Dagur - 17.02.1998, Side 10
r
10- ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
-Thyur
FRÉTTIR
Löggan brýnir
foreldra
Ekki virðast allir forráðamenn virða þær reglur sem gilda um útivist barna, en
ábendingar lögreglu eru skýrar.
Kolbrjálað veður á Akureyri um helgina. - mynd: bOs
Friðsælt á öldur
húsum í óveðri
Helgin var fremur ró-
leg hjá lögreglu og
voru rwnlega fjögur
hundruð verkefni
færð til hókunar sam-
kvæmt dagbók lög-
reglunnar í Reykjavík
13. til 16. fehrúar.
Um helgina voru 11 ökumenn
stöðvaðir vegna gruns um ölvun
við akstur og 20 vegna hraðakst-
urs. Þá voru höfð afskipti af fleiri
ökumönnum vegna ýmissa um-
ferðarlagabrota.
Um klukkan sex að morgni
sunnudags var bifreið sem ekið
var suður Ægissíðu ekið á kyrr-
stæða bifreið sem stóð í stæði.
Við höggið köstuðust þessar bif-
reiðar sfðan báðar á tvær aðrar
bifreiðar. Alls voru það því sex
ökutæki sem skemmdust í
óhappinu og eignatjón mikið.
Okumaðurinn, 32 ára karlmað-
ur, sem óhappinu olli slasaðist í
aridliti og hendi en ekki alvar-
lega. Hann er grunaður um ölv-
un við akstur.
Útivist bama
Nokkuð var um að lögreglan
hefði afskipti af börnum sem
voru úti eftir Iögbundinn útivist-
artíma.
Um helgar eru börnin færð í
Athvarf sem lögreglan ásamt Fé-
lagsmálastofnun og Iþrótta- og
Tómstundaráði reka við Tún-
götu. Þangað verða síðan for-
eldrar eða forráðamenn að sækja
börn sín. í sumum tilvikum eru
börnin flutt á nærliggjandi lög-
reglustöð. Ekki virðast allir for-
ráðamenn virða þær reglur sem
gilda fyrir útivist barna, en
ábendingar lögreglu eru skýrar.
Samhliða auknum hættum sem
börn standa frammi fyrir eykst
gildi þess að virða útivistarreglur.
Það er reynsla Iögreglu að það sé
einkum eftir gildandi útivistar-
tíma sem börn hafa greiðari að-
gang að áfengi og fíkniefnum.
Lögreglan hefur sem dæmi haft
afskipti af sölumönnum fíkni-
efna á stöðum þar sem ung-
menni safnast jafnan saman
seint á kvöldin um helgar. Mikil-
vægt er því að foreldrar virði þær
reglur sem í gildi eru.
Skemmdarverk í miðbænum
Aðfaranótt laugardags var 19 ára
piltur handtekinn fyrir að krota á
veggi Pósthússins í miðbænum.
Hann hafði einnig unnið sam-
bærilegar skemmdir á öðrum
mannvirkjum í miðborginni.
Pilturinn má vænta sekta fyrir
þetta brot sitt.
Bruni í Herkastalanum
Klukkan 21:27 á föstudag var
lögreglu tilkynnt um eld í
Herkastalanum við Kirkjustræti
2. Þar logaði eldur í línskáp á
þriðju hæð og gekk greiðlega að
slökkva hann. Mikinn reyk Iagði
um húsið og þurfti að reykræsta
það.
Lðggæsla vegna útfarar
Nóbelsskáldsins
Lögreglan annaðist gæslu og
umferðarstjórn vegna útfarar
sem gerð var frá Kristskirkju á
laugardag. Nokkrum nærliggj-
andi götum var Iokað um tíma á
laugardag og þannig útbúin bíla-
stæði en mikið fjölmenni var við
athöfnina.
Meun aka of hratt en
ganga hægt uin gleð-
innar dyr, segir í dag-
hók lögreglunnar á
Akureyri.
Ef undan er skilið óveðrið sem
gekk yfir á laugardaginn var liðin
vika tiltölulega tíðindalítil. Að-
stæður buðu ekki upp á
hraðakstur enda einungis einn
kærður fýTÍr of hraðan akstur.
Önnur umferðarlagabrot voru
einnig í Iágmarki og er það vel og
vonandi að það sé ekki bara
vegna slæmra aðstæðna heldur
ætli menn nú að taka sig á.
Mörg umferðaróhöpp stafa af
of hröðum akstri miðað við að-
stæður og þó einungis einn hafi
verið kærður fyrir of hraðan
akstur í vikunni þá óku að líkind-
um talsvert margir hraðar en að-
stæður leyfðu en 21 umferðaró-
happ var skráð sem mörg má ein-
mitt rekja til of hraðs aksturs
miðað við aðstæður.
Á miðvikudagsnóttina var lög-
reglan beðin að svipast um eftir
ungmennum á leið í Mývatns-
sveit sem farið var að lengja eft-
ir. Þrátt fyrir leit varð lögreglan
einskis var og um morguninn
kom í ljós að viðkomandi hafði
komið fram skömmu eftir að leit-
að var til lögreglunnar en láðst
hafði að láta hana vita.
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107 600 Akureyri
sími 462 6900
UPPB0Ð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Hafnarstræti 107,
Akureyri föstudaginn 20. febrúar
1998 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum:
Grenivellir 14, 3. hæð til vinstri, Ak-
ureyri, þingl. eig. Gyða Bárðardóttir,
gerðarEréiðendur Lífeyrissjóður
starfsm. ríkisins og Sþarisjóður Bol-
ungarvíkur
Sandskeið 20, efri hæð og ris, Dal-
vík, þingl. eig. Eyvör Stefánsdóttir,
gerðarbeiðandi Landsbanki ís-
lands, lögfr.deild.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
16. febrúar 1998.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
Versnandi veður
Á föstudagskvöldið fór að versna
veðrið á Öxnadalsheiði og lentu
þá strax allmargir ökumenn í erf-
iðleikum. Félagar úr 4x4 klúbbn-
um á Akureyri og bifreið frá
Hjálparsveit Skáta á Akureyri
voru þá á leið um heiðina og að-
stoðuðu þeir fjölda fólks við að
komast niður af heiðinni og til
byggða en nokkra bíla þurfti að
skilja eftir. Á Iaugardagsmorgun
var svo komið fárviðri og varð þá
í mörgu að snúast. Yfir 300 sím-
töl komu á lögreglustöðina frá
miðnætti til hádegis. Kallaðar
voru út Hjálparsveit skáta og
Flugbjörgunarsveitin og aðstoð-
uðu þær lögregluna meðan
óveðrið gekk yfir. Var mikið að
gera við að aðstoða fólk sem
nauðsynlega þurfti að komast
leiðar sinnar og greiða fyrir um-
ferð þar sem hægt var. Fjöldi
árekstra varð er bifreiðar skullu
saman vegna lítils skyggnis og
þannig varð tjón á 15 bílum á
Hlíðarbraut við afleggjarann að
Hlíðarfjalli en þar var mikill
vindstrengur og skyggni nánast
ekkert. M.a. var ekið aftan á lög-
reglubifreið sem þar stóð með
blikkandi bláum Ijósum og mun-
aði Iitlu að hún kastaðist á Iög-
reglumennina sem þar voru að
störfum. Var Hlíðarbrautinni af
þessum sökum lokað fyrir allri
umferð.
Tjón
Lítilsháttar tjón varð hér og þar
um bæinn, aðallega vegna foks. I
Glerárhverfi fauk mótakrossviðs-
plata inn um glugga á annarri
hæð í fjölbýlishúsi og olli nokkru
tjóni. Nokkur börn höfðu verið
að leik inni í herberginu en voru
nýfarin út er þetta gerðist og má
það teljast lán. Þá varð tjón á
nokkrum bílum vegna foks og
fleiri rúður brotnuðu en hvergi
varð teljandi tjón.
Eftir hádegi á laugardaginn var
sendur björgunarleiðangur upp á
Öxnadalsheiði að sækja fólk sem
þar hafði hafst við í tveimur bíl-
um frá því um nóttina. BíII frá
Flugbjörgunarsveitinni og Hjálp-
arsveit skáta fóru á staðinn. Ekk-
ert amaði að fólkinu og vel gekk
að koma þvf til byggða.
Helgin var með venjulegu
móti. Allmargt fólk var á öldur-
húsunum en flestir höguðu sér
skikkanlega og engin sérstök mál
komu upp.
Athugasemd
Tekið skal fram vegna fréttaskýr-
ingar í miðopnu blaðsins á laug-
ardag að myndin sem fylgdi
greininni var sviðsett. Það láðist
að geta þess í myndatextanum
og er beðist velvirðingar á því.
Þegar við erum að kljást við vanliðan vegna ofáts, aukakilóa og óreglu I
mataræði, erum við ekki að velja það besta sem lifið býður. Og til þess að
þora að breyta þurfum við að trúa að við eigum allt það besta skilið.
Léttara lí
Námskeið fyrir konur sem eru að kljást við vanlíðan vegna ofáts, aukakílóa
og óreglu í mataræði.
Námskeiðið byggir á jóga, hugmyndafræði OA (Overeaters Anonymous) og
persónlegri reynslu af baráttu við ofát.
Leiöbeinandi: Sigurborg Kr. Hannesdóttir, jógakennari.
Námskeiðið verður haldið í Menntasmiðju kvenna helgina 20. - 22. febrúar og
hefst kl. 20 á föstudagskvöldi. Námskeiðinu verður fylgt eftir með
einkatímum helgina 20. - 22. mars.
Verð kr. 8.000,-
Innifalið: Námskeiðsgögn, einkatími, léttir hádegisverðir báða dagana.
Frekari upplýsingar veitir Sigurborg Kr. Hannesdóttir í síma 471 2143,
eftir 15. febrúar (best að hringja eftir kl. 21 á kvöldin).
Skráning hjá Menntasmiðju kvenna í síma 462 7255 virka daga .frá 9 til 12.