Dagur - 17.10.1998, Page 11
LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1998 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Það er ekki á hverjum degi sem börn Norður-írlands hafa ástæðu til brosa en John Hume lítur svo á að
friðarverðlaun Nóbels séu viðurkenning til allra Norður-íra.
Friðarverðlaimin
til N-íriands
Stjómmálaleiðtogar
um heim allan lýstu
ánægju siuui með út-
hlutuu friðarverð-
lauua Nóhels.
Norður-írsku stjórnmálamenn-
irnir John Hume og David
Trimble skipta með sér friðar-
verðlaunum Nóbels þetta árið
fyrir framlag sitt til friðarsamn-
inganna sem gerðir voru í apríl á
þessu ári.
Stjórnmálaleiðtogar um heim
allan lýstu í gær yfir ánægju
sinni með að verðlaunin gengju
að þessu sinni til þeirra sem
unnu að gerð friðarsamningsins
á Norður-írlandi. Bill Clinton,
forseti Bandaríkjanna, sagðist
vera „afar ánægður11 og fullyrti
að samningarnir á Norður-ír-
landi væru gott dæmi um það að
hægt væri að leysa deilur sem
virtust vera óleysanlegar.
Verðlaun handa öllum Norð-
uríruni
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sem átti stóran þátt í
að gera friðarsamningana að
veruleika, sagði í yfirlýsingu sem
hann sendi frá sér í tilefni verð-
Iaunanna, að engir ættu frekar
skilið friðarverðlaun Nóbels en
einmitt þeir John Hume og Dav-
id Trimble. „Þetta er viðurkenn-
ing á hugrekki þeirra og leiðtoga-
hæfileikum sem voru svo mikil-
vægir i að varða veginn til friðar.“
Hann sagði jafnframt að verð-
launin yrðu vonandi til þess að
hrinda úr vegi síðustu hindrun-
unum fyrir friði á Norður-ír-
landi.
John Hume sagðist ekki líta
svo á að verðlaunin væru handa
honum persónulega heldur beri
að líta á þau sem alþjóðlega við-
urkenningu á friðarferlinu á
Norður-Irlandi. „Þetta eru ekki
bara verðlaun handa mér og
David Trimble. Þetta eru verð-
laun handa öllum íbúum á
Norður-Irlandi." Hann sagði
verðlaunin vera „skýr og sterk
skilaboð til allra íbúa Norður-Ir-
lands. Að mínu mati verða þau
til þess að styrkja friðarferlið.“
Hume verið saiiikvæmur
sjálfuin sér
Hume er einn helsti höfundur-
inn að friðarsamkomulaginu sem
undirritað var á föstudaginn
langa á þessu ári. I fréttatilkynn-
ingu frá Nóbelsverðlaunanefnd-
inni í Noregi, sem úthlutar verð-
laununum, segir að Hume hafi í
allri viðleitni sinni við að ná fram
friðsamlegri lausn jafnan verið
sá stjórnmálaleiðtogi á Norður-
Irlandi sem hafi verið samkvæm-
astur sjálfum sér. „Grundvöllur
friðarsamkomulagsins sem var
undirritað á föstudaginn langa
1998 endurspeglar þær grund-
vallarhugmyndir sem hann
fylgdi," segir í tilkynningunni.
Þótt Hume hafi barist sleitu-
Iaust fyrir því að Norður-írland
sameinist Irlandi, allt frá því á
sjöunda áratug aldarinnar, þá
hefur hann jafnframt verið stað-
fastur í fordæmingu sinni á
hryðjuverkum og ofbeldi írska
lýðveldishersins.
Trimble sýndi mikið
hugrekki
David Trimble, leiðtogi hófsamra
sambandssinna á Norður-ír-
landi, var staddur í Bandaríkjun-
um, sofandi um miðja nótt, þeg-
ar tilkynnt var um verðlaunin. I
tilkynningu Nóbelsverðlauna-
nefndarinnar segir að hann hafi
sýnt mikið pólitískt hugrekki
með því að mæla með þeim
lausnum sem leiddu til þess að
friðarsamkomulagið var gert. Og
sem leiðtogi stjórnar Norður-ír-
lands „hefur hann tekið fyrstu
skrefin í áttina að því að byggja
upp gagnkvæmt traust sem var-
anlegur friður verður að byggjast
á.“
Um það bil 3.600 manns hafa
farist í innanlandsófriðnum á
Norður-írlandi undanfarna þrjá
áratugi. Með samkomulaginu frá
því í apríl virðist sem að mestu
leyti hafi tekist að binda endi á
blóðbaðið, þótt ekki hafi hryðju-
verkum lokið með öllu. 29
manns létust í sprengjuárás á
markaðstorgi í bænum Omagh í
ágúst síðastliðnum, en nú eru
ekki nema ein hryðjuverkasam-
tök eftir sem ekki hafa fengist til
þess að lýsa yfir vopnahléi.
Ekki allir ánægðir
Ekki voru þó allir jafn ánægðir
með fréttirnar af því, hvert frið-
arverðlaun Nóbels fóru þetta
árið. Áköfustu sambandssinn-
arnir í flokki Ians Paisleys, DUP,
voru lítt hrifnir af því að slík við-
urkenning væri veitt fólki sem
„verðlaunar hryðjuverkamenn",
eins og Peter Robinson, framá-
maður í flokknum
orðaði það.
Oðrum þótti at-
hugavert að Gerry
Adams, leiðtogi
Sinn Fein, væri
ekki meðal verð-
launahafanna.
Enginn vafi leikur
á því að framlag
Adams til friðar-
samninganna réði
á margan hátt úr-
slitum, en hann
beitti sér mjög fyr-
ir því að samkomu-
lag tækist.
I fréttatilkynningu Nóbels-
verðlaunanefndarinnar segir þó
að hún leggi áherslu á „mikil-
vægi hins jákvæða framlags ann-
arra leiðtoga á Norður-írlandi til
friðarferlisins."
Afhent í desemher
Sjálf verðlaunin verða afhent í
Osló í desember næstkomandi,
og nema þau rúmum 65 milljón-
um íslenskra króna sem þeir
Hume og Trimble skipta jafnt á
milli sín.
139 einstaklingar og stofnanir
höfðu verið tilnefndar til
Nóbelsverðlaunanna þetta árið,
en afar líklegt þótti að þau rynnu
að þessu sinni til einhverra
þeirra, sem unnið höfðu að gerð
friðarsamkomulagsins á Norður-
írlandi. Auk þeirra Humes og
Trimbles þóttu m.a. George
Mitchell, samningamaður
Bandaríkjanna, Mo Mowlan, ír-
landsmálaráðherra bresku
stjórnarinnar, og forsætisráð-
herrarnir Tony Blair á Bretlandi
og Bertie Ahern á írlandi, koma
sterklega til greina. -GB
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands ásamt
verðlaunahöfunum John Hume og David Trimble.
Enn barist í Kosovo
JÚGÓSLAVÍA - Serbneskar sveitir beittu þungavopnum á nokkur þorp
í Kosovo-héraði í gær, þrátt fyrir samkomulagið sem Milosevic
Júgóslavíuforseti gerði í byijun vikunnar.
Júgóslavnesk stjórnvöld undirrituðu í gær ásamt fulltrúum Öryggis-
og samvinnustofnunar Evrópu samkomulag um að 2000 eftirlitsmenn
frá ýmsum ríkjum verði sendir til Kosovo á vegum ÖSE. Eiga þeir að
fylgjast með brottfluttningi serbneskra hersveita frá héraðinu. NATO
hafði jafnframt samþykkt að framlengja heimild til loftárása ef Serbar
standa ekki við sinn hluta samkomulagsins.
Samkpmulag um fjárlög
BANDARÍKIN - Bill Clinton Bandaríkjíuor-
seti og meirihluti Repúblikana á Bandaríkja-
þingi hafa náð samkomulagi um afgreiðslu
fjárlaga eftir langar og erffðar samningavið-
ræður. Alls nema tekjur og útgjöld á fjárlögun-
um um 500 milljörðum dollara, eða nærri
35.000 milljörðum íslenskra króna. Meðal
annars tókst Clinton að fá þingið til að sam-
þykkja viðbótar framlag til Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins upp á eina 18 milljarða dollara, sem
veija á til að bæta fjárhagsástandið í Asíu,
Rússlandi og Suður-Ameríku.
Bill Clinton, forseti
Bandaríkjanna.
Nýr forsætisráðherra fimdinn
ÍTALÍA - Massimo D’AIema, formaður flokks vinstri demókrata á ítal-
íu, verður næsti forsætisráðherra landsins. D’Alema er fyrrverandi
kommúnisti og sá fyrsti úr þeirra röðum sem gegnir þessu embætti á
Ítalíu. Hægriflokkar lýstu í gær ákafri hneykslun á þessari ákvörðun.
Gorbatsjov gagnrýnir Jeltsín
RÚSSLAND - Mikhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseti Sovétríkjánna,
gagnrýnir Boris Jeltsín, forseta Rússlands, fyrir ólýðræðislega stjómar-
hætti. Gorbatsjov viðraði þessa skoðun sína í ræðu sem hann flutti við
Harding-háskóla í Arkansas, einu ríkja Bandaríkjanna, á fimmtudag.
Jafnframt bar hann mikið lof á Jevgení Prímakov, forsætisráðherra, og
sagði öllu skipta að hann nyti stuðnings sem víðast.
Indverjar að nálgast milljarð
INDLAND - Ibúar á Indlandi verða orðnir einn milljarður í maí á
næsta ári, að því er þarlend stofnun skýrði frá. Aðeins Kfnveijar eru
fleiri. Arið 2002 er búist við því að Indveijar verði orðnir 1,1 milljarð-
ur.
Skip fórst við strendur Danmerkur
DANMÖRK - Að minnsta kosti þrfr sjómenn frá Úkraínu fórust þegar
flutningaskip að nafni Aster sökk við strendur Danmerkur í gær. Þriggja
manna að auki var saknað, en fimm var bjargað af alls ellefu manna
áhöfn.
DOLBY
BcrGArbic
BORGARBÍO KYNNIR:
Einhversstaðar í
dimmri borginni
leynist einhentur,
einfættur, eineygður
maður óbyrgur fyrir
morðinu sem Ryan
Harrison hefur verið
sakaður um.
Það eina sem Ryan
þarf til oð finna
hann er... vísbend-