Dagur - 21.03.1998, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 21. MARS 1998 -IU
SÖGUR OG SAGNIR
Síðasta þaetti lauk ég með því
að segja frá atburðum ársins
1954, sem var mjög viðburða-
ríkt og Skagaliðið fagnaði þá
mörgum góðum sigrum.
Menn voru því bjartsýnir í
byrjun keppnistímabilsins vor-
ið 1955 og skulum við nú riQa
upp það helsta á því ári.
Keppnistímabilið hófst með
bæjakeppni við Reykjavík um
miðjan maí, en slík keppni
komst fyrst á sumarið 1952, en
þeim leik lauk með sigri Reykja-
víkur 2-1. Árið 1953 varð jafn-
tefli 2-2 og árið 1954 unnu
Reykvíkingar 4-2. Skagamenn
mættu sterkir til leiks gegn
Reykvíkingum í Ijórða leiknum í
bæjakeppninni og ætluðu sér
greinilega sigur því strax á 1.
mín. skoraði Ríkarður með
hörkuskoti. Litlu síðar skoraði
Donni og staðan var 2-0 í hálf-
leik. Ríkarður var aftur á ferð-
inni og skoraði gott mark í byij-
un síðari hálfleiks, en Reykvík-
ingar Iöguðu stöðuna með því að
skora. Það var svo Þórður Þórð-
arson sem innsiglaði 4-1 sigur
Skagamanna með marki rétt fyr-
ir leikslok.
Áður en ég vík að öðrum við-
burðum sumarins og af því að
bæjakeppnin við Reykjavík er til
umræðu hér að ofan, þá luku
Skagamenn keppnistímabilinu
með öðrum leik við úrvalslið
Reykjavíkur á Melavellinum í Iok
september. Leikurinn var ekki
vel leikinn, en honum lauk með
sigri Skagamanna 3-2 með
mörkum þeirra Ríkarðs, Þórðar
Þ. og Þórðar Jónssonar. Þannig
höfðu Skagamenn unnið Reyk-
vfkinga tvisvar á sama árinu.
Einnig voru leiknir fjórir Ieikir
við Akureyringa, sem þá voru í 2.
deild og höfðu Skagamenn sigur
í þeim öllum, 2-0, 1-0, 3-1 og 3-
2.
íslandsbikarinn í Vesturbæ-
inn
Eftir góðan sigur yfir Reykvík-
ingum í bæjakeppninni voru
menn bjartsýnir á að Islandsbik-
arinn yrði á áfram á Akranesi,
því Skagamenn byrjuðu Islands-
mótið af miklum krafti og unnu
stórsigur á Þrótturum með 8
mörkum gegn 1. Það var Þórður
Þórðarson sem skoraði fjögur
mörk og þeir bræður Ríkarður og
Þórður tvö mörk hvor.
Næsti leikur var gegn KR og
var sá leikur talinn úrslitaleikur
mótsins. KR-ingar höfðu betur í
þeirri viðureign og unnu örugg-
íega 4-1. Skagamenn byrjuðu
betur og áttu góð tækifæri til að
skora, en KR-ingar vörðust vel
og beittu skyndisóknum sem
þeir nýttu vel og þegar flautað
var til hálfleiks var staðan 4-0
fyrir KR. - Þrátt fyrir mólætið
hann. Hann fékk sendingu fyrir
markið og tók knöttinn niður
með hnénu og sendi hann síðan
með þrumuskoti í markið. Danir
sóttu fast í síðari hálfleik, enda
höfðu þeir vindinn í bakið og
tókst þeim að minnka muninn,
er þeir skoruðu um miðjan hálf-
leikinn. - Eftir leikinn mátti lesa
í blöðum, að samstilltara og
ákveðnara lið en Skagaliðið í
þessum leik, hefði vart sést í
annan tíma.
Þá má geta þess að Reykjavík-
urúrval sigraði einnig Danina 5-
2 eftir að hafa verið 2-0 undir í
hálfleik.
Sænska liðið Hácken kom í
heimsókn um sumarið og lék
nokkra leiki. Þeir unnu Val, KR
og Reykjavíkurúrval. Leikur
Skagamanna, sem var síðasti
leikurinn í heimsókninni, var
mjög skemmtilegur og bauð
uppá það sem menn vilja sjá (
knattspyrnuleik, en það eru
mörk. Hácken komst í 2-0 eftir
20. mín. leik, en þá fóru Skaga-
menn í gang og skoruðu þrjú
mörk á 10 mín. kafla. Þau mörk
skoruðu nafnarnir Þórður Jóns-
son og Þórður Þórðarson (2).
Svíarnir jöfnuðu skömmu sfðar
og var staðan 3-3 í leikhléi. Rík-
arður skoraði tvö mörk í síðari
hálfleik og Þórður Þórðarson
innsiglaði 6-3 sigur Skagamanna
með sínu 3ja marki.
Sigur á USA
Bandaríkjamenn léku landsleik
við Island, sem íslendingar
unnu, síðla sumars. Sem fyrr,
léku þeir aukaleiki og þar á með-
al gegn Skagamönnum. Skaga-
menn unnu leikinn 3-2. Þrátt
fyrir mikla yfírburði og aragrúa
marktækifæra, skorðu Skaga-
menn bara eitt mark og var
Þórður Þórðarson þar að verki.
Þórður Jónsson kom Skaga-
mönnum í 2-0 í síðari hálfleik,
en Bandaríkjamenn löguðu stöð-
una í 2-1. Ríkarður skoraði 3ja
markið með hörkuskoti en gest-
irnir skorðu rétt fyrir leikslok.
I næsta þætti mun ég fjalla
áfram um atburði ársins 1955 og
þá sérstaklega um þátttöku
Skagamanna í landsleikjum
sumarsins.
Sveinn Benediktsson oq Ríkardur breqða á leik.
-— ---:---- ■ ■ * ‘ g ■’ ' ■ I ' -‘1 ■ r. i I I ) I 1., . - . -
Danir lagðir að velli
Danir léku hér landsleik um mitt
sumar, sem þeir unnu örugglega.
Leikurinn var um margt söguleg-
ur og mun ég víkja að því í næsta
.,Þ,a?tti, Sfyigam^ryn mæj,(p , dap-
Framlína Skagamanna: Aftast eru Halldór Sigurbjörnsson (Donni) og Þórður Jóns-
son. í miðjunni eru Jón Leósson og Þórður Þórðarson, en fremstur er Rikarður
Jónsson.
Ríkarður að skora með skalla gegn sænska liðinu Hacken á Melavellinum 1955.
héldu Skagamenn áfram að
sækja í síðari hálfleik, en þeim
tókst ekki að nýta góð færi, fyrr
en undir leikslok, er Ríkarður
skoraði úr vítaspyrnu.
Næsti Ieikur Skagamanna var
gegn Víkingum, sem áttu ekkert
svar við stórleik Islandsmeistar-
anna sem skoruðu 6 mörk gegn
1. Það voru Þórður Þórðarson og
Ríkarður sem skoruðu tvö hvor
og Þórður Jónsson og Jón Leós-
son eitt hvor. Eg hef fyrir satt að
þetta sé eina markið, sem Jón
skoraði í Islandsmóti.
Þá kom röðin að Valsmönnum,
sem einnig máttu þola tap, þrátt
fyrir að vera nýlega búnir að gera
1-1 jafntefli við KR. Leikurinn
var skemmtilegur og áttu Vals-
menn góða spretti, en það dugði
ekki því Skagamenn unnu 5-2
með tveimur mörkum Þórðar
Jónssonar og mörkum þeirra
Donna, Þórðar Þ. og Ríkarðs.
Síðasti Ieikurinn var gegn
Fram og lauk honum með 3-0
sigri Skagamanna þar sem Þórð-
ur Jónsson skoraði tvö mörk og
Ríkarður eitt mark.
Þegar Skagamenn höfðu lokið
leikjum sínum átti KR eftir tvo
leiki, gegn Fram og Þrótti og
þurfti að vinna þá báða til að
tryggja sér íslandsmeistaratitil-
inn. Það gekk eftir og voru því
KR-ingar íslandsmeistarar. Það
var mikil gleði í Vesturbænum
þegar Gunnar Guðmannsson
(Nunni) fyrirliði þeirra tók við
bikarnum úr hendi Björgvins
Schram formanns KSI. Þróttarar
féllu í 2. deild án þess að hljóta
stig, en Akureyringar sem ekki
höfðu verið með í Islandsmótinu
síðan 1946 tóku sæti þeirra.
Það er athyglisvert að þeir Rík-
arður, Þórður Þ. og Þórður Jóns-
son skoruðu 7 mörk hver í mót-
inu, en Donni og Jón Leósson
eitt hvor.
Leikir gegn erlendum liðum
Á þessum árum var alltaf nokk-
uð um heimsóknir erlendra liða
til Iandsins, auk þess sem lands-
Iið er hingað komu léku oftar en
ekki einn eða fleiri aukaleiki
gegn félags- og úrvalsliðum.
Skagamenn Iéku undantekn-
ingalaust gegn þessum liðum,
enda var aðsókn að leikjum
þeirra mun meiri en annarra
innlendra liða og ekki óalgengt
að 4-8 þús. manns mættu á
gamla Melaveliinum á leiki þeir-
ra. Fyrsta heimsóknin var úr-
valslið frá Neðra-Saxlandi í byij-
un júní sem lék hér fjóra leiki.
Þjóðverjarnir unnu þrjá Ieiki, en
gerðu jafntefli við KR 1-1. Síð-
asti leikur heimsóknarinnar var
gegn Skagamönnum, sem menn
vonuðu að stæðu í hinum er-
lendu gestum. Skagamenn byrj-
uðu vel með marki Jóns Leós-
sonar í fyrri hálfleik, en Þjóð-
verjarnir svöruðu með þremur
mörkum og unnu 3-1.
ska landsliðinu og fengu sér þijá
menn til að styrkja liðið, en það
voru þeir Olafur Eiríksson mark-
vörður úr Víkingi, Einar Hall-
dórsson miðvörður úr Val og
Hreiðar Ársælsson bakvörður úr
KR.
Það er skemmst frá því að
segja að Skagamenn lögðu Dan-
ina að velli í mjög skemmtilegum
leik. Þórður Jónsson skoraði
fyrsta mark leiksins, en bróðir
hans Ríkarður bætti við öðru á
43. mín. Mark Ríkarðs var mjög
skemmtilegt og dæmigert fyrir
Sigiir á
Reykvikingiini
GuUöldin á Akranesi 13