Dagur - 01.04.1998, Qupperneq 9
msnir
rafmagh
REYKJAVIKi
77undur Bjarnason umhverfisráðherra fékk að
vinnu starfshóps á vegum sam-
gönguráðuneytisins.
Jón rakti staðreyndir um þróun
mála frá 1990 til 1996; þá átti sér
stað 7,8% aukning á bensínsölu.
Aftur á móti jókst heildarakstur
um meira en 20%, sem segir mik-
ið til um aukna sparneytni bif-
reiða. Hann segir að áætlanir um
þróunina frá 1996 geri ráð fyrir
því að árið 2010 hafí umferð auk-
ist um 15 til 20 prósent.
Þá rakti Jón hugmyndir um
hugsanlegar aðgerðir. Það má
haga gerð vega og gatna með þeim
hætti að orkunotkun verði sem
minnst, t.d. að aksturshraði verði
sem jafnastur, sem minnst sé af
brekkum og að „biðtími" bifreiða í
þéttbýli styttist. Þá nefndi Jón
mikilvægi fræðslu og áróðurs, t.d.
við að fá fólk til að drepa á bílum
i kyrrstöðu, að samnýta bíla, að
kaupa sparneytna bíla. Fleira taldi
Jón til; taka má upp mengunar-
skatta, takmarka akstur, takmarka
bifreiðaeign og fleira, sem varla
yrði vinsælt.
„Sjóræningjar 1
umli verfismálum “
Kristín Einarsdóttir lífeðlisfræð-
ingur flutti erindi um hlutverk al-
mennings, en óhætt er að segja að
hún hafi vikið nokkuð frá efninu.
Kristín gagnrýndi harðlega að Is-
land berst fyrir því að fá meira en
10% aukningu á losun og helst að
við fáum allan orkufrekan iðnað
„út úr bókhaldinu". Hún segist ef-
ast um að barátta stjórnvalda fyrir
frekari losunarheimildum njóti
stuðnings meðal almennings og
fullyrti að það gæti reynst íslandi
dýrkeypt að standa utan við
Kyoto-samkomulagið. Og hún
sagði að það væri langur vegur frá
því að fjárfestar líti til Islands ef
við ætluðum að gerast e.k. „sjó-
ræningjar í umhverfísmálum".
Kristín gagnrýndi áróður um að
ísland væri „hreint og ósnortið" og
að allt færi í kalda kol ef ekki
kæmi til aukin stóriðja. Og hún
hafnaði þeim rökum að almenn-
ingur á Islandi væri ekki tilbúinn
til að taka þátt í að draga úr meng-
un, til marks um annað væri ár-
angurinn af söfnun einnota um-
búða og mikill áhugi á rafmagns-
bílum.
Kristín minnti á að losun gróð-
urhúsalofttegunda væri hér á
landi 8,6 tonn á hvern íbúa, sem
er nálægt meðaltalinu í ESB-ríkj-
um og að miðað við samþykktar
áætlanir í stóriðjuframkvæmdum
séum við þegar komin uppfyrir
10% mörk Kyoto-samþykktarinn-
ar. Hún sagði að ef ekkert yrði að
gert færum við 37% framyfir los-
unina frá 1990 árið 2020. Að lok-
um vonaðist hún til þess að upp-
lýst almenningsálit myndi vekja
stjórnvöld af dvalanum.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
Borgartúni 3-105 Reykjavík - Sími 563 2340 - Myndsendir 562 3219
Alþingisreitur -
Breytt deiliskipulag
I samræmi við 1. og 2. mgr. laga nr. 18 73/1997 er hér með
auglýst til kynningar breytt deiliskipulag Alþingisreits.
Kynningin fer fram í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa
íBorgartúni 3, l.hæð, kl. 10.00-16.15 og stendur til 24. apr-
íl 1998.
Ábendingum og athugasemdum vegna ofangreindrar kynn-
ingar skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur, eigi
síðar en 8. maí 1998.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkja 'tillöguna.
I Ketilhúsinu í Listagilinu
1. apríl ■ 13. apríl
Opiú er alla dagana írá hl. 12:00 -19:
Uel yíir 10.000 tónlistartiílar úr ýmsum
áttum; Klassík, rokk, hip-hop, jazz, blús
og margt íleira... Veró frá kr. 99,-
JAPISS
Geislaplótur n Kassettur n Itlpdbdnd n Töluuleikir