Dagur - 17.02.1998, Síða 6
6-VRIDJVDAGVK 17.FEBRVAR 1998
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag: dagsprent
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjórar: stefán jón hafstein
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Aöstodarritstjóri: BIRGIR GUÐMUNDSSON
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: STRAndgÖtu 31, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo og 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritsijori@daour.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.680 kr. á mánuði
Lausasöiuverð: 150 kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: soo 7080
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Sfmar auglýsingadeildar: cREYKJAVíK)563-1615 Ámundi Ámundason
CAKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Simbréf ritstjórnar: 460 6171CAKUREYRI) 551 6270 creykjavíK)
Dýr er Steiner allur
í fyrsta lagi
Það hefur legið fyrir í áratugi að geigvænlegasta einstaka
vandamálið sem steðjar að ungu fólki á vesturlöndum, þar á
meðal á Islandi, er sívaxandi fíkniefnaneysla. Harðsvíraðir
glæpamenn komast upp með að flytja til landsins og selja hass,
amfetamín og önnur hættuleg fíkniefni. Viðurkennt er að mik-
ill hluti þeirra efna sem reynt er að smygla til landsins kemst
framhjá yfirvöldum, það er tollgæslu og lögreglu, þótt tekist
hafi á síðustu árum að hafa hendur í hári nokkurra burðardýra
með mikið af fíkniefnum í fóruni sínum.
í ööru lagi
Barátta yfirvalda gegn fíkniefnavandanum er um margt sorg-
arsaga. Um langt skeið var starfandi sérstakur dómstóll í
ávana- og fíkniefnamálum. Sá dómstóll var lagður niður við
skipulagsbreytingar á kerfinu, enda afar seinvirkur við af-
’greiðslu mála. Skýrsla Atla Gíslasonar, sem gerði sérstaka út-
tekt á starfsemi fíkniefnalögreglunnar vegna Steiner-málsins,
er dapurleg lesning um handahófskennd vinnubrögð í þessari
deild lögreglunnar í Reykjavík og á stundum alvarlegt dóm-
greindarleysi þar á bæ.
í þriðja lagi
Franklín Steiner er orðinn eins konar tákn um misheppnaðar
aðgerðir lögreglunnar gegn fíkniefnaglæpamönnum. Stjórn-
endur ávana- og fíkniefnadeildar lögreglunnar virðast hafa
haft barnalega trú á loforðum dæmds glæpamanns um aðstoð
við að upplýsa afbrot annarra. Með því dómgreindarleysi hófst
margra ára atburðarás sem reynst hefur lögreglunni dýr - kost-
að hana mikinn álitshnekki. Auðvitað er nauðsynlegt að kom-
ast til botns í því máli öllu og hreinsa andrúmsloftið. Enn mik-
ilvægara er þó acð endurreisa traust manna á lögreglunni og
getu hennar til að fást við harðsvíraða fíkniefnasala. Lögregl-
an ein getur endurheimt slíkt traust með því að gera hreint
fyrir sínum dyrum opinberlega og sýna í verki að hún hafi lært
af mistökunum.
Elías Snæland Jónsson.
G-blettnrinn
Garri er dálítið útundir sig.
Gleypir ekki allt hrátt og fer
aldrei að neinu óðslega. Þess
vegna sparar hann sér helgar-
blað Dags fram eftir kvöldi á
sunnudögum og les alltaf síð-
ast kynlífspistilinn hennar
Halldóru, svona undir svefn-
inn til að tryggja góða byrjun á
vinnuvikunni. Á mánudags-
morgnum er svo Garri kom-
inn í stellingar að hugsa um
pólitík.
Garri
roðnar
Garri er búinn að
vera með böggum
hildar. I heila viku
reyndi hann að
skilja hvað Alþýðu-
bandalagið hefði
samþykkt í auð-
lindagjaldsmálinu.
Að vísu samfagnaði
Garri skelfing mikið
því þegar allir for-
sprakkarnir komu í
halarófu eftir miðstjórnar-
fundinn og lýstu yfir „sigri Al-
þýðubandalagsins". Og sumir
- en ekki Garri - sem er út-
undir sig og gleypir ekld allt
hrátt og fer sér að engu óðs-
Iega - sumir lýstu yfir sigri for-
mannsins líka. En Garri var
að leita að því í skjölum, gögn-
um, ræðum og yfirlýsingum
hvað það væri sem róttæki
flokkurinn vildi með auðlindir
landsins. Og dettur það svo
ekki bara si svona úr lausu
lofti: Alþýðubandalagið vill...
Ja, það er einmitt það. Það er
ekki laust við að Garri roðni.
V
Skiljanlegur
unaður
Það sem er svo gott við tillögu
Auðlindabandalagsins er að
hún þuklar G-blett stjórnmál-
anna. Hinn leynda sæluhnúð
þar sem allir taugaendar koma
saman í einum og veita un-
aðshroll uppúr og niðurúr
öllu valdi. Þetta sem alla
dreymir um en ekki nema ör-
fáir finna. Alþýðubandalagið,
sem Garri hefur kosið X-G út
eitt, alla sína
hunds- og kattartíð,
fann sinn eigin G-
blett. Sjálft G-ið í
AuðlindabandalaG-
inu.
Nú er róttæki
flokkurinn samein-
ingarflokkur allra
flokka. Eða útboðs-
flokkur allra flokka,
búinn að bjóða út
verkefnið „auðlind-
irnar og þjóðin",
með skiíafresti og
áskilur sér rétt til að taka eða
hafna öllum tilboðum. Frá
Halldóri, Þorsteini, Sighvati...
bara helst ekki Margréti
sjálfri. Það sem vafðist fyrir
Garra og hann skildi ekki fyrr
en í fyrrakvöld þegar hann las
kynlífspistilinn var þetta: hvað
er svona gott við tillöguna? Jú.
Sigur Alþýðubandalagsins er
fólginn £ því að finna sinn eig-
inn G-blett. Unaðs- og sælu-
hnúðinn sem sendir straum
út í hvern kima og hvern krók
stjórnmálanna. Alþýðubanda-
Iagið rill stofna Nefnd. GARltl
Þreifid og þér munuð
finna: G-blettinn i
pólitíkinni.
JOHANNES
SIGURJÓNS
SON
skrifar
Isdansarar Alþtngis
Ríkissjónvarpið hefur sjálfsagt
ekki í annan tíma miðlað Iands-
mönnum jafn miklu magni af
þjóðlegu sjónvarpsefni og þessa
dagana, þar sem eru endalausar
beinar útsendingar af ís og snjó.
Reyndar er þetta vetrarríki aust-
ur í Japan, enda hefur hingað til
ekki þótt áhorfunarvænt að
senda út íslenskan ís og snjó
uppstyttulaust svo vikum skiptir.
Það er notalegt að sitja í upp-
hituðum stofum og horfa daginn
út og inn á þetta japanska vetrar-
ríki og einnig lærdómsríkt. Þarn^
má sjá skíðamenn bruna niður
brekkur á ógnarhraða og steypa
stömpum í stórhríðum og virðast
á köflum heppnir að sleppa lif-
andi. En ekki síður er merkilegt
að sjá ísfólk allra landa skauta
um svellin af slíku listfengi og
nákvæmni að undrun sætir.
Skautaskóli
Listiðja skautadansaranna er slík
að jafnvel Þingeyingur treystir
sér trauðla til að leika eftir,
óæfður. Nákvæmni í hreyfingum
er með þeim firnum að reikna
verður í brotum úr millimetrum
og sekúndubrotabrotum í tíma.
Minnstu mistök, t.d.
hreyfing vísifingurs
sem skeikar um brot
úr gráðu, getur vald-
ið því að skautadans-
arinn skriplar á
skötu, pommsar á
bossann og glatar
þar með dýrmætum
stigum.
Auga leið gefur að
þvílíkri ofurná-
kvæmni, svo yfirskil-
vitlegri stjórn á líkamanum verð-
ur ekki náð nema með þrotlaus-
um æfingum og lærdómi árum
saman.
Þessvegna ætti að sjálfsögðu
að koma á fót pólitískum
„skautaskóla" fyrir íslenska
stjórnmálamenn.
Pólitíska svelliö
Því hvernig er t.d. undirbúningi
íslenskra alþingismanna fyrir
þeirra mikilvægu
störf háttað í saman-
burði við undirbún-
ing skautadansaranna
fyrir þeirra blæ-
brigðaríka rennsli?
Hve margir alþingis-
menn hafa frá barn-
æsku lagt stund á
stjórnmálafræði,
mælskulist, rökfræði,
siðfræði, strærðfræði
og fleiri greinar sem
mönnum er nauðsyn-
legt að hafa á valdi sínu ef þeir
vilja verða sæmilega brúklegir ti)
þátttöku í stjórnmálum? Hvað
margir alþingismenn hafa
diplómur og gráður upp á að þeir
séu hæfir til þingstarfa í þágu al-
þjóðar? Eru íslenskir þingmenn
tilbúnir til að keppa á ólympíu-
leikum stjórnmálamanna, skauta
um á alþjóðlegu pólitísku svelli
undir vökulum augum strangra
dómara, þar sem minnstu mistök
leiða til falls?
Nákvæmni og feikileg hæfni
skautadansaranna, sem er af-
rakstur grtðarlegrar vinnu og
sjálfsafneitunar, minnir okkur á
að hér á Islandi eru flestir
fúskarar að bjástra við eitthvað
sem þeir hafa hvorki upplag né
undirbúning til að skila af sér
með árangri sem nægði til að
lenda ofar en í 666. sæti á
ólympíuleikum í viðkomandi
greinum.
Þannig hefur ofanritaður t.d.
aungvar gráður eða diplómur
sem veita honum réttindi til að
starfa sem pistlahöfundur. Og er
þar á sama báti og hæstvirtir al-
þingismenn og aðrir listamenn
þjóðarinnar.
Pólitíska svellið.
.VMpur
Fylgistþú með næturút-
sendingum Sjónvarps-
insfrá Vetmrólympíu-
leikunum íNagano?
Ólafur Öm Haraldsson
suðiirshautsfari.
„Nei, ég met
það meira að
ná nægum
svefni til að
geta sinnt
þeim verk-
efnum sem
ég þarf að
leysa á dag-
• U
ínn.
Óskar Þór Sigurbjömsson
skólastjóri Gagnfræðaskólans í
Ólafsfirði.
„Eg hef gert
það á köflum
en annað tek
ég upp og
fylgist með
þegar tími
gefst. Meira
og minna hef
ég áhuga á
öllum
keppnis-
greinum og einsog aðrir Olafs-
firðingar og Islendingar bíð ég
spenntur eftir þegar Kristinn
Björnsson, gamall nemandi
minn, mun keppa í stórsvigi að-
faranótt miðvikudags og í svigi
næsta Iaugardag. Þá fylgist ég
með því hvernig öðrum íslensk-
um keppendum vegnar og
ánægjulegt var að fylgjast með
velgengni Hildar Þorsteinsdóttur
í tvíkeppninni í fyrrinótt."
Þórinn E. Sveinsson
fonn.stjómarVetraríþróttamiðstöðvar
íslands á Akureyri.
»Tja> ég
tékka svona
á hvað er á
dagskránni
og horfi á
það stund-
arkorn.
Horfi á sumt
- sleppi öðru
en reyni þó
að ná öllum
úrslitum einstakra liða þessara
Ólympíuleika."
Sigmar B. Hauksson
fjölmiðlamaður.
„Nei, ég fer
snemma að
sofa og
vakna alltaf
fyrir sjö. Lifi
eftir mottó-
inu að morg-
unstund gefi
gull í mund.
Mín vetrarí-
þrótt eru
rjúpnaveiðar og stundum skýt ég
skarfa á skerjum og eina og eina
önd.“