Dagur - 31.07.1998, Side 5

Dagur - 31.07.1998, Side 5
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998 MINNINGARGREINAR X^MT Angantýr Hjörvar Hjálmarsson Angantýr Hjörvar Hjálmarsson fæddist í Hólsgerði í Eyjafirði þann 11. júní 1919. Hann lést á heimili sínu, Vallartröð 5 í Eyjafjarðarsveit, 22. júlí síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Hjálmar Þorláksson, f. 27. mars 1874, d. 17. feb. 1957, bóndi á Þor- Ijótsstöðum í Skagafirði, síðar í Hólsgerði og í ViIIingadal í Eyjafirði og Ingibjörg Jóns- dóttir, húsmóðir, f. 18. maí 1879, d. 18. ágúst 1949. Systkini Angantýs Hjörvars eru: Þorlákur, f. 19. júní 1909; Jón, f. 6. okt. 1912, d. 21. okt. 1982; Sigrún f. 28. sept. 1915. Hálfsystkini samfeðra: Stein- unn, f. 1. des. 1898, d. 28. júlí 1990; Snjólaug, f. 20. júlí 1901, d. 2. júlí 1936; Hjörtur, f. 28. júní 1905, d. 17. nóv. 1993. Eiginkona Angantýs Hjörv- ars var Torfhildur Jósefsdóttir, f. 6. ág. 1925, d. 25. júní 1993. Börn þeirra: 1) Sigfríð- ur Liljendal, f. 18. mars 1945, gift Pétri Brynjólfssyni. Þau eiga þrjú börn, Fríðu, Pétur og Hjörvar, og fjögur barnabörn. 2) Ingibjörg, f. 20. ág. 1951, gift Hauki Karlssyni. Þau eiga þrjár dætur, Lilju, Hildi Guð- rúnu og Þórdísi Bjameyju og eitt barnabarn. 3) Elinborg, f. 12. nóv. 1952, var gift Haraldi E. Ingimarssyni en þau skildu. Þau eiga þrjú börn, Ingimar Guðna, Kristbjörgu Torfhildi og Sigríði Jóhönnu. Angantýr Hjörvar átti heima í Villingadal frá 3ja ára aldri. Hann kvæntist Torfhildi Jós- efsdóttur frá Torfufelli þ. 11. júní 1944. Þau bjuggu í Vill- ingadal til ársins 1946 og í Torfufelli til 1957. Angantýr Hjörvar lauk kennaraprófi árið 1957. Hann var skólastjóri Barnaskólans í Sólgarði til 1969. Framhaldsnám í KHÍ 1969- 1970. Kennari í Reykja- nesskóla við Isafjarðardjúp 1970- 1971. Eftir það kennari í Hrafnagilsskóla þar til hann lét af störfum árið 1986. Árið 1987 fluttu Angantýr og Torf- hildur í hús sitt Vaílartröð 5 í Reykárhverfi og þar bjó Angan- týr þar til hann Iést. Angantýr Hjörvar tók virkan þátt í félagsmálum, s.s. stofn- un Bindindisfélagsins Dalbú- ans, starfaði í Ferðafélagi Ak- ureyrar, Sögufélagi Eyfirðinga, Afengisvarnarnefnd, Félagi aldraðra o.fl. Útför Angantýs Hjörvars verður gerð frá Grundarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. Eg var á fimmtugsaldri þegar ég kynntist Angantý og hann rúmum 20 árum eldri. Vegna aldursmunar hefði hið marg- fræga kynslóðabil getað skilið okkur að, en því fór þó víðs fjar- ri, við urðum sérlega góðir vinir og áttum samleið allt frá fyrstu tíð. Það var eitthvað sem dró okkur saman, einhver ósýnilegur þráður, þannig að mér fannst ég eiga fáa betri vini. Við áttum reyndar talsvert samstarf, sátum saman í Náttúrverndarnefnd Eyjafjarðarsýslu um árabil, og mér líkaði vel hve skeleggur og röskur hann var að afgreiða öll mál. Auk þess unnum við saman að skráningu örnefna fyrir Sögu- félag Eyfirðinga, en hann hafði fyrr á árum unnið mikið björg- unarstarf á því sviði með útgáfu og skráningu ömefna í Saurbæj- arhreppi í Eyjafirði. Angantýr kom mér oft á óvart. Það kom mér á óvart hve vel hann á efri árum hafði náð að nýta sér tölvutæknina, og ég dáðist að því hve vel og snyrtilega honum hafði tekist að búa sér og konu sinni heimili í Reykárbyggð við Hrafnagil. Helst Iágu leiðir okkar saman um fjöll og firnindi, og þá Ieið okkur báðum vel. Hann var kvik- ur á fæti og unni óbyggðunum og átti þar frumkvæði á mörgum sviðum. Fyrir nokkrum árum gekk ég með honum og Tryggva eftir Hólamannavegi á skíðum þvert yfir Tröllaskagann, og hlýt- ur Angantýr að vera með elstu mönnum sem það hafa gert og 77 ára gamall tók hann þátt í Þorvaldsdalsskokkinu um 26 kílómetra. Við fórum saman margar eftirminnilegar ferðir en eftirminnilegust er skíðaferðin okkar við þriðja mann, Odd, uppá Tungnahryggsjökul, þegar náttúrufræðingar voru í verkfalli og engar veðurspár voru gefnar aðrar en stormviðvaranir, og ein- mitt þennan logndag var storm- viðvörun eina veðurupplýsingin sem við fengum. Þegar uppá Barkárjökul kom bærðist íyrst vindur og mikil lausamjöll gat myndað sorta og ég fór að óttast að við mundum ekki finna skál- ann. Þá sagði ég við félaga mína upp úr eins manns hljóði: „Eig- um við að snúa við?“ og gleði- straumur fór um mig þegar Ang- antýr svarar: „Já“ og við snérum við á punktinum og renndum okkur til byggða, en þarna hófst þriggja daga fárviðri, sem við hugsanlega hefðum villst í og alla vega ekki komist til byggða og okkar verið leitað. Þetta jáyrði er það orð sem mér hefur þótt vænst um af vörum Angantýs vinar míns, og oft rifjuðum við þennan atburð upp og töldum það báðir handleiðslu að þarna hefðum við snúið við. Mér fannst alltaf að þessi vin- ur minn bæri eitthvert rismesta nafn landsins ef ekki sögunnar, Angantýr Hjörvar Hjálmarsson. Hann var ekki mikill vexti, en það var eitthvað mikið við hann og ætíð var bjart yfir honum. Hann hafði bjarta rödd, þannig að eftir var tekið er hann taiaði í hópi, og auk þess sagði hann Ijó- mandi skemmtilega frá, og fannst mér að með honum byggi einhver arfur af frásagnargáfu forfeðranna úr framdölum Eyja- Ijarðar og Skagafjarðar. Og víst er að hann bar skáldskapargáfu forfeðranna í brjósti, því hann var afar vel hagmæltur og Iætur eftir sig talsvert af ljóðum og lausavísum. Einu sinni flutti hann mér fagurt afmælisljóð á fjallstindi. Ein vísa Angantýs er mér sérlega kær, bílabænin er hann gaf mér einu sinni: Blessaðu Drottinn bílinn tninn, bjargaðu mér frá skaða, lát mig velja veginn þinn, og vera á réttum liraða. Þessi vísa segir talsvert um lífsviðhorf þessa heiðursmanns og honum mun ég aldrei gle)mia. Við hjónin heimsóttum Angan- tý eftir að hann veiktist. Þá leið honum ekki illa að eigin sögn, hvorki líkamlega né andlega, og hann var eklu dapur. „Eg veit hvert ég fer“ sagði hann, og viss er ég um það að hann hefði þá ekki verið jafn viljugur að snúa við eins og hann var á Barkár- jökli forðum. Við hjónin þökkum fyrir góðan og eftirminnilegan vin og biðjum Guð að blessa að- standendur hans og minningu hans. Bjami E. Guðleifsson, Möðruvöllum. ¥ ¥ ¥ Nú er komið að leiðarlokum hjá honum afa mínum. Hann var fyrir margra hluta sakir dálítið merkilegur karl. Eg ætla ekki að tíunda hér ritstörf hans, kennslustörf eða önnur störf sem hann vann í þágu ýmissa fé- lagasamtaka, til þess eru vafa- laust aðrir betur fallnir en ég. Mig langar miklu fremur að minnast mannsins sem fór sínar eigin Ieiðir og er hann hafði val- ið sér leið þá gekk hann hana ótrauður og lét sig litlu varða álit annarra. Eg vil minnast manns- ins sem unni landinu sinu, var ættrækinn og lagði áherslu á að menn héldu tengslum við upp- runa sinn. Vafalítið hafa menn oft hrist höfuðið yfir ýmsum uppátækjum afa en hann lét sér það í léttu rúmi liggja. Margar sögurnar hef ég heyrt af fífldirfsku hans í fjallaferðunum, svaðilförum sem farnar voru inn á öræfin upp af Norðurlandi í ýmsum tilgangi. Honum leiddist ekkert að segja frá þessum ferðum og gerði þá oft góðlátlegt grín að öllu saman. Afi hafði gaman af að ferðast og voru norðlensku öræfin hon- um afar kær. I ferðalögum um þau vann hann ásamt öðrum ýmis brautryðjendastörf. Hann var hafsjór af fróðleik um þetta landsvæði. Afi var í eðli sínu leiðsögumaður, vel lesinn og hafði yndi af að miðla þekkingu sinni. Oft fundust mér allar staðhátta- og örnefnalýsingarnar gera sögurnar nokkuð lang- dregnar. Seinna meir skildi ég þó mikilvægi þess að gjörþekkja umhverfi sitt og náttúruna. Slíkt var lífsnauðsynlegt til þess að lifa af í afskekktum dal frammi í Eyjafirði á fyrri hluta aldarinnar. Ég held að stundum skorti okk- ur, sem fædd erum á seinni hluta aldarinnar og höfum alist upp við hraða og tækni nútím- ans, þessa nánu tilfinningu fyrir landinu. Við afi höfðum sameiginlegt áhugamál þar sem ferðalögin voru og völdum okkur sama ævi- starfið. Þó að hann væri að láta af kennslu þegar ég hóf minn feril þá hafði hann gaman af því að ræða uppeldis- og kennslu- mál og þær voru ófáar stundirn- ar sem við rökræddum yfir kaffi- bolla. Ekki vorum við alltaf sam- mála og þegar mér fannst ég hafa betur þá hló hann gjarnan og sagði: „Já þú heldur það“ og þar við sat. Nú um þessar mundir hafði afi ætlað sér að leggja upp í göngu- ferð með góðum ferðafélögum um Austfirði. Slíkar ferðir fór hann á hverju sumri hin seinni ár. Sú ferð verður þó ekki farin en hann leggur þess í stað í þá ferð sem á íyrir okkur öllum að Hggja- Eg kveð elskulegan afa minn með virðingu og þökk. Fríða Pétursdóttir. * * * Þegar ég frétti lát Angantýs, var ég orðinn einum ágætum vini fá- tækari. Þegar árin færast yfir, finnum við alltaf betur og betur sannindi orða Jónasar Hall- grímssonar: Og vinir berast burt með tímans straumi og blótnin fölna á einni hélunótt. En hver voru kynni okkar Ang- antýs, mætti spyrja, fyrst ég minnist hans í dagblaði við Ieið- arlokin? Þau kynni voru að vísu ekki löng, en heillarík. Hér skal ekki rakinn æviferill þessa ágæta vinar mfns, heldur dvalist við minningar, sem eru nú næstum þrjátíu ára gamlar. Aðrir, sem kunnugri eru lífshlaupi Angan- týs, munu fjalla um það. Það var síðsumars 1969, að átta grunnskólakennarar fá til- kynningu um, að þeir hafi fengið inni á námskeiði fyrir dönsku- kennara, sem yrði haldið í Kenn- araskóla Islands, skólaárið 1969- 1970. Leið nú tíminn, þar til þessi hópur hittist 1. október, og kennslan hófst. Hópurinn sam- anstóð af fjórum karlmönnum og fjórum konum. Angantýr Hjörvar Hjálmarsson var elsti karlmaðurinn í hópn- um, þá orðinn fimmtugur að aldri, hress í bragði og vel hald- inn. Hann var meðalmaður á hæð, í meðallagi holdugur og nokkuð dökkur á hörund. Hann kom norðan úr Eyjafirði, hafði kennt þar við heimavistarskóla frá 1957 og vildi nú hressa upp á kunnáttuna með vetrardvöl við nám í virtri menntastofnun. Það var einnig hugsun okkar allra, sem þarna vorum fyrrgreindan vetur. Fljótlega komst ég að því, að Angantýr var hagmæltur vel. Stundum varpaði hann fram vís- um á stundinni, ekki síst ef leið- ir skildi um sinn. Hann átti ekki langt að sækja þennan hæfileika. Hálfbróðir hans, Hjörtur Hjálm- arsson, skólastjóri á Flateyri, var vel skáldmæltur, einsog kunnugt er. Námið stóð í 8 mánuði og lauk með prófi. Við vorum ánægð, er upp var staðið og við gátum sýnt svart á hvítu, að við höfðum til- einkað okkur tilskilið námsefni og gætum talið okkur dönsku- kennara. Angantýr var áhuga- samur við dönskunámið og ein- nig við þær aukagreinar, sem í boði voru: ensku, félagsfræði og stærðfræði. Það var átak fyrir mann á miðjum aldri, eins og Angantý, að taka sig upp og flytj- ast milli landshluta til að stunda framhaldsmán, jafnvel þó að grunnlaun væru greidd, eins og var í þessu tilviki. Angantýr var ekki einn á vegi, því að með hon- um var kona hans, hún Torfhild- ur Jósefsdóttir. Oft kom ég til þeirra, þar sem þau bjuggu, skammt frá Kennaraskólanum. Jafnan var mér vel tekið og þá beðinn að setja eins og eina vísu í gestabókina, sem lá frammi. Oftast v'arð ég við þeim tilmæl- um. Þarna var mér tekið sem al- úðarvdni. Torfhildur var að vísu stórum hlédrægari en maður hennar, en samt vingjarnleg; og ég er viss um, að hún hefur ver- ið hin mesta ágætiskona. Þau hjón eignuðust þrjár dætur, sem allar lifa og hafa stofnað heimili. Torfhildur lést fyrir nokkrum árum, og þá missti Angantýr mikið. Angantýr var einlægur bind- indismaður alla ævi. Hann skrif- aði greinar í dagblöð um bind- indismál. Mér er einn greina- flokkur, sem hann ritaði um þessi mál, minnisstæður. Hann bar yfirskriftina „Mengun í mannlífinu." Því hv'að er áfengis- og tóbaksnotkun annað en mengun, sem mannkynið hefur átt þátt í að skapa og viðhaldið dyggilega fram á þennan dag? Þegar leiðir skildu vorið 1970, og Angantýr þurfti vegna anna á heimaslóðum að yfirgefa okkur fyrir skólaslit, orti ég til hans: Oft að kveðja örðugt reynist; allt að leiðarmörkum ber. Okkar hugur að þér beinist; áttum góðan vetur hér. Heilsar þér nú heimajörðin, hlýr ogferskur vorsins blær. Undu svo við Eyjafjörðinn ennþá lengi, vinur kær. Þegar iðin voru 2 5 ár frá því að leiðir okkar námsfélaga skildu, vorið 1995, hittumst við, nema eitt, og áttum ánægjulega sam- verustund á Hótel Sögu og heima hjá mér. Angantýr kom skömmu áður heim til mín og rifjuðum váð þá margt upp. Við vorum þá löngu hættir kennslu. Hann var kennari við Hrafna- gilsskóla til starfsloka og byggði sér þar íbúðarhús, sem hann bjó í þar eftir. Lífinu fylgir það að eignast og missa. En hver er fátækari en sá, sem ekkert hefur eiganst og á þess vegna ekkert til að missa? Ég held ég túlki þetta einna best með því að tilfæra eftirfarandi Ijóðlínur, sem ég setti saman að öðru tilefni: Efvið hefðum ekki neins að minnast, ósköp væri lifið gleðisnautt. Þau, sem aldrei öðrum fá að kynnast, endutfunda bíða munu trautt. Eg er rfkari eftir kynnin við Angantý Hjörvar Hjálmarsson. Ég votta aðstandendum hans samúð við fráfall hans. Minning- in lifir. Auðunn Bragi Sveinsson. ¥ ¥ ¥ Þegar litið er yfir æviveg Angan- týs Hjörvars föðurbróður okkar koma margar myndir í hugann. Við sem þetta skrifum erum á sumum þeirra, aðrar höfum við fengið úr frásögnum hans sjálfs eða þeirra sem til hans þekktu. Hjörvar ólst upp við hefð- bundin störf hins gamla íslenska bændasamfélags og kynntist ungur hugsjónum ungmennafé- lagshreyfingarinnar. Þetta tvennt átti mikinn þátt í að móta lífs- skoðanir hans, að byggja upp skilning á nauðsyn náttúru- verndar en taka jafnframt nýj- ungum 20. aldarinnar með opn- um huga. Hjörvar þekkti vel til lífsbaráttu aldamótakynslóðar- innar og áhrifa kreppu íjórða áratugarins á íslenskt samfélag. Hann átti ekki kost á áframhald- andi skólagöngu þegar skyldu- námi farskólans lauk. Því kom það nánast af sjálfu sér að hann gerðist bóndi, íyrst í Villingadal og síðar í Torfufelli þar sem kona hans, Torfhildur Jósefsdóttir, var fædd og uppalin. En vegna bak- veiki varð hann á fertugsaldri að bregða búi og leita sér annarrar atvinnu. Og þá gafst honum með góðra manna hjálp tækifæri á að nýta sér prýðilega námshæfileika sína. Eftir eins vetrar undirbún- ingsnám settist hann í Kennara- skólann og útskrifaðist þaðan vorið 1957. Kennslu stundaði Hjörvar frá 1957 til 1986. Fyrst sem kennari og skólastjóri við barnaskólann í Sólgarði, síðan eitt ár á Reykjanesi við Isafjarð- ardjúp og loks við Hrafnagils- skóla í Eyjafirði. Hjörvar gerði sér á unga aldri

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.