Dagur - 04.11.1998, Qupperneq 1
Kvótarisar sleppa
við tekjuskattmn
Aðeins eitt af kvóta-
hæstu útgerðarfyrir-
tækjiun landsins
greiðir tekjuskatt.
Samherji, Haraldur
Böðvarsson, ÚA og
Grandi greiða svipaða
skatta og Pizzahúsið,
Gunnars Majones og
Bónusvideó, en mun
minna en Bílahúð
Benna.
Kvótahæstu fyrirtæki landsins,
sem ráða yfir 42% kvótans,
greiða engan tekjuskatt vegna
1997, með einni undantekn-
ingu. Þó var samanlagður hagn-
aður þeirra á síðasta ári um 3,5
milljarðar króna. Sömu útgerð-
arfyrirtæki greiða einungis 4-5
milljóna króna eignaskatta, þótt
eigið fé þeirra hafi verið yfir 30
milljarðar króna. Að trygginga-
gjaldinu undanskyldu greiða
kvótahæstu útgerðarfyrirtæki
landsins vart meiri skatt en
stöndugustu pizzafyrirtækin og
videósjoppurnar.
Eini raunveru-
legi skatturinn
sem kvótahæstu
útgerðarfyrirtæki
landsins greiða
núna er trygg-
ingagjald, sem er
6% Íaunaskattur
sem öll fyrirtæki
bera. Upplýsing-
ar um trygginga-
gjald eru nú lok-
aðar þar sem þær
voru birtar í ágúst
og eru ekki birtar
aftur.
Samherji og ÚA eru með stærstu
útgerðarfyrirtækjum landsins en
þau greiða fæst tekjuskatt vegna
taps fyrri ára.
Græddu 204 milljónir að
meðaltali
Úttekt Dags á öllum öðrum
skattgreiðslum fyrirtækja leiðir
hins vegar í ljós að kvótahæstu
útgerðarfyrirtækin greiða nær
sáralítið í skatt. Fyrirtæki eins og
Samherji, ÚA, Haraldur Böðv-
arsson, Grandi, Þormóður
Rammi-Sæberg og Síldarvinnsl-
an greiða ekki krónu í tekjuskatt.
Astæðan er fyrst og fremst upp-
safnað „skattalegt tap“. Af þeim
kvótahæstu
greiðir aðeins
eitt fyrirtæki
tekjuskatt,
Hraðfrystihús
Eskiíjarðar, fyr-
irtæki Alla ríka.
Ofangreind 17
fyrirtæki „eiga“
42% kvótans.
Eignaskattar
þeirra eru á bil-
inu 70-75 millj-
ónir króna eða 4-
r milljónir að
meðaltali á hvert
fyrirtæki. Hjá
þeim 13 þar sem
upplýsingar Iiggja fyrir um hagn-
að fyrir skatta (tvö voru rekin
með tapi) var hagnaðurinn
2.653 milljónir króna eða 204
milljónir að meðaltali. Hjá þeim
12 þar sem upplýsingar liggja
fyrir um eigið fé var það í heild
23,5 milljarðar króna eða 2 millj-
arðar að meðaltali. Þrátt fyrir
þessa góðu afkomu og góða eig-
infjárstöðu eru skattgreiðslur
fyrirtækjanna í algjöru lágmarki.
Bílabúðtn skilaði mun meiri
skatti
Samherji greiddi tekju- og eigna-
skatta og markaðsgjald upp á
samtals 6,3 milljónir króna
(hagnaður 311 milljónir). Har-
aldur Böðvarsson greiddi 15,6
milljónir (hagnaður 522 milljón-
ir). ÚA greiddi aðeins háífrar
miiljónar króna markaðsgjald
(tap 130 milljónir). Grandi
greiddi 10,2 milljónir (hagnaður
528 milljónir) og þannig mætti
áfram telja.
Til samanburðar má nefna
tekju- og eignaskattsgreiðslur
nokkurra „venjulegra" fyrirtækja
(tryggingagjaldið sem fyrr und-
anskilið). Bananasalan greiddi 5
milljónir í skatta, Bílabúð Benna
greiddi 29 milljónir, Bónusvideó
7 milljónir, Gunnars Majones
6,6 milljónir og Pizzahúsið
Grensásvegi 8,3 milljónir. Þessi
fyrirtæki greiða því svipaða
tekju- og eignaskatta eða litlu
minni en kvótarisar landsins.
- FÞG
Ákveðið bak
við tjöldin
Húsvíkingar eru ósáttir við að
flytja eigi hluta verkefna veð-
deildarinnar til Sauðárkróks, en
bæjarstjórn Húsvíkur óskaði fyr-
ir nokkru eftir því við stjórnvöld
að íbúðalánasjóði yrði valinn
staður þar. Reinhard Reynisson
bæjarstjóri segir að engin svör
hafi borist við erindinu. „Og
þarna er skýringin á því hugsan-
lega komin, að það hafi þegar
verið búið að ákveða þennan
gjörning á bak við tjöldin. í þessu
sambandi veltir maður því óneit-
anlega fyrir sér hvort orsakasam-
hengi sé á milli þess hvaðan
stjórnarmenn tiltekinna stofn-
ana og ráðherrar málaflokka
koma, þegar ákveðið er hvert
störf fara út á land. Enn fremur
vekur þetta upp spurningar um
hvort þingmenn kjördæmanna
séu misjafnlega öflugir í hags-
munagæslunni."
Sjú einnig blað 3.
Það óhapp varð í gær á Viðarhöfða í Reykjavík að grafa sem stödd var á vörubílspalli rakst uppundir brúargólf og
fóru við það í sundur slöngur þannig að glussi af vökvakerfi vélarinnar lak út og dreifðist á um fimmtíu til sjötíu
metra kafla. Slökkviliðið I Reykjavík var kallað út til að hreinsa götuna. mynd: þúk
Friðrik Sophusson, formaður kjör-
dæmanefndarinnar: Nefndin skor-
aði á formenn flokkanna að flytja
sem allra fyrst frumvarp um breyt-
ingu á kjördæmunum.
Formaima
fnunvarp
umkjör-
dæmin
Samkomulag mun orðið milli
formanna stjórnmálaflokkanna
um að þeir flytji saman frum-
varp um breytingar á kjördæma-
skipaninni. Þar verði Norður-
landskjördæmi vestra og Aust-
fjarðarkjördæmi ekki klofin.
Þess í stað verði Norðurlands-
kjördæmi vestra með Vestur-
landi og Vestfjörðum í kjör-
dæmi. Þó mun Siglufjörður lík-
lega tilheyra Norðurlandskjör-
dæmi eysta sem sameinað verð-
ur Austurlandskjördæmi.
Sem kunnugt er kom fram
mikil gagnrýni hjá þingmönnum
kjördæmanna tveggja sem lagt
var til að yrðu klofin í tvennt.
Friðrik Sophusson, formaður
kjördæmanefndarinnar, sagði að
nefndin hafi komið saman aftur
28. október og rætt þá gagnrýni
og ábendingar varðandi tillögu
hennar um kjördæmaskipan.
Síðan skrifaði nefndin forsætis-
ráðherra bréf þar sem skorað er
á formenn flokkanna að flytja
sem allra fyrst frumvarp. Einnig
segir í bréfinu að nefndin fallist
á að í stað þess að kljúfa kjör-
dæmin tvö verði þau sameinuð
öðrum eins og sagt er frá í upp-
hafi.
Friðrik sagði að nefndin hefði
enga athugasemd gert við það
að Siglufjörður tilheyri Norður-
landskjördæmi eystra. A sfnum
tíma tilheyrði Siglufjörður Eyja-
fjarðarsýslu af samgöngulegum
ástæðum og eins munu heima-
menn vilja tilheyra eystra kjör-
dæminu. S.DÓR
*SUBUURY*
«SUBLURY'
^UBUIflY'
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI • SÍMI 462 3524