal/inu. Þeir sem eiga þetta verk fyrir höndum eru þeir Jóhann Sigurjónsson, sendiherra t.v., Árni Kolbeinsson, ráðu-
neytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, sem jafnframt er formaður nefndarinnar og Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri i forsætis-
ráðuneytinu. -grh mynd: e ól
Smásagnahöfundar fá tækífærí
Dagur og Menor efna
enn til smásagnasam-
keppni. Síðast bárust
25 sögur.
Hin árlega bókmenntasam-
keppni Dags og Menningarsam-
taka Norðlendinga (Menor) er
nú kynnt og almenningur hvatt-
ur til að senda smásögur. I fyrra
var ljóðasamkeppni, og bárust
yfir 90 ljóð. I ár verður smá-
sagnasamkeppni og skilafrestur
Erlingur Sigurðarson vann til tvennra
verðlauna í fyrra í Ijóðasamkeppni
Dags og Menor.
hér með gefinn til 20. apríl.
Olafur Þ. Hallgrímsson á Mæli-
felli, aðaldriffjöður Menor, mun
kalla saman dómnefnd, en Dag-
ur kynna keppnina og hafa milli-
göngu um þrenn vegleg bóka-
verðlaun. Keppnin er opin lands-
mönnum öllum og ber að skila
handritum til Dags, Strandgötu
31, eða í Þverholt 14, fyrir 20.
apríl. Vinsamlega sendið ekki
frumrit þar sem ekki er hægt að
ábyrgjast endursendingu á hand-
ritum.
ALÞINGI
Heimasmíði
Steingrímur J.
Sigfússon
spurði í gær
Þorstein Páls-
son dómsmála-
ráðherra að því
á Alþingi hvort
ekki væri
ástæða til að
koma skipa-
smíðum í land-
inu af stað aftur
með því að láta smíða varðskipið,
sem fyrirhugað er að smíða, hér
á landi? Þorsteinn sagði það
áhugavert og sjálfsagt að kanna
hvort unnt sé að smíða skipið
hér á landi.
Hjálmar Árnason.
Völu boðið heim
Hjálmar Árna-
son benti í gær
á afrek Völu
Flosadóttur,
heimsmethafa í
stangastökki
kvenna, og
spurði mennta-
málaráðherra
hvort eitthvað
ætti að gera í
hennar málum. Sem kunnugt er
dvelur hún í Svíþjóð við æfíngar
því engin aðstaða er fyrir hana
hér á landi. Björn Bjarnason
menntamálaráðherra sagði að
hann hefði ákveðið að bjóða
Völu og þjálfara hennar til Iands-
ins 3. mars næstkomandi. Þá
yrði þeim sýndur ýmis sómi með-
an á dvöl þeirra stendur.
Ekkert hægt að
fuUyrða
Friðrik Sophus-
son sagði á Al-
þingi í gær að
ekki væri hægt
að fullyrða neitt
um það að það
endurtæki sig
ekki að ríkið
innheimti eitt-
hvert gjald sem
því bæri ekki.
Svarið kom við
fyrirspurn Guðrúnar Helgadótt-
ur vegna skráningarmáls á Vest-
fjörðum sem fjármálaráðuneytið
tapaði fyrir útgerðarmanni þar
vestra, eins og Dagur skýrði frá
um helgina. Margir fleiri útgerð-
armenn hafa þurft að greiða
þetta ólöglega skráningargjald í
gegnum árin og spurði Guðrún
um endurgreiðslur á gjaldinu.
Fjármálaráðherra sagðist ekki
vita á þessari stundu hvort greitt
yrði lengra aftur í tímann en 2 ár.
Hátt ljósleiðara-
gjald
Hjörleifur Gutt-
ormsson hefur
lagt fram fyrir-
spurn til sam-
gönguráðherra
um hvað valdi
háu ljósleiðara-
gjaldi hjá
Landssímanum
og hvers vegna
landsmönnum
sé mismunað eftir búsetu að því
er varðar gjaldtöku fyrir aðgang
að Ijósleiðaranum.
Hjörleifur
Guttormsson.