Dagur - 04.11.1998, Síða 6
6 - MIDVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998
ÞJÓÐMÁL
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Sfmar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Simbréf auglýsingadeildar:
Símar auglýsingadeildar:
Netfang auglýsingadeildar:
Símbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.800 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
omar@dagur.is
460 617KAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Skiípaleikur
í fyrsta lagi
Úttekdr sem gerðar hafa verið síðustu misseri á starfsemi lög-
reglunnar í Reykjavík staðfestu að margt var aðfinnsluvert við
stjórn þeirrar mikilvægu stofnunar. í ljós kom að Böðvar Braga-
son lögreglustjóri hafði ekki þau föstu tök á starfsemi hinna
ýmsu deilda sem krefjast verður af yfirmanni embættisins. Þótt
lögreglustjóri verði að sjálfsögðu að sýna undirmönnum sínum
traust er það um leið skylda hans að fylgjast náið með því að
farið sé að lögum og reglum um góða starfshætti og að grípa
þegar í stað í taumana ef annað kemur á daginn. A það hefur
skort.
í öðru lagi
Enginn efast því um að taka þurfti á málum lögreglunnar í
Reykjavík og færa starfshætti til betri vegar. Hins vegar virðist
dómsmálaráðherra á góðri leið með gera nauðsynlegar breyt-
ingar á embættinu að hjákátlegum skrípaleik. Fyrst er Böðvar
Bragason settur í nokkurra mánaða veikindaleyfi. Á meðan er
nýr varalögreglustjóri fenginn til að hressa upp á ímynd emb-
ættisins, ekki síst með röggsamri framgöngu í fjölmiðlum. Rétt
áður en Böðvar Bragason á að mæta til vinnu á ný er kynnt op-
inberlega nýtt skipurit fyrir embættið þar sem lögreglustjórinn
er sviptur þeim völdum sem stöðunni fylgja samkvæmt lands-
lögum og varalögreglustjóranum í reynd falið að stjóma emb-
ættinu.
í þriðja lagi
í þessu máli sem öðrum þurfa stjórnvöld að hafa þor til að
koma fram af einurð og heilindum. Sé það skoðun ráðherra að
Böðvar Bragason sé helsta vandamál lögreglustjóraembættisins
í Reykjavík, og geti hann sannað slíka vanhæfni, þá á hann auð-
vitað að láta lögreglustjórann fara og skipa nýjan í staðinn. Ef
ekki, þá ber ráðherra að sjá til þess að lögreglustjóri haldi ekki
aðeins stöðu sinni heldur einnig þeim völdum innan embættis-
ins sem eru forsenda þess að hann geti sinnt starfinu lögum
samkvæmt. Skrípaleikur síðustu daga er engum samboðinn.
Elias Snæland Jónsson.
Strætóbomban
Árni Steinar Jóhannsson um-
hverfisstjóri Akureyrarbæjar
og varaþingmaður Steingríms
J. er kominn í kosningaham.
Ami Steinar hefur verið orð-
aður við annað sætið á lista
Rauðgranaflokksins, næst á
eftir Rauðgrana sjálfum.
Trompið sem nú er komið á
borðið er nýr Eyjafjarðarstrætó
sem gangi um allan fjörð með
Akureyri sem miðpunkt. Eyja-
fjarðarstrætóinn á að vera til-
raunastrætó fyrir nýja strætós-
infóníu um landið allt þar sem
sveit og bær eru sameinuð
undir merkjum almennings-
vagna. Þetta er óneit-
anlega athyglisverð
hugmynd enda fær
Garri ekki betur séð
en Árni Steinar hafi
fengið þungavigtar-
menn úr stjórn
Byggðastofnunar til að
flytja með sér þingsá-
lyktunartillögu á Al-
þingi um málið.
22 milijónir
En efasemdamenn eru á hver-
ju strái og Garri heyrir nöldrið
í öllum hornum. Er strætó
sem skrönglast um Eyjafjörð
nú það sem okkur hefur vant-
að!?? Hefur byggðin við fjörð-
inn liðið fyrir skort á almenn-
ingssamgöngum? Er veijandi
að setja 22 milljónir króna í
málið?!?! Garri man reyndar
ekki til þess að hafa séð fleiri
en 4 menn samankomna í
strætisvagni á Akureyri í einu.
Oftast aka strætisvagnarnir
um tómir. Svipaða sögu er að
segja með strætisvagnana i
Reykjavík. Þeir eru yfirleitt
tómir, kannski einn og einn
unglingur á ferðinni. Þó gerist
það kannski oftar að fleiri eru
í strætó í Reykjavík en á Akur-
V.
eyri og það má því svo sem
spyrja hver sé tilgangurinn
með því að láta þessu tómu
strætisvagna aka um allan
Eyjafjörðinn líka? Garri telur
sig hafa ráðið þessa gátu og er
tilbúinn til að upplýsa hvernig
tillagan um Eyjafjarðarstrætó
verður skynsamleg.
Skynsemiii
Það liggur beint við að skýra
muninn á vinsældum strætós í
Reykjavík annars vegar og Ak-
ureyri hins vegar með því að í
Reykjavík geta menn keyrt
miklu lengra fyrir
sama pening en á Ak-
ureyri. Leiðirnar á
Akureyri eru greini-
lega ekki nógu Iangar.
Þetta hafa Ámi Stein-
ar og félagar komið
auga á og vilja laga
með því að láta bílana
keyra út fyrir bæinn
svo farþegar geti farið
í sæmilegan bíltúr og
fengið mikið fyrir lítið eins og
í Reykjavík. Við þessa breyt-
ingu má því reikna með að
stóríjölgi f strætisvögnunum
þannig að það gætu jafnvel
orðið fleiri en í vögnunum í
Reykjavík. I staðinn íyrir tóma
vagna skröltandi um bæinn
má þá búast við vögnum ak-
andi um sveitimar og inn í Ak-
ureyrarbæ troðfúllum af ham-
ingjusömu fólki sem slegið
hefur tvær flugur í einu höggi.
Það hefur sameinað sveit og
bæ og fær mikla þjónustu fyrir
lítið verð. Allir eru ánægðir og
mikilvægast af öllu er að Árni
Steinar og félagar verða allir
kosnir á þing. Garri
Árni Steinar
Jóhannsson.
ODDUR
ÓLAFSSON
skrifar
Össur Skarphéðinsson er hug-
rakkur maður. Ótrauður fleygir
hann sér út í vinstriflokkakraðak
og skoppar þar ofan á eins og vel
lagaður korktappi. Hann hefur
verið í forystuliði ótalinna fylk-
inga, hávær og glaðbeittur, stýrt
þölmiðlum sem spanna nær allt
pólitíska litrófið og klýfur og
sameinar flokka eftir því hvernig
á honum liggur og ekkert bend-
ir til annars en að hann eigi fjöl-
skrúðugt og athafnasamt líf fyrir
höndum.
En það þarf ekkert sérstakt
hugrekki til að vera óróamaður í
pólitík, það eru fleiri og farnast
misjafnlega. En það þarf hug-
rekki til að ráðast gegn gróinni
þjóðlygi og þeim tabúum, sem
bannað er að ræða nema á einn
veg.
Um helgina skrifar ritstjórinn
Össur grein í blað sitt um böm
68 kynslóðarinnar. BömO sem
ánetjast fikniefnum á gelgju-
skeiðinu og enginn fær neitt við
Sjálfsrýni og hugrekki
ráðið. Foreldrarnir dýrkuðu
heimsfrægar eiturætur sem voru
leiðtogar veraldar og gerðu upp-
reisn gegn öllum borgaralegum
dyggðum og urðu fórnarlömb
eigin ræfilsdóms og píslarvottar
handa komandi kynslóðum að
tilbiðja.
Vandamál foreldra
Það er nýtt að ábyrgur
stjórnmálamaður og
ritstjóri ráðist að rótum
vandamáls í stað þess
að væla í þeim mikla
grátkór sem sér enga
leið til að leysa þann
mikla vanda nema með
stofnunum og fræðslu
og fræðslu og stofnun-
um o.s.frv. En allt kem-
ur fyrir ekki. í blöðum gærdags-
ins eru venjubundnar fréttir um
síaukna fíkniefnaneyslu ung-
menna og svo fréttir og greinar
um að enginn vandi sé að leysa
úr vandræðunum. Látið okkur
bara fá meiri peninga og stofn-
anir. Þá munu vandamál foreldr-
anna hverfa eins og dögg fyrir
sólu.
Hipparnir stjórna nú heimin-
um, spila á fjármunamarkaðina,
eru forríkir og sitja í háum stöð-
um og iðka þar það
frjálsræði sem þeir
tömdu sér á háskólaár-
unum. Það kvað hafa
verið að kjósa um svo-
ieiðis athafnir í Banda-
ríkjunum í gær.
Fjölmiðlarnir halda
hátt á lofti þeim lífsstíl
þar sem ótamið frjáls-
ræði, eigingirni og eft-
irlátssemi við allar sín-
ar hvatir og tilhneig-
ingar eru taldar Iofleg-
ar. Sýslumenn vitna um aðdáun
sína á heimsfrægum eiturætum
og dáðir embættis- og listamenn
kyija kvæði gamals hippa um
hvernig leggja á heiminn undir
sig, að hætti tyranna, en hippinn
sá orti einnig dýrðaróð til heróín-
sprautunnar sinnar.
Bakari og smiður hengdir
Gömlu sýruhausarnir sem ætl-
uðu að leggja heiminn undir sig
með óheftu lauslæti gera það nú
með óheftu íjármagnsflæði, þar
sem margir hagnast óhóflega en
aðrir, svo sem nokkur þjóðríki,
verða gjaldþrota með öllum þeim
hörmungum sem því fylgir.
Agalausar kynslóðir sem gefa
skít í heimili og fjölskyldu sjá
eðlilega engin önnur ráð en
stofnanir til að taka við börnum
þeirra þegar þau eru orðin kæru-
lausu fijálslyndi að bráð. Það er
sjálfsagt ágætt að djöflast í lög-
reglu og tollurum og kenna þeim
einhliða um agaleysi og eiturfíkn
í þjóðfélaginu. En ekki minnkar
eiturneyslan við það nema síður
sé.
En rætur vandans eru annars
staðar, en það krefst sjálfsrýni og
hugrekkis að viðurkenna það.
Hvemig ber að túlka
vináttuheimsókn for-
manns Alþýðubanda-
lagsins til Kúbu?
Rannveig Guðmundsdóttir
formaður þingflokks jafimðarmanm.
„Ég held að
þessi heimsókn
formanns AI-
þýðubandalags-
ins til Kúbu
verði ekki gagn-
rýnd. Það liggur
fyrir að þetta
boð kom þegar hún var í einka-
heimsókn á Kúbu í fyrrahaust,
ásamt fjölmörgum öðrum. Mér
sýnist þessi heimsókn bera vott
um breytta veröld þar sem fólk
fer sinna ferða óháð fyrrverandi
kaldastríðsmörkum eða „járn-
tjöldum“.“
Steingrímur J. Sigfússon
þingmaður óháðra.
.Almennt hef ég
ekkert nema
gott um það að
segja að menn
kynni sér að-
stæður annarra
þjóða og sjálfur
hef ég mikla
samúð með kúbönsku þjóðinni
vegna þeirra hremminga sem
hún hefur búið við sökum við-
skipabannsins, heimsvalda-
stefnu og kúgunar Bandaríkja-
manna. Pólitíska hliðin á þessari
heimsókn og spurningin um
flokksleg samskipti við kommún-
istaflokldnn á Kúbu er svo annað
mál sem ég kýs að tjá mig ekki
um að svo stöddu."
Jón Hákon Magnússon
formaður Samtaka um vestræna sam-
vitinu.
„Ég held að
heimsóknin sé
af hinu góða.
Það er nauðsyn
fyrir forystu-
menn í pólitík
að víkka sjónar-
deildarhring
sinn - viðskiptabann Bandaríkja-
manna á Kúbu er tímaskekkja.
Við Ieysum ekki svona mál með
þvingunum, heldur með samn-
ingum. Það er Ijóst að Kastró
verður á Kúbu enn um hríð, en
þegar hann er allur hrynur kerf-
ið og færist í lýðræðisátt. Fyrr á
árum voru Kúbverjar góðir við-
skiptavinir Islendinga og keyptu
saltfisk af okkur og ætli þeir byiji
ekki á því aftur þegar þeir eign-
ast peninga."
Árni Giumarsson
formaður Sambands ungra framsókn-
,/Etli Margrét
sé ekki að reyna
að framkvæma
útflutningsleið
Ólafs Ragnars,
sem til þessa
hefur ekki verið
fylgt eftir. En í
það minnsta dregur þessi heim-
sókn Margrétar athyglina frá
þeirri staðreynd að líkið af AI-
þýðubandalaginu liggur eftir á
brautarteinunum, eftir að hafa
orðið undir sameiningarlest-
inni.“
armanna.