Dagur - 31.07.1998, Qupperneq 1

Dagur - 31.07.1998, Qupperneq 1
Föstudagur 31. júlí - 64. tölublað 1998 Valdsmaður í vondmn málum Alþingi á Þingvöllum á 18. öld. Lögberg er til hægri á myndinni og þar fóru þingstörf fram og dómar voru kveðnir upp. Öxará rennur út í Þingvallavatn og eru tjaidbúðir á hólmanum. Fyrir miðri mynd er kirkjan og prestssetrið. Þarna voru Sunnefa og Jón bróðir hennar dæmd til lífláts og þarna voru dómar miidaðir vegna ungs aldurs þeirra. Máiastappið stóð yfir í tvo áratugi og kom oftar til kasta Al- þingis. Týnd er æra, töpnð er súl, tunglið veður í skýjum, Sunnefunnar sýpur skúl sýslumaðurinn Wíum. Um uppruna þessarar alþekktu vísu fer mörgum sögum. Ein er sú, að hún hafi verið kveðin á glugga yfir rúmi Hans sýslu- manns Wíum, sem gerði saka- konunni Sunnefu barn er hún var í hans gæslu, dæmd fyrir að eignast barn með bróður sínum. Onnur segir að vísan hafi verið kveðin í beinakerlinu á Kaldadal. Hvernig vísan er til komin skipt- ir ekki öllu máli, en tildrög hennar eru kunn og lýsir hún vel þeirri harmsögu sem að baki liggur og kaldranalegum örlög- um sem við hana koma. Hans Wíum var fæddur um 1715, sonur Jens sýslumanns Wíum og Ingibjargar Jónsdóttur. Hann útskrifaðist úr Skálholts- skóla og las lög í Kaupmanna- höfn og var settur sýslumaður í Vestmannaeyjum 1738. Tveim árum síðan fékk hann veitingu fyrir suður- og miðhluta Múla- þings og hálft Skriðuklaustur og síðar fékk hann það allt. Tók hann við sýslunni af Jens föður sínum. Eitthvað þóttu þær emb- ættaveitingar vafasamar og átti Hans í langvarandi útistöðum við aðra sýslumenn og höfðingja og stóð hann í illvígu málastappi alla sína tíð. Honum er svo Iýst, að hann hafi verið mikill vexti, þrekinn, harðger og óvílsamur, hvatur til hvers hiutar og allra manna orð- færastur, gefinn fyrir ölföng og þá óstýrilátur. Páll Eggert segir að talsvert hafi þótt til hans koma, því þegar til stóð að stóls- forráð á Hólum yrðu greind frá biskupsembættinu, taldi Gísli biskup Magnússon hann hent- ugastan manna hérlendis til stólsforráða, fyrir sakir ráðdeild- ar og góðs efnahags. Hans sótti um þetta embætti 1754. En þeg- ar hann dó 1788 hrökk bú hans ekki fyrir skuldum er það kom til skipta. Hans var atorkumaður og bryddaði upp á nýjungum. Hann gerði tillögu um að stjórnin keypti hreindýr og sendi til Is- lands og varð það síðar að ráði. Þá gerði hann tilraun til að finna hinar fornu leiðir um norðurör- æfi, úr Oræfum til Möðrudals um Ódáðahraun, en einhverra hluta vegna fór það allt í handa- skolum. Upphaf Stumefuinála Þjóðsögur og sagnir hafa mynd- ast um Sunnefu og öll þau mála- ferli sem um hana spunnust. Þá eru dómabækur til \atnis um at- burði. Þjóðsagan segir að Sunnefa hafi verið kvenna fríð- ust á þeirri tíð sem hún var uppi. Gísli fræðimaður hefur eftir sannorðum heimildarmönnum, að Sunnefa hefði verið hand- virðukona mikil, dökkeygð, svört á brún og með síðu hári, langleit og fölleit, en sómdi sér vel. Svo er frá greint að á ofanverð- um dögum Jens sýslumanns Wíum sem hafði miðpart Múla- sýslu 1723-1740, hafi tvö syst- kin átt heima í Geitavík í Borgar- firði eystra. Hétu þau Sunnefa (sumir rita Sunnifa) og Jón Jóns- son. Var Jón talinn „vel á sig kominn að jöfnum aldri“. Hann var tveim árum yngri en systir hans, en bæði voru þau ung að árum þegar Sunnefa ól barn þeirra. Það var árið 1739. Sunnefa var fædd 1723, en Jón bróðir hennar 1725. Hann hefur því verið 14 ára þegar barnið kom undir og Sunnefa 16 ára. I fyrstu kenndi Sunnefa Er- Iendi nokkrum á næsta bæ barn- ið og gekkst hann við því. Fjór- um dögum síðar breytti Erlendur framburði sínum og sagðist ekki faðir barnsins og bauðst til að sverja fyrir það. Þá kenndi Sunnefa Jóni bróður sínum barnið. Voru þau þá handtekin og flutt til Jens Wíums sýslu- manns. Hann dæmdi þau af lífi 20. apríl 1740. Sökum ungs aldurs var kon- ungi send bænaskrá um að milda dóminn. A meðan voru þau höfð í varðhaldi. Framhald á bls II

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.