Dagur - 21.02.1998, Qupperneq 4
20 - LAUGARDAGUR 21.FEBRÚAR 1998
MENNINGARLÍFIÐ 1 LANDINU
Tkypr
Elias Snæland
Jonsson
bókaBil
HILLAN
ritstjóri
Morðsaga
nóbelsskalds
Endalok aðskilnaðarstefnunnar í
Suður-Afríku hefur haft margvís-
leg áhrif á daglegt líf í landinu,
þótt enn sé mikil og djúp gjá á
milli hvítra manna og svartra í
efnahagslegu tilliti.
Sú breyting sem hvíti minni-
hlutinn hefur tekið einna mest
eftir er gífurleg aukning á glæp-
um á götunni. Manndrápum
fjölgaði svo mjög að tíðni slíkra
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðið kl. 20.00
GRANDAVEGUR7
Vigdís Grímsdóttir
Leikgerð:
Kjartan Ragnarsson og
Sigríður M. Guðmundsdóttir.
í kvöld Id. uppselt
fid. 26/2 örfá sæti laus -
Id. 7/3.
MEIRI GAURAGANGUR
Ólafur Haukur Símonarson
á morgun sud. örfá sæti laus -
mvd. 25/2 laus sæti - sud.
1/3 - mvd. 4/3 - sud. 8/3
HAMLET
William Shakespeare
föd. 27/2 - fid. 5/3.
FIÐLARINN Á ÞAKINU
Boch/Stein/Harnic
Id. 28/2 nokkur sæti laus -
föd. 6/3
YNDISFRÍÐ OG
ÓFRESKJAN
Laurence Boswell
sud.22/2 kl. 14.00
sud. 1/3 kl. 14.00 - sud. 8/3
kl. 14.00
LITLA SVIÐIÐ
kl. 20.30
KAFFI
Bjarni Jónsson
í kvöld Id. - fid. 26/2 - sud.
1/3 - Id. 7/3
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ
kl. 20.00
POPPKORN
Ben Elton
á morgun sud. - mvd. 25/2 -
föd. 27/2 - fid. 5/3
Sýnt I LOFTKASTALANUM
kl. 21.00
LISTAVERKIÐ
í kvöld Id. - fid. 26/2.
ATH. síðustu sýningar að
sinni - hefjast aftur í apríl.
LISTAKLÚBBUR
LEIKHÚSKJALLARANS
mánud. 23/2 kl. 20.30.
Hin nýstofnaða hljómsveit
HEIMILISTÓNAR sem er skipuð að
leikkonunum Elvu Ósk Ólafsdóttur,
Halldóru Björnsdóttur, Ólafíu Hrönn
Jónsdóttur og Vigdísi Gunnarsdóttur
stendur fyrir Bolludagsskemmtun með
leik, brellum og glensi.
Kynnir er Ásdís Þórhallsdóttir
Miðasalan er opin mánud.-
þriðjud. 13-18, miðvikud.-sun-
nud. 13-20.
Símapantanir frá
kl. 10 virka daga.
ofbeldisverka varð fljótlega tífalt
á við það sem gerist og gengur í
óskalandi byssunnar, Bandaríkj-
unum.
Óttinn við líkamlegt ofbeldi
hafði verið dagleg staðreynd í lífi
svarta meirihlutans um áratuga
skeið. Nú varð sá veruleiki allt í
einu líka hluti hvunndags hinna
hvítu.
Einkasonuriim morðingi
Því er þetta rakið hér að nýjasta
skáldsaga suðurafríska
nóbelskáldsins Nadine Gordi-
mers Ijallar einmitt um slíkt of-
beldi og áhrif þess á hvíta fjöl-
skyldu. „House Gun“ heitir sag-
an og segir frá miðaldra hjónum,
Harald og Claudia Lindgaard,
sem fá þær fréttir eitt kvöldið að
27 ára einkasonur þeirra, Dunc-
an, hafi verið handtekinn íyrir
morð sem hann hafi játað að
hafa framið. Hann hafði myrt
unga ástkonu sína, Natalie, eftir
að hafa komið að henni í ástar-
leikjum við sameiginlegan vin
þeirra, Carl.
Þessi tíðindi hafa gífurleg áhrif
á Lindgaard-hjónin sem fram til
þessa hafa verið afar nátengd í
hjónabandi sínu. Morðið fær þau
til að endurmeta allt líf sitt í leit
á skýringum á því hvernig það gat
gerst að sonur þeirra varð morð-
ingi, og sundrar nánu sambandi
þeirra að minnsta kosti um hríð.
Síðan snýst sagan um tilraunir
þeirra til að komast að þvf hvað
raunverulega gerðist. Duncan
fær sér til varnar ungan, ríkan,
svartan lögfræðing sem kafar
miskunnarlaust ofan í einkalíf
þeirra allra og dregur ýmislegt
óvænt upp á yfirborðið, þar á
meðal óvenjulegt þríhyrnings-
samband Duncans, Natalie og
Carls. Baráttan milli lífs og
dauða tengist einnig með sér-
stæðum hætti í Natalie sem
Duncan bjargaði frá drukknun. A
Hssan hátt má segja að hún hafi
í framhaldinu valið hann til að
bana sér.
Seinni hluti sögunnar er lýsing
á réttarhöldunum í morðmáli
þessu, í bland við ítarlega um-
ræðu um hvaða áhrif almenn
byssueign landsmanna hefur á
stig ofbeldis í landinu, og um
réttmæti dauðarefsinga fyrir al-
varleg afbrot.
Lífið cftir apartheid
Viðhorf gagnrýnenda til þessarar
nýju skáldsögu eru mjög ólík.
Sumir telja söguna sterka Iýsingu
á ástandinu í Suður-Afríku eftir
að svarti meirihlutinn fékk þar
pólitísk völd, og sundurgreining á
þeim alvarlegu vandamálum sem
enn eru óleyst. Aðrir hafa afgreitt
söguna sem frásögn af ástríðu-
morði.
Sagan hefur f leiðinni vakið
umræðu um stöðu Gordimers
eftir fall aðskilnaðarstefnunnar.
Meginviðfangsefni hennar á
hálfrar aldar löngum skáldferli
(hún hefur sent frá sér ellefu
skáldsögur og níu smásagnasöfn)
var einmitt sambúð kynþáttanna
undir apartheid-kerfinu sem réði
smáu sem stóru í suðurafrísku
þjóðlífi. Það var fyrir þau áhrifa-
mildu ritverk sem hún fékk bók-
menntaverðlaun Nóbels árið
1991.
Þeir sem fagna „House Gun“
telja að hún nái áfram að vekja
lesendur til umhugsunar um
suðurafrískan veruleika samtím-
ans; að nýja sagan sé ekki aðeins
vel sögð saga heldur innlegg í
pólitíska umræðu dagsins þar
sem magnþrungið ofbeldi er of-
arlega í hugum ansi margra.
Mótvægi við síbyljuna
Listasafnið áAkureyri erað
hefia sittfimmta starfsár.
Safnið hefurverið lyftistöng í
menningarlífi bæjarinsfrá
stofnun þess.
A þessu ári verða fimm ár liðin frá því að
Listasafnið á Akureyri var opnað. Haraldur
Ingi Haraldsson forstöðumaður safnsins frá
upphafi segir að starfsárið verði sannkallað
samvinnuár þar sem Listasafnið njóti sam-
starfs við fjölmargar stofnanir sem tengst
hafa safninu á stuttum starfstíma þess.
Um þessar mundir stendur yfir sýning á
vatnslitamyndum Ásgríms Jónssonar og er sú
sýning í samvinnu við Listasafn Islands. I
apríl verður sýning á verkum sænska Iista-
mannsins Roj Friberg og er sú sýning sam-
vinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri,
Hjörring Kunstmuseum í Danmörku, Lista-
skálans í Færeyjum og Norræna hússins.
Haraldur segir að safnið njóti einnig sam-
starfs við söfn á Orkneyjum, Austurríki og
Danmörku í öðrum sýningum ársins.
ÞróttmiMð starf
Haraldur segir að þetta fimm ára tímabil sem
Listasafnið hefur starfað hafa verið mjög fjöl-
breytt og segist vona að safnið hafi breytt
menningarásýnd bæjarins. „Safnið hefur
sinnt íslenskri samtímalist og list frá fyrri-
hluta aldarinnar, auk þess sem gestir safnsins
hafa fengið að kynnast áhugaverðri sneið af
heimslistinni.“
Haraldur segir að líti hann yfir farinn veg
þá telji hann að það hafi tekist að standa fyr-
ir þróttmiklu sýningarstarfi. „Það hefur verið
mjög ánægjulegt hve safnið hefur verið vel
sótt. Við notum þessi tímamót til að skerpa á
fræðslustarfinu. Við höfum fengið hálfa
stöðu safnakennara og erum að efla allt
fræðslustarf í kringum safnið.
Það má segja að við höfum reynt að bæta
einhverju \dð í starfinu á hverju ári, þó mað-
ur hefði gjarnan viljað sjá ýmislegt gerast
hraðar."
Verðiun að vera stórhuga
Haraldur segir að áhersla á safnakennslu sé
alltaf að verða meiri í starfsemi listasafna.
„Þróunin hjá listasöfnum heimsins er sú að
þau eru að verða nokkurs konar menning-
arafþreyingarhallir fyrir almenning. Að njóta
myndlistar er afar hentugt í þeim tilgangi.
Uppeldismálin eru gríðarlega mikilvæg, því
með safnaleiðsögn fyrir börn og unglinga
erum við að ala upp njótendur myndlistar í
framtíðinni."
Haraldur segir að Listasafnið hyggist
einnig vera með fræðslu á safninu sem opin
verði öllum. „Við höfum einnig í hyggju að
afla okkur fræðsluefnis á myndböndum sem
almenningur mun hafa frjálsan aðgang að.
Safn eins og Listasafnið hefur miklu hlut-
verld að gegna í samfélaginu. Eg held að
Haraldur Ingi Haraldsson, forstöðumaður Listasafnsins
á Akureyri.
svona stofnun geti verið jákvætt mótvægi við
þá síbyljumenningu sem dynur á okkur.
Myndlist hefur verið partur af manninum frá
örófi alda og það er að sjálfsögðu menningar-
auki og ímyndarauki fyrir bæ eins og Akureyri
að hafa slíka starfsemi. Svona starfsemi styð-
ur við annað í samfélaginu, því menn þurfa
að vera stórhuga til að ná árangri," sagði Har-
aldur að Iokum. HH