Dagur - 17.02.1998, Side 12
12- PRIDJVDAGUR 17.FEBRÚAR 1998
ÍÞRÓTTIR
„Sjálfstraustið
geislar af Völu“
Vala Flosadóttir, stangarstökks-
kona úr IR, gerði sér lítið fyrir og
bætti heimsmetið í stangarstökki
innanhúss um einn sentimetra,
þegar hún stökk yfir 4,44 m á
sænska meistaramótinu, sem
haldið var í Eskilstuna. Vala setti
sem kunnugt er heimsmet um
síðustu helgi þegar hún stökk
4,42 metra, en það met féll á
laugardaginn, þegar Daniela Bar-
tova fór yfir 4,43 metra á tékk-
lenska meistaramótinu.
Tilkynnt var um met Barto\oi í
hátalarakerfinu í höllinni í
Eskilstuna og Vala sem þegar
hafði farið yfir 4,30 metra, ákvað
að reyna að ná metinu aftur. Hún
lét hækka rána í 4,44 m og fór
yfir þá hæð í annarri tilraun.
Stórkostlegt
„Það var stórkostlegt að sjá til
Völu á mótinu. Eftir að tilkynnt
var um heimsmet frá Bartovu, þá
taldi ég ekki miklar líkur á að
Vala mundi bæta það, en annað
kom á daginn og þetta afrek sýn-
ir best keppnishörku hennar,"
sagði Vésteinn Hafsteinsson,
verkefnisstjóri íslenska frjálsí-
þróttalandsliðsins, og bætti því
við að hún ætti að geta gert bet-
ur. „Það kæmi mér ekki á óvart
þó metið mundi falla á næstunni
og reyndar mundi ég segja að það
kæmi á óvart, ef það gerðist ekki.
Framfarir Völu hafa verið ótrú-
legar síðan í janúar. Hún hleypur
miklu hraðar og betur en áður,
tæknin er orðin mjög góð og svo
má ekki gleyma því að hún geisl-
ar af sjálfstrausti og það hjálpar
óneitanlega til,“ sagði Vésteinn.
Þess má geta að Vala mun taka
þátt í tveimur innanhússmótum
til viðbótar í vetur. Það er annars
vegar Evrópumeistaramótið í Val-
encia á Spáni um aðra helgi og
síðan á danska meistaramótinu,
sem fram fer í Malmö í Svíþjóð,
helgina 7.-8. næsta mánaðar.
Þórey Edda Elíasdóttir úr FH
tók einnig þátt í stangarstökkinu
og fór yfir 3,88 metra og átti
góða tilraun við 4,03 metra.
Danska stúlkan Marie Rassmus-
sen fór yfir þá hæð og nældi í silf-
urverðlaunin og það komst því
enginn heimamaður á pall í þess-
ari grein.
Einar Karl Hjartarson keppti í
hástökki á mótinu, en var langt
frá sínu besta. Ilann setti sem
kunnugt er nýtt Islandsmet, 2,16
metra, en náði aðeins að fara yfir
2,03 metra. Einar átti þokkalega
tilraun \dð 2,08 metra, en náði
ekki að komast yfir þá hæð. “Það
er alltaf erfitt að keppa erlendis
og vera einn af mörgum. Einar
var óheppinn að fara ekki yfir
2,08 metra, en hann á vonandi
eftir að læra af þessu móti,“ sagði
Vésteinn.
Vala Flosadóttir, sem hélt upp á tvítugsafmæli sitt í gær, hefur sýnt stórstígar fram-
farir í vetur og setti á iaugardaginn nýtt heimsmet.
Afturelding vaiut
Markalaust
á Highbury
Duranona
óstöðvandi
Róbert Julian
Duranona,
Ieikmaður
Eisenach,
reyndist
gamla þjálfar-
anum sínum,
Alfreð Gísla-
syni, erfiður
ljár í þúfu á
sunnudaginn,
þegar liðin átt-
ust við í Eisenach. Leikmenn
Hameln fundu engin ráð til að
stöðva Róbert Julian, sem skor-
aði tíu mörk í leiknum, úr aðeins
þrettán skottilraunum. Eisenaclt
hefur verið á miklu skriði á und-
anförnum vikum og fallbaráttan
heyrir sögunni til. Það sama er
ekki hægt að segja um Hameln,
sem orðið hefur fyrir þungum
áföllum. Skemmst er að minnast
þess að liðið tapaði þremur stig-
um þegar Rheinhausen dró lið
sitt úr keppninni um siðustu ára-
mót og síðan missti liðið fjögur
stig til viðbótar, vegna þátttöku
Finns Jóhannssonar. Patrekur
Jóhannesson og Róbert Sig-
hvatsson stóðu báðir íyrir sínu
þegar lið þeirra, Tusem Essen og
Bayer Dormagen, áttust við á
heimavelli síðarnefnda liðsins.
Báðir skoruðu sex mörk í leikn-
um en lið Patreks hafði betur,
19:22.
Wuppertal mátti þola sex
marka tap á útivelli fyrir Gross-
valdstadt, þar sem Ólafur Stef-
ánsson skoraði þrjú mörk og
Geir Sveinsson eitt.
Úrslit í öðrum leikjum um
helgina urðu þessi:
TBV Lemgo-GWD Minden 27:20
Nettelstedt-Flensburg 26:23
Wallau Massenh.-Gummersb. 29:27
Kiel-Magdeburg 30:20
Staðan er þessi:
THW Kiel 22 597:510 37
TBV Lemgo . 21 552:482 32
TuS Nettelstedt 20 551:526 24
SC Magdeburg 20 509:502 24
Niederw^rzbach 20 506:485 23
SG Flensburg 20 519:510 22
Wal. Massenheim 21 523:508 22
Groþvvallstadt 20 507:501 21
GWD Minden 21 523:511 21
ThSV Eisenach 21 506:550 19
HSG Wuppertal 21 522:523 18
TUSEM Essen 20 455:494 16
VfL Gummersbach 21 500:543 12
Bayer Dormagen 20 452:513 9
SG Hameln 20 469:533 8
UMFA með langbesta
liðið í deildinni.
Afturelding lagði KA í toppslag
I. deildarinnar í handknattleik á
Akureyri, 22:27, á sunnudags-
kvöld. Lið UMFA er án efa það
sterkasta á Iandinu í dag og erfitt
að finna veikan blett á því. Berg-
sveinn Bergsveinsson var frábær
í markinu og varði alls 20 skot.
Páll Þórólfsson, sem er einn
besti hornamaður Iandsins um
þessar mundir, var markahæstur
í liði gestanna með 8 mörk.
„Þetta var harður leikur en við
höfðum það samt sem áður af og
sigurinn er sætur,“ sagði Berg-
sveinn að Ieik loknum.
KA-liðið náði ekki að sýna sitt
rétta andlit í þessum leik og voru
þeir klaufar á ýmsum sviðum,
klikkuðu m.a. á þremur Htaköst-
um og í þrígang náðu þeir ekki
að nýta sér það að vera tveimur
leikmönnum fleiri. Leó Örn
meiddist snemma í fyrri hálfleik
og við það veiktist vörn heima-
manna mikið. KA á þó hrós skil-
ið fyrir að berjast allan tímann
en því miður var það ekki nóg í
þetta sinn. Sigtryggur stóð sig
mjög vel í markinu og Sverrir
Björnsson átti einnig góðan dag.
Það verður einnig að geta þess
að fyrirliði KA, Jóhann Gunnar,
er meiddur og Iék ekki með og
munar um minna.
Met hjá Fram
Fram skaust í annað sætið með
góðum sigri á Haukum. Þar með
hafa Framarar unnið 9 heima-
leiki í röð og er það met. Sigurð-
ur Sveinsson, þjálfari og leik-
maður HK, heldur áfram að spila
glimrandi vel og á sunnudag
leiddi hann HK til sigurs gegn
ÍR, 27:22.
Stjarnan lagði Víking, 25:24, í
Garðabæ. Þar með færðust Vík-
ingar skrefi nær 2. deildinni en
Stjarnan er í harðri baráttu við
HK um sæti í úrslitakeppninni.
Valdimar Grímsson skoraði 10
mörk fyrir heimamenn en Rögn-
valdur Johnsen skoraði 8 íyrir
Víking.
Lið IBV kann vel við sig í
Hafnarfirði og á sunnudag unnu
þeir FH í Kaplakrika, 24:26. Sig-
mar Þröstur Óskarsson var lang-
besti Ieikmaður vallarins, varði
19 skot og skoraði 1 mark.
Að Iokum tapaði Breiðablik
fyrir Val, 32:20, og kom það
fáum á óvart. -JJ
Staðan í deildinni eftir leiki
sunnudagsins:
UMFA 16 12 0 4 417:374 24
Fram 16 11 0 5 418:385 22
KA 15 9 3 3 423:363 21
FH 17 9 3 5 451:416 21
Valur 16 9 3 4 392:364 21
Ilaukar 17 9 2 6 467:445 20
ÍBV 17 8 2 7 483:457 18
Stjarnan 16 8 0 8 414:409 16
HK 17 7 2 8 430:421 16
ÍR 17 5 2 10 413:439 12
Víkingur 16 3 1 12 381:428 7
Breiðablik 18 0 0 18 396:584 0
Það eru nokkuð marg-
ir leikir sem þarf að
endurtaka eftir bikar-
leiki helgarinnar.
Það voru nokkrir hörkuleikir í 5.
umferð Ensku bikarkeppninnar.
Lið C. Palace mætti á Highbury
og bjuggust flestir við auðveldum
sigri Arsenal. Hermann Hreið-
arsson tók hins vegar Dennis
Bergkamp úr umferð og sjón-
varpsstöðin SKY valdi Hermann
mann leiksins. Niðurstaðan varð
markalaust jafntefli og þurfa lið-
in því að leika aftur á heimavelli
Palace.
Barnsley og Manchester
United verða að endurtaka sinn
leik en nú á heimavelli Barnsley.
Gestirnir komust yfir í Ieiknum á
sunnudag eftir hreint út sagt
fáránleg mistök Peter
Scmeichel, markvarðar United.
Fleimamenn voru hins vegar
fljótir að jafna og þar við sat.
Barnsley átti hins vegar að fá
vítaspyrnu þegar fimm mínútur
voru til leiksloka þegar Gary
Neville braut klaufalega af sér
inn í vítateig.
Lið West Ham og Blackburn
verða einnig að taka á því aftur
en liðin gerðu 2:2 jafntefli á
Upton Park í Lundúnum. Leik-
menn Blackburn voru einum
manni færri frá 33. mínútu er
Kevin Gallacher fékk að sjá
reisupassann. West Ham leiddi
2:1 í hálfleik en Chris Sutton,
sem er ósáttur við að vera ekki í
enska landsliðinu jafnaði metin
og lið mætast því aftur á heima-
velli Blackburn. „Við komum
ákveðnir til leiks í seinni hálfleik
og ég er stolltur af þeim 10 leik-
mönnum sem kláruðu leikinn,'1
sagði Roy Hodgson, stjóri Black-
burn, eftir leikinn.
Gordon Strachan og strákarnir
hans í Coventry brutu blað í
sögu félagsins er þeir unnu sinn
fyrsta sigur á Villa Park og sendu
Stan Collymore og félaga út úr
bikarkeppninni. Þetta var 27.
leikurinn sem liðin spila á Villa
Park og því var kominn tími á
sigur Coventry. Collymore hins
vegar hel’ur byrjað inn á í 30
Ieikjum hjá Villa og skorað 5
mörk. Klúbburinn borgaði 7
milljónir sterlingsjrunda fyrir
þennan leikmann og því eru
mörkin hans Collymore ansi dýr!
Wimbledon verður að spila
aftur við 1. deildar lið Wolves og
litlu munaði að Leeds og
Birmingham þyrftu að mætast
aftur. Jimmy Hasselbaink skor-
aði hins vegar sigurmark Leeds á
síðustu mínútunni og Leeds er
því komið í 8-liða úrslit. Shef-
field United er einnig komið
áfram í keppninni eftir sigur á
Reading.
Það var dregið í átta liða úrslit
í keppninni og eftirfarandi lið
mætast:
Arsenal/C. Palace-
WestHam/Blackburn
Coventry - Sheff.United
Leeds - Wimbledon/Wolves
Newcastle - Man.Utd/Barnsley
Owen með þrennu
Það voru þrír Ieikir f ensku úr-
valsdeildinni á laugardaginn og
þar bar hæst þrenna Michael
Owen í 3:3 jafntefli Liverpool
gegn Sheffield Wednesday. Þetta
er fyrsta þrenna Owen á hans
stutta ferli en flestir eru nú viss-
ir um það að ekki er þetta sú síð-
asta. „Hann skoraði 3 en hefði
hæglega getað bætt tveimur við,“
sagði Roy Evans eftir leikinn.
I hinum Iéikjunum gerði
Tottenham 1:1 jafntefli gegn
Leicester á heimavelli en Derby
vann góðan útisigur, 1:2, á
Everton. - JJ
Róbert Jul/an
Duranona.