Dagur - 12.05.1998, Blaðsíða 6

Dagur - 12.05.1998, Blaðsíða 6
22 - ÞRIDJUDAGUR 12.MAÍ 1998 ro^tr --4- LÍFIÐ í LANDINU Éá Forseti íslands ogfor- setafrú áttu tvo dýrð- ardaga með Vestur- Skaftfellingum ífaðmi stórbrotinnar náttúru. skólastjóri fróðlega tölu um eld- klerkinn. Síðan var haldið í Kirkjubæjarstofu sem er rann- sóknar- og menningarsetur Kirkjubæjarklausturs. Helga Guðmundsdóttir framkvæmda- stjóri flutti þar erindi. Um kvöldið, að loknum há- tíðarkvöldverði í boði héraðs- nefndar, var komið að stóru stundinni, samverustund for- setahjónanna og íbúa sýslunnar í Kirkjuhvoli, félagsheimilinu. Ný eldfjöll í skjóli jökla I ræðu sinni minntist forseti þess að „sköpun heimsins er hér enn í fullum gangi og óvíða með slíkum glæsibrag sem í Skafta- fellssýslu vestri," eins og Ólafur Ragnar sagði. „Ný eldíjöll í skjóli jökla, íshallir á svörtum sönd- um, nýtt land við árósa og Katla ávallt í viðbragðsstöðu, tilbúin að kenna okkur og mannkyni öllu þá lexíu að samanlögð tækni og vísindi hafi enn ekki gert manninn að herra náttúr- unnar. Eða Skaftáreldahraunið, hið mesta sem runnið hefur á gervallri jörðinni síðan menn hófu að skrá sögu sína. Öskurykið fékk þá á akra í kon- ungsríkinu franska, mistrið barst í lofti um Rússland, yfir Ural- fjöll til Asíu,“ sagði Ólafur Ragn- ar Grímsson. Hann sagði Skaftafellssýslu geyma Qársjóð dæma um undraöfl sem byggju í iðrum jarðar. Hún væri vett- vangur sannkallaðrar heimssýn- ingar á sköpunarkrafti náttúr- unnar. Sagði hann Skaftfellinga gæslumenn undrasvæða sem æ fleiri munu vilja sækja heim á nýrri öld. Kraílmiklar konur við stjóm Eftirmiðdeginum vörðu forseta- hjónin í að heimsækja ýmsa staði. Kirkjubæjarskóli er 100 barna skóli. Nemendur koma úr þrem áttum úr sveitunum í kring, en fæst þeirra búa á Klaustri. Skólastjóri er Hanna Hjartardóttir. Forsetahjónin fengu gjafir, smásögur og teikn- ingar í tugatali, sem nú eru á Bessastöðum. Næst þessari líflegu heimsókn var haldið út í bæ til Klaustur- hóla, en þar er dvalarheimili og hjúkrunarheimili aldraðra í sveitinni. Þar hittu hjón- in marga dugmikla Skaftfellinga sem eiga efri árin í miklu öryggi á fal- Iegu heimili. Meðal þeirra er 98 ára gam- all kappi og vel fram genginn, Ei- ríkur Björns- son, sem er einn af frum- heijum rafvæð- ingar á landi hér. I minningar- kapellu séra Jóns Steingrímssonar flutti Hanna Hjart ardóttir Jón Birgir Pétursson skrifar „Spice Girls!“ Svarið var ein- falt, hátt og snjallt. Forseti Islands, Ólafur Ragnar Gríms- son, var að ræða við nemendur í Kirkjubæjarskóla á Kirkjubæjar- klaustri og spurði hvaða tónlistarfólk höfð- aði helst til unga fólksins þar. Hjörtun slá sumsé svipað eystra staðar í veröld hér. lafur spurði nánar og fékk að vita að Emilíana Torrini væri í mestum metum af innlendum poppurum. Þessi orðaskipti voru nokkuð táknræn fyrir það að Ólafur Ragnar nær afburða góðu sambandi við fólk á öllum aldri. Hann getur talað við hvern sem er um hvað sem er, og gert það á þægilegan hátt. Olafur Ragnar Grímsson og frú Guðrún Katrín Þorbergs- dóttir unnu hug allra og hjörtu um síðustu helgi, þegar þau komu í heimsókn í minnstu sýslu landsins, Vestur-Skafta- fellssýslu, þar sem búa um þús- und manns. Guðrún Katrín er ekki með öllu óþekkt í sveitinni, - hún var í sveit í sex sumur í Hrífunesi og á þaðan ljúfar minningar. Þeir sem muna for- setafrúna frá þeim sælu árum, kalla hana ævinlega Búbbu, eins og henn Móttökur á Sólheimssandi. myndir jpb. sem bestu vinir gera. Henni var einkar vel fagnað og dáðust margir að dugnaði hennar og góðu útliti eftir þau erfiðu veik- indi sem nú eru yfirstaðin. 42 ár frá síðustu forsetaheimsókn Forsetalestinni var fagnað vel við Jökulsá á Sólheimasandi á föstudagsmorgun í skínandi góðu vorveðri. Forseti var síðast í heimsókn í sýslunni árið 1956 og þvf ekki óeðlilegt að íbúarnir væru spenntir fyrir heimsókn forsetahjónanna. Hvarvetna þar sem farið var um mátti sjá fólk beið eftir að sjá forseta og konu hans. Fólk veifaði íslenskum fánum og einn bíll á Klaustri var fánum skrýddur á áber- andi hátt í til- efni dagsins. Guðrún Katrín hafði óskað eftir að fá að gera lykkju á leiðina, beygja út af hinum ljúfa malbik- aða þjóðvegi eitt yfir á veginn til Hrífuness. Þar upplifðu margir íslenska þjóðvegi eins og þeir tíðum til voru skamms tíma, lausa malarvegi og stundum holótta, sem þyrluðu upp ryki í miklu magni. Menn draga úr ferðahraða for- setalestarinnar sem hefur stund- um verið allmikill, satt best að segja. Fólk af mölinni lærði að vinna Stoppið í Hrífunesi var skemmtilegt og Ólafur Ragnar sagðist nú í fyrsta sinni sjá með eigin augum sveitabæinn sem kona sín hefði mært svo mjög í sín eyru í mörg ár. Forsetafrúin sagði frá sveitadvölinni meðal ættmenna sinna í Skaftárþingi. Hún segist hafa lært mikið á þeirri dvöl og átt hér góða daga. Þar Iærði fólkið af mölinni að vinna. Fólkið var sjálfu sér nógt um svo margt í þann tíð. Guð- rún Katrín segir að rúmábreiður, handklæði og annað í þeim dúr hafi verið heimaofið. I Hrífunesi hefur verið myndarlegur bú- skapur á sinni tíð en hefur nú lagst í eyði. Þar er aðeins búið í myndarlegum bæ frá 1938 að sumarlagi og ferðamannaþjón- usta yfir hásumarið. Eftir nokkra viðdvöld var ekið áfram austur að Kirkjubæjar- klaustri. Það bregst ekki að Klaustur er fagurt, lítið þorp. Snyrtimennska er íbúunum að því er virðist eðlislæg og um- hverfið er annálað fyrir fegurð. Forsetahjónunum var fagnað af sveitarstjórn við Hótel Eddu. Þar snæddu þau Ólafur Ragnar og Guðrún Katrín ásamt nán- asta samstarfsfólki sínu há- degisverð. Aðalrétturinn að sjálfsögðu bleikja úr fersku vatni sem framleidd er í eldisstöðu í nágrenn- inu. Það er óhætt að mæla með þeim fiski. A undan var grafið lamb sem kallað er, þunnar flísar og bragð- góðar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.