Dagur - 01.04.1998, Blaðsíða 3

Dagur - 01.04.1998, Blaðsíða 3
 MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1998 - 3 FRÉTTIR Meiri hagvðxtur en í ödnun íðnríkjunt Steingrímur Hermannsson sedlabankastjóri býður Davíð Oddsson forsætisráðherra veikominn á ársfund bankans í gær. - mynd: eól. Undirröt viðskipta- hallans ekki síður lít- ill vöxtur útflutnings en ör vöxtur eftir- spumar, segir seðla- bankastjóri sem ótt- ast um stöðugleikann í öflum hagvextinum. „Hagvöxtur á Islandi 1996 og 1997 varð mun meiri en í öðrum iðnríkjum," sagði Birgir Isleifur Gunnarsson seðlabankastjóri á ársfundi bankans. Hagvöxtur sé áætlaður 5% á síðasta ári í kjölfar 5,5% vaxtar 1996. Þetta er um tvöfalt meira en í Evrópusam- bandinu þar sem hagvöxtur varð 2,6%, í Bandaríkjunum varð hann 3,8% og aðeins 1% í Japan. Þennan öra hagvöxt segir seðla- bankastjóri óhjákvæmilega vekja þá spurningu hvort hann geti til lengdar samrýmst þeim stöðug- leika sem náðst hefur í efnahags- málum þjóðarinnar. Útflutningur vex of Iítið Birgir sagði viðskiptahallann Iið- lega 8 milljarða á síðasta ári. Vöruinnflutningur hafi aukist um tæp 6% að magni, aðallega vegna neysluvöru. Magn útflutn- ings hafi aðeins aukist um 2%. „I raun er vöxtur útflutnings of hægur, t.d. miðað við vöxt heimsverslunar. Því má líta svo á að undirrót viðskiptahallans á Is- Iandi sé ekki síður lítill vöxtur út- flutnings en ör vöxtur eftirspurn- ar. Minnkandi aðhald í ríkisfjárináluiii í ár Seðlabankastjóri fagnaði um- skiptum í ríldsrekstri 1997, en sagði það hins vegar áhyggjuefni að afkoma ríkissjóðs samkvæmt Qárlögum 1998 haldi varla í við hagsveifluna. Minna aðhalds gæti nú í ríkisfjármálum en í fyrra. Mjög sé mikilvægt að ætla fyrir góðum afgangi við fjárlaga- gerð fyrir 1999. „Þetta á auðvit- að einnig við um framkvæmd Ijárlaga ársins 1998, og verði tekjur meiri en Ijárlög gera ráð fyrir verða þær að skila sér með raunverulegum afkomubata, en ekki í auknum gjöldum,“ sagði Birgir Isleifur. Sameina ríldsbankana eða... Seðlabankastjóri segir nú flesta sammála um nauðsyn þess að draga úr kostnaði og auka hag- ræðingu í bankakerfinu. Nýta þurfi það tækifæri sem nú gefist með breytingu ríkisbankanna í hlutafélög og væntanlegri sölu hlutafjár. Sú spurning hljóti að vakna hvort ríkisvaldið, sem eig- andi þriggja öflugra stofnana, eigi að fara fyrir í sameiningu þeirra, eða hvort nauðsynlegt sé að fá þar til forystu öfluga stofn- anafjárfesta. Og þar kæmu er- lendir fjárfestar með þekkingu í bankarekstri vissulega til greina. „Síðarnefnda Ieiðin kann hins vegar að hafa það í för með sé að ríkissjóður geti síður náð fullu andvirði eigna sinna við væntan- lega sölu,“ sagði Birgir Isleifur. - HEI Valgerður Sverrisdóttir, þingflokksfor- maður Framsóknar, olli nokkru upp- námi á Alþingi í gær. Uppnám á Alþingi Valgerður Sverrisdóttir, formað- ur þingflokks Framsóknar, sak- aði Ossur Skarphéðinsson, for- mann heilbrigðisnefndar, á Al- þingi í gær um að starfa ekki af heilindum í nefndinni og að of- sækja heilbrigðisráðherra. Hún sagði að endurskoða yrði næsta haust samkomulag um for- mennsku stjórnarandstæðinga í þingnefndum vegna þessa. Ossur sagði engar athuga- semdir hafa verið gerðar við störf sín sem formaður. „Ef þingmenn Framsóknarflokksins halda að formaður heilbrigðis- og trygg- inganefndar sé slík lufsa að það sé hægt að kaupa hann með veg- tyllum, þá ættu þeir að skoða það mál betur,“ sagði Ossur. Nokkurt uppnám varð í þing- inu vegna orða Valgerðar og hlé gert á fundi. Eftir langan fund forseta Alþingis og formanna þingflokka náðist samkomulag um að forseti lýsti því yfir að ekk- ert væri athugavert við störf Oss- urar sem formanns heilbrigðis- nefndar. — S.DÓR íslensku heilsufari safnað á einn stað íslensk erfðagreining vifl koma upp og fá einkaleyfl á gagna- grunni með ópersónu- tengdum heilsufars- upplýsingum uin alla íslendinga. Heilbrigðisráðherra kynnti í gær frumvarp um gagnagrunn á heil- brigðissviði sem lagt verður fram til kynningar á Alþingi á næstu dögum. Það gerir m.a. ráð fyrir að ráðherra geti samið við einka- aðila um gerð og starfrækslu gagnagrunna. Jafnframt er áætl- að að ráðherra verði heimilað að veita tilteknum starfsleyfishafa einkaleyfi til aðgangs að heilsu- farsupplýsingum frá tilgreindum aðilum til flutnings í gagna- grunn. íslensk erfðagreining hef- ur þegar lýst áhuga á gerð gagna- grunns sem hafi að geyma ópers- ónutengdar heilsufarsupplýsing- ar um alla íslendinga. Að mati fyiirtækisins mundi slíkur grunnur, með tengingu við ætt- fræðigrunn skapa því einstæða aðstöðu til erfðarannsókna. Mundi skapa fjulda starfa Hljóti frumvarpið afgreiðslu á Alþingi segir heilbrigðisráðherra að við taki nánari útfærsla m.a. um skilyrði fyrir ieyfisveitingum, samninga og fleira áður en starf- Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra. ræksla gagnagrunnsins geti haf- ist. Ljóst sé að vinnsla sjúkra- skráa í samræmt, tölvutækt form kosti mikla vinnu og jafnframt ljóst að með því mundi skapast höldi starfa fyrir visindamenn og sérhæft starfsfólk á heilbrigðis- sviði. íslenskt heilbrigði á erlendan markað Þess er vænst að þær upplýsing- ar sem til verða í slíkum gagna- grunni megi nýta til þess að finna ný lyf og þróa nýjar eða bættar aðferðir við forspá, grein- ingu og meðferð sjúkdóma. Is- lensk erfðagreining hyggur sömuleiðis á markaðssetningu gagnagrunnsins erlendis með þeim hætti að Iyfjafyrirtæki og sjúkrastofnanir kaupi tiltekna úrvinnslu úr honum. Gifurlegur kostnaður Aðgang að gögnum úr sjúkra- skrám segir heilbrigðisráðherra mjög takmarkaðan að óbreyttum lögum. Verði lögum breytt, þannig að Islensk erfðagreining fengi aðgang að heilsufarsupp- lýsingum til færslu í gagnagrunn þyrfti fyrirtækið að leggja í gífur- legan kostnað við að láta vinna alíar sjúkraskrár í tölvutækt form. Til að tryggja að aðrir aðil- ar geti ekki nýtt sér þessa fjár- festingu í samkeppni við fyrir- tækið telja forsvarsmenn ís- lenskrar erfðagreiningar nauð- synlegt að fá einkaleyfi. Einkaleyfi til söfnunar í gagnagrunn í 12 ár Frumvarpið gerir ráð fyrir að ráðherra veiti einungis einum starfsleyfishafa aðgang að heilsufarsupplýsingum til flutn- ings í gagnagrunn í allt að 12 ár. Það á þó á engan hátt að tak- marka aðgang að sjúkraskrám vegna vísindarannsókna sam- kvæmt lögum um réttindi sjúkl- inga. Einnig er gert ráð fyrir ótakmörkuðum aðgangi ís- Ienskra heilbrigðisyfirvalda að upplýsingum vegna heilbrigðis- skýrslna, tölfræðilegra úttekta, áætlana eða ákvarðanatöku um heilbrigðismál. — HEI KEA á leið suðux Kaupfélag Eyfirðinga hefur tekið á leigu verslunarhús- næði Kaupgarðs í Mjódd í Reykjavík. Þar með er KEA að hefja verslunarrekstur í Reykjavík og mun reka þar lágvörumarkað undir nafninu KEA-Nettó. Sú stefna hefur verið mótuð hjá KEA að binda sig ekki við fé- lagssvæði félagsins í rekstri sínum og er þessi ákvörð- un í samræmi við það. „Kaupfélag Eyfirðinga vill ineð þessu ná fótfestu á Reykjavíkurmarkaði með verslunarrekstri sínum. Við erum ekki að fara inn á þennan markað til að koma af stað einhvers konar „stríði“. Þarna eru sóknarfærin og markaðurinn langstærstur og fyrirsjáanlegt að sá markaður mun stækka Iangmest í framtíðinni,11 segir Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri. — GG Inuflutniugur 35% meiri I kjölfar 50% aukningar í janúar fylgdi 12% aukinn innflutningur f febr- úar, eða samtals um 35% meiri innflutningur en fyrstu tvo mánuði síð- asta árs. Flugvélakaup Flugleiða skýra að vísu rúman helming viðbótar- innar, en mikil aukning er einnig á flestum öðrum liðum. Til dæmis hafa Islendingar nú keypt rúmlega 20% meira af unnum matvælum, um 15% meira af öðrum neysluvörum og um 16% meira af fólksbílum en á sama tíma í fyrra. Fjárfestingarvörur hafa ekkert aukist milli ára, nema flutningatæki til atvinnurekstrar. A hrávörum og öðrum rekstrar- vörum er þriðjungs aukning milli ára. — HEI Kosnmgatitringur í borgmni Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri vísar á bug fullyrðingum sjálfstæðismanna um að hún og Reykja- víkurlistinn hafi misnotað aðstöðu sfna á hverfafundi með unglingum í Ráðhúsinu í fyrrakvöld. Hún sé borgarstjóri allra borgarbúa og hafi upplýsingaskyldu gagnvart þeim. A fundi borgarráðs í gær Iétu sjálfstæð- ismenn bóka að borgarstjóri og R-listinn væru að mis- nota hverfafundi með því að halda þá nokkrum vikum fyrir kosningar. I bókun borgarstjóra segir að hverfafundirnir séu að sjálfsögðu á vegum borgarstjóraembættisins en ekki R- listans. Enda sé það mjög óviðurkvæmilegt að halda slíka fundi í nafni pólitískra samtaka eins og sjálfstæð- Ing/björg Sólrún Gísladóttir, borg- arstjóri. ismenn hafi gert á sínum tíma. GRH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.